Skinfaxi - 01.11.2014, Qupperneq 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 4. tbl. 2014
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Gunnar Gunnarsson, Engilbert Olgeirsson
o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar
Bender.
Ritnefnd:
Örn Guðnason formaður,
Gunnar Gunnarsson,
Berglind Ósk Agnarsdóttir,
Pétur Arason og
Jóhanna Hreiðarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa og kynningarfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Örn Guðnason, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Hrönn Jónsdóttir, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Ragnheiður Högnadóttir,
Baldur Daníelsson,
Kristinn Óskar Grétuson,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir.
Forsíðumynd:
Thelma Rut Hermannsdóttir hefur í nokkur
ár verið ein fremsta fimleikakona landsins.
Thelma Rut hefur þrívegis orðið Íslands-
meistari í áhaldafimleikum og auk þess
unnið til fjölda annarra verðlauna bæði hér
heima og erlendis. Mikill uppgangur hefur
verið í fimleikum hér á landi síðustu ár og
vilja margir þakka það bættri aðstöðu sem
fimleikafólk býr við.
Árið 2014 er brátt á enda og þegar
það gerist líta margir um öxl og fara
yfir það sem hefur á dagana drifið.
Knattspyrnulandslið okkar hefur
heldur betur látið til sín taka í for-
keppni Evrópukeppninnar, og er sem
stendur í góðum séns að blanda sér
í baráttuna um sæti í lokakeppni
mótsins. Liðið hefur rokið upp styrk-
leikalistann og hefur aldrei verið þar
ofar. Þráðurinn verður tekinn upp
að nýju í riðlinum í mars og verður
ekki annað sagt en að liðsins bíði
spennandi og skemmtilegir tímar.
Karlalandslið okkar í körfuknatt-
leik leikur í fyrsta sinn í úrslitakeppni
Evrópumótsins. Þetta er árangur
sem margan hafði dreymt um og
er nú staðreynd. Ég held að margir
geri sér ekki almennilega grein fyrir
því hvílíkur árangur þetta er, því það
er meira en að segja það að komast í
þennan hóp. Metnaður og markmið
leikmanna sem og forystumanna
körfuboltans hér á landi er að skila
þessum einstaka áfanga sem er sá
stærsti í sögu körfuboltans á Íslandi.
Framganga liðsins hefur vakið verð-
skuldaða athygli á alþjóðavísu og
trúa menn því vart að ekki stærri
þjóð hafi unnið þetta ótrúlega afrek.
Við höfum sjaldan eða aldrei átt jafn
góða körfuboltamenn og margir eru
atvinnumenn í íþrótt sinni hjá erlend-
um félagsliðum. Allt þetta hefur sitt
að segja og á stóran þátt i því að lið-
ið komst alla leið í úrslitakeppnina. Í
það minnsta getur þjóðin verið stolt
af sínu liði en úrslitakeppnin verður
haldin á fjórum stöðum næsta ár.
Dregið verður í riðla núna í desem-
ber.
Það voru margir sem sáu fram
á dökkan janúar 2015 því aldrei
þessu vant vann íslenska landsliðið
í handknattleik sér ekki venjulegan
keppnisrétt á heimsmeistaramótinu
sem verður í Katar. Á ýmsu hefur
gengið síðustu vikurnar en í upphafi
tóku Þjóðverjar sæti Ástrala á HM í
Katar sem Íslendingar töldu víst að
væri sitt ef stuðst hefði verið við
keppnisreglur alþjóðahandknatt-
leiksins. HSÍ sætti sig ekki við þessi
vinnubrögð og kærði niðurstöðuna.
Síðan þróuðust mál með þeim hætti
að tvær þjóðir hættu við þátttöku
og fékk íslenska liðið sæti annars
þeirra í keppninni. Þetta mál er búið
að vera eins og farsi frá upphafi og
stjórn Alþjóðahandknattleikssam-
bandsins ekki til framdráttar. „Strák-
arnir okkar“ eru á leið á HM með
öllu sem því tilheyrir, beinum sjón-
varpsútsendingum og tilhlökkun.
Þetta verður bara gaman og ástæða
til að fara að hlakka til.
Nú bíður okkar nýtt ár, okkur öll-
um til heilla, og ekki síður spennandi
en það sem er að kveðja.
Skinfaxi óskar ungmennafélög-
um, sem og landsmönnum öllum,
gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári.
Spennandi og skemmtilegir tímar fram
undan á öllum vígstöðvum í boltanum
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
F yrsta SamVest-æfingin á þess-um vetri var haldin í nýrri frjáls-íþróttahöll FH í Kaplakrika í
Hafnarfirði 19. október sl. Þátttak-
endur nutu leiðsagnar þjálfaranna
Eggerts Bogasonar, Einars Þórs
Einarssonar og Boga Eggertssonar
frá FH og Kristínar H. Haraldsdóttur
frá UMFG/HSH.
Æfingarnar eru liður í samstarfs-
verkefninu SamVest. Að því standa
sjö héraðssambönd, allt frá Kjalar-
nesi að sunnan vestur á sunnan-
verða Vestfirði og Strandir.
Krakkarnir fengu að prófa sleggju-
kast og kringlukast, auk þess sem
farið var yfir spretthlaup og lang-
stökk. Einnig fengu þau að prófa
stangarstökk en einhverjir völdu
grindahlaup og spjótkast.
SamVest stendur fyrir þremur
samæfingum á höfuðborgarsvæð-
inu yfir veturinn. Á sumrin hafa
verið haldnar samæfingar á starfs-
svæðinu og eitt stórt SamVest-mót
hefur verið haldið. Síðastliðið sumar
voru fengnir gestaþjálfarar af höfuð-
borgarsvæðinu til að heimsækja
héraðssamböndin. Þá voru æfinga-
búðir haldnar á Laugum í Sælings-
dal í nóvember og voru þær vel
sóttar.
SamVest-verkefnið gengur vel