Skinfaxi - 01.11.2014, Qupperneq 15
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15
H arpa Þorsteinsdóttir, leikmaður Íslandsmeistara Stjörnunnar, var markadrottning úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu 2014 og hlaut að launum gullskóinn nú
á dögunum. Harpa átti frábært tímabil með
Stjörnunni og skoraði 27 mörk í átján leikjum
liðsins í deildinni.
Tímabil þar sem allt gekk upp
„Síðasta keppnistímabil mun ábyggilega
renna mér seint úr minni þar sem segja má
að eiginlega allt hafi gengið upp. Það verður
erfitt að toppa þetta tímabil og það er að
þakka mjög góðu liði. Frábær liðsheild hjálp-
aði mér til að skora þessi mörk en liðsandinn
var einstakur og á stóran þátt í hvað við upp-
skárum,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir, knatt-
spyrnukona í Stjörnunni, í viðtali við Skinfaxa.
Harpa hefur mestan hluta ferils síns leikið
með Stjörnunni en á árunum 2007–2010 lék
hún með Breiðabliki. Harpa sagðist reyndar
hafa byrjað að æfa knattspyrnu með Þrótti
þegar hún var sjö ára gömul en hún flutti
síðan í Garðabæ þegar hún var 12 ára gömul.
Snýst um að halda haus
Þegar Harpa var spurð hvaða augum hún
horfði til næsta tímabils sagði hún alveg ljóst
að það yrði mjög krefjandi og erfitt að fara
inn í það með ný markmið.
„Við brutum í blað á nokkrum sviðum á
síðasta tímabili með því að verja titilinn og
vinna tvöfalt. Næsta tímabil snýst um að
halda haus og langa virkilega til að vinna tvö-
falt aftur. Vonandi munum við síðan standa
okkur betur í Evrópukeppninni, þar er vissu-
lega markmið sem við setjum okkur,“ sagði
Harpa. Hún sagði að æfingar væru að ein-
hverju leyti hafnar að nýju fyrir næsta tímabil
en eiginlega fer allt á fullt eftir áramótin.
Margir mjög góðir leikir
„Mér fannst fótboltatímabilið, þegar á allt
er litið, nokkuð gott þrátt fyrir að sumum hafi
fundist við taka þetta með sannfærandi hætti.
Það voru nokkur lið sem veittu okkur verð-
uga keppni eins og Fylkir og Selfoss sem tefla
fram mjög efnilegum og öflugum liðum. Að
mörgu leyti var þetta gott og áhugavert tíma-
bil og margir mjög góðir leikir,“ sagði Harpa.
Atvinnumaður á Íslandi
- Hvað með framtíðina hjá sjálfri þér? Langar
þig ekki til að spreyta þig á erlendum vettvangi?
„Það væri fyrst og fremst draumur að geta
orðið atvinnumaður í íþrótt sinni á Íslandi en
það er frekar horft til þess að eyða peningum í
erlenda leikmenn. Ég er komin með fjölskyldu
og líf mitt er byrjað hér á landi og það er meira
en að segja það að rífa sig upp og fara út.
Maður rynni svolítið blint í sjóinn að fara til
útlanda og það er kannski meiri áhætta en
ég vil taka. Það er hins vegar ekki spurning
að ég væri til í taka þann slag ef ég væri
yngri. Núna er ég með fjölskyldu, í vinnu
og námi. Ég á þriggja ára strák og átta ára
stjúpdóttur sem býr hjá okkur.“
Maður er aldrei stoltari
- Er alltaf jafn gaman að taka þátt í verkefnum
með íslenska landsliðinu?
„Maður er aldrei stoltari en þegar maður
tekur þátt í verkefnum með íslenska lands-
liðinu og það eru bara forréttindi að mínu
mati. Það voru gríðarleg vonbrigði að kom-
ast ekki í umspil um sæti á heimsmeistara-
mótinu en mér fannst sem áður við leika vel
lengstum. Framtíðin er björt og ég hlakka
mikið til að takast á við næstu Evrópukeppni,“
sagði Harpa.
Nýt góðu stundanna
Eins og kom fram hér að framan skoraði
Harpa 27 mörk í deildinni á síðasta tímabili
og sagði hún aldrei að vita hvort henni tæk-
ist að skora meira á því næsta.
„Mér finnst skipta mestu máli að liðið leiki
vel og vonandi skila sér þau mörk sem ég
skora fyrir liðið. Mér finnst það breytast með
árunum hvað ég nýt þess betur að leika
knattspyrnu. Með ákveðnum þroska og
breyttum áherslum er maður yfirvegaðri og
nýtur góðu stundanna,“ sagði Harpa Þor-
steinsdóttir í viðtalinu við Skinfaxa.
Harpa
Þorsteinsdóttir
markadrottning úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu:
„Það verður erfitt að toppa þetta tímabil“