Skinfaxi - 01.11.2014, Síða 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
H éraðssamband Strandamanna, HSS, fagnaði 70 ára afmæli sínu í félags-heimilinu á Hólmavík 19. nóvem-ber sl. Af því tilefni var aðildarfélög-
um, iðkendum, sjálfboðaliðum og stuðnings-
aðilum ásamt sveitarstjórnarfulltrúum og
fulltrúum og öðrum áhugasömum boðið að
gera sér glaðan dag saman. Tímamót sem
þessi eru kjörið tækifæri til að líta yfir farinn
veg, læra af því sem liðið er og setja stefnuna
fyrir tímann sem fram undan er.
Áhersla á samheldni
Fundurinn var léttur og skemmtilegur og
áhersla lögð á samheldni og skapandi hug-
myndavinnu og markmiðssetningu héraðs-
sambandsins. Tilgangurinn var að þétta raðir
áhugafólks um íþróttastarf á Ströndum, skapa
samstarfsvettvang og deila hugmyndum að
því hvernig gera megi gott starf enn betra.
Ákveðin festa kom með
ráðningu starfsmanns
Fáir þekkja innviði HSS betur en Vignir Páls-
son, formaður sambandsins. Hann sagði eng-
um vafa undirorpið að HSS hefði með starf-
semi sinni gegnt veigamiklu uppbyggingar-
starfi á starfssvæði sínu í gegnum tíðina.
Að hans mati varð mikil breyting á starf-
seminni þegar náðist samkomulag við sveitar-
félagið um aðgang að starfsmanni allt árið
um kring. Með því hefði skapast ákveðin
festa í öllu starfinu. Með ráðningu hans hefði
margt breyst til hins betra sem kæmi nú æ
betur í ljós. Vignir sagði að margir hefðu horft
til þessa samstarfs og tekið síðan upp svipað
verklag með einum eða öðrum hætti. Starfið
væri alltaf í endurskoðun en samt sem áður
hefði þetta komið einstaklega vel út.
Tímarnir hafa breyst
„Tímarnir breytast og mennirnir með og
segja má að skipulagning og framtíðarsýn sé
ávallt til athugunar og skoðunar. Ég held að
það verði breyting á íþróttahéruðunum í
framtíðinni og auðvitað hafa orðið breytingar
nú þegar samhliða breytingum á sveitarfélög-
um. Ég get nefnt í því sambandi að svæði
Ungmennafélagsins Hörpu er nú orðið hluti
af Húnaþingi vestra. Eins og við vitum öll sem
erum í íþrótta-, barna- og unglingastarfi er
ósköp eðlilegt að þegar mörk sveitarfélag-
anna breytast, þá breytist auðvitað umráða-
svæði sveitarfélaganna,“ sagði Vignir.
Skipulagning mótshalds
- Í hverju er starf HSS aðallega fólgið nú?
„Héraðssambandið er regnhlífarsamtök
félaganna hérna á svæðinu og á fyrst og
Straumhvörf þegar íþrótta
fremst að vera tengiliður í þágu þeirra við
UMFÍ og ÍSÍ og deila út lottópeningum svo
að eitthvað sé nefnt. Ennfremur er stór þátt-
ur í starfi okkar að skipuleggja mótshald af
ýmsu tagi og standa frjálsar íþróttir þar upp
úr. Hér er starfandi líflegt skíðafélag og enn-
fremur golfklúbbur og starfið fer bara vax-
andi. Yfir sumartímann eru skipulagning og
þátttaka okkar í Unglingalandsmótum veiga-
mikil en 22 einstaklingar kepptu á okkar veg-
um í Unglingalandsmótinu sem haldið var á
Sauðárkróki síðasta sumar. Krakkarnir kepptu
í frjálsum íþróttum, körfubolta, fótbolta og
mótokrossi. Við höfum um 12 ára skeið verið
í samstarfi við Húnaþing vestra með þátttöku
á Unglingalandsmótum og hefur það sam-
starf gefist mjög vel. Það samstarf hefur aðal-
lega legið í því að senda fólk sameiginlega til
þátttöku í fótbolta og körfubolta.“
Héraðssamband Strandamanna 70 ára