Skinfaxi - 01.11.2014, Síða 13
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 13
Mikil upplifun og afrek
Thelma Rut sagði fimleikana í stöðugri
sókn og að íslenskt fimleikafólk stæði sig vel
á Norðurlandamótum og eins á Norður-
Evrópumótum og við værum smám saman
að vinna okkur upp á stóru Evrópumótunum.
„Heimsmeistaramótin eru, eins og gefur
að skilja, gríðarlega sterk og þangað komast
aðeins þeir bestu. Það var mikil upplifun að
komast á Heimsmeistaramótið og í raun afrek.
Það var meiri háttar að hitta bestu stelpur
heims á þessu sviði sem gera ekkert annað
en að stunda fimleika, þær eru ekki í skóla
og því atvinnumenn í íþrótt sinni. Stelpurnar
frá Rússlandi og Kína eru í fimleikasalnum
átta tíma dag á meðan þetta er áhugamál
hjá okkur. Við förum þetta á áhuganum og
borgum ferðirnar okkar sjálfar á meðan þær
bestu úti í heimi fá allt borgað. Í þessu liggur
munurinn,“ sagði Thelma Rut.
Fimmfaldur Íslandsmeistari
- Hvernig hefur þér gengið á mótum síðustu
misseri?
„Ég get ekki sagt annað en bara rosalega
vel. Ég hef unnið Íslandsmeistaratitilinn jafn-
oft og Berglind Pétursdóttir sem var okkar
fremsta fimleikakona á sínum tíma. Eftir smá-
pásu á síðasta sumri tókst mér að koma mér
í form og ná þriðja sæti í heildina á Íslands-
mótinu og varð síðan Íslandsmeistari á slá
og á gólfi sem ég var afar ánægð með. Við
fórum þrjár stelpur á Heimsmeistaramótið í
Kína, ég, Norma Dögg og Freyja Björk og það
er nokkuð sem á eftir að sitja í minningunni
alla tíð. Við stóðum okkur allar með prýði en
Norma Dögg náði ótrúlegum árangri í stökki.
Ég tók þátt í heimsmeistaramóti í Tókýó fyrir
þremur árum en það var mun meiri upplifun
að koma til Kína. Þetta eru svo ólíkir menn-
ingarheimar,“ sagði Thelma Rut sem varð
Íslandsmeistari í fjölþraut 2008, 2010, 2011,
2012, 2013 og lenti í þriðja sæti 2014.
Tímanum vel varið
- Þegar þú lítur til baka og skoðar ferilinn,
finnst þér þetta hafa verið gefandi og þrosk-
andi tími?
„Ég sé aldrei eftir þessum tíma. Margir hafa
spurt mig að því hvernig ég nenni að eyða
öllum þessum tíma í fimleikasalnum. Þessum
tíma hefur verið vel varið, hann verið bæði
gefandi og þroskandi. Maður hefur líka
öðlast mikla reynslu, bæði með keppni og
ferðalögum til ólíkra menningarheima.“
Mikil breyting hefur orðið
- Hvernig er að æfa fimleika í dag miðað við
það þegar þú varst að byrja?
„Það hefur orðið mikil breyting í þeim efn-
um. Gerpluhúsið Versalir var tekið í notkun
2005 og er talið á meðal bestu fimleikahúsa
á Norðurlöndum. Margir erlendir fimleika-
menn, sem hafa keppt í Versölum, hafa lýst
„Mér finnst ég vera að
leggja stund á íþrótt sem
er ofsalega skemmtileg og
gefandi í alla staði.“
mikilli ánægju með allar aðstæður þar. Þær
eru fyrsta flokks. Ég æfði í gamla Gerpluhús-
inu á sínum tíma og að fara þaðan yfir í nýja
húsið var algjör bylting svo að ekki sé meira
sagt,“ sagði Thelma Rut.
Heillandi íþrótt
- Af hverju er svona mikill áhugi á fimleikum
hér á landi?
„Þetta er heillandi íþrótt. Svo hafa fimleikar
verið í sviðsljósinu undanfarin ár. Það kemur í
kjölfar góðs árangurs í hópfimleikum og eins
í áhaldafimleikum. Keppendur hafa staðið
sig vel bæði hér heima og erlendis, unnið til
verðlauna, og allt hefur þetta áhrif til góðs
fyrir fimleikana, það er ekki nokkur spurning.
Umfjöllun í fjölmiðlun er æ meiri og það eyk-
ur tvímælalaust áhuga barna og unglinga á
fimleikum. Fimleikar eru ennfremur grunn-
uppbygging fyrir allar íþróttir. Fólk, sem hef-
ur náð langt í öðrum íþróttum, hefur notið
þess að byrja í fimleikum. Í því sambandi get
ég nefnt Crossfit og við Anný Mist æfðum
fimleika saman þegar við vorum litlar,“ sagði
Thelma.
Allur tilfinningaskalinn
- Er ekki fimleikaheimurinn harður og þarf ekki
að leggja mikið á sig til að ná árangri?
„Jú, svo sannarlega. Fimleikar geyma allan
tilfinningaskalann og krefjast mikils aga. Auð-
vitað þurfa hæfileikarnir að verða til staðar,
skapið og alltaf að vera tilbúin að leggja sig
fram á æfingum. Fimleikar eru þannig íþrótt
að þú verður að gefa þig alla í þá til að ná
settum markmiðum, það er bara ekkert öðru-
vísi,“ sagði Thelma Rut Hermannsdóttir og
var þar með rokin í tíma í Háskóla Íslands.