Skinfaxi - 01.11.2014, Side 19
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 19
Í byrjun desember voru undirritaðir samn-ingar vegna 5. Landsmóts UMFÍ 50+ á milli Ungmennasambands Austur-Hún-
vetninga og Ungmennafélags Íslands um
framkvæmd mótsins. Mótið verður haldið á
Blönduósi dagana 26.–28. júní næsta sumar.
Blönduós er góður staður til að halda slíkt mót
Samningar vegna 5. Landsmóts UMFÍ 50+ á Blönduósi undirritaðir
á, góð íþróttamannvirki eru þar og almenn
þjónusta er með ágætum. Íþróttakeppnin fer
öll fram á Blönduósi. Undirbúningur er haf-
inn fyrir nokkru og er mikill metnaður í heima-
mönnum að gera mótið sem allra best úr
garði. Lögð verður áhersla að taka vel á móti
öllum mótsgestum. Mótið verður svipað og
þau fyrri en þó verður lögð meiri áhersla á
afþreyingu og skemmtun. Fyrirhugaðar
keppnisgreinar eru boccia, bridds, dráttar-
vélaakstur, frjálsar íþróttir, golf, hestaíþróttir,
júdó, lomber, einstaklings- og liðakeppni í
pútti, ringó, skák, skotfimi, starfshlaup, stíg-
vélakast og sund.
Þórunnarstræti
Ka
up
va
ng
ss
tr
æ
ti
www.visitakureyri.is
SUNDLAUGIN
Á AKUREYRI
Va t n a v e r ö l d f j ö l s k y l d u n n a r
Afgreiðslutímar:
Sumar (2/6–29/8): Virkir dagar 6.45–21.00. Helgar 8.00–19.30.
Vetur (30/8–1/6): Virkir dagar 6.45–21.00. Helgar 9.00–18.30.