Skinfaxi - 01.11.2014, Side 32
32 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
H ermann Níelsson var þann 30. októ-ber sl. sæmdur gullmerki Ungmenna-félags Íslands fyrir störf sín í þágu ung-
mennafélagshreyfingarinnar og íþrótta í
landinu. Stjórn UMFÍ samþykkti á fundi í
september að sæma Hermann þessum virð-
ingarvotti. Gunnar Gunnarsson, formaður
Ungmenna- og íþróttasambands Austur-
lands (UÍA) og stjórnarmaður í UMFÍ, afhenti
Hermanni merkið á Landsspítalanum við
Hringbraut þar sem Hermann dvelur vegna
illvígra veikinda.
Hermann, sem er fæddur á Ísafirði árið
1948, var formaður UÍA árin 1977–1985 og
framkvæmdastjóri sambandsins í þrjú ár á
undan. Eftir að hafa útskrifast sem íþrótta-
kennari frá Laugarvatni fluttist Hermann
austur á Hérað til að kenna íþróttir við Alþýðu-
skólann á Eiðum.
Hermann Níelsson sæmdur gullmerki UMFÍ
Hann hóf þegar afskipti af starfi UÍA og
hélt þeim áfram, meðal annars með upp-
byggingu maraþons á Egilsstöðum, þótt
hann hætti sem formaður. Þá var hann um
tíma formaður knattspyrnudeildar Hattar á
Egilsstöðum.
Hermann kenndi einnig við Bændaskólann
á Hvanneyri, Menntaskólann á Egilsstöðum
og Menntaskólann á Ísafirði.
Á Ísafirði var hann á sínum tíma einn af
stofnendum Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar
og síðar formaður Knattspyrnufélagsins
Harðar þar sem hann starfaði ötullega að
uppbyggingu glímuíþróttarinnar.
Stjórn UMFÍ og ungmennafélagshreyfing-
in öll sendir Hermanni og fjölskyldu hans
góðar kveðjur.
U ndirritaður hefur verið nýr styrktar-samningur milli Ungmennasambands Eyjafjarðar og Bústólpa, en Bústólpi
hefur verið aðalstyrktaraðili UMSE í mörg ár.
Bjarnveig Ingvadóttir, formaður UMSE og
Hólmgeir Karlsson, framkvæmdastjóri Bú-
stólpa, undirrituðu samninginn í höfuðstöðv-
um Bústólpa á Akureyri. Samningurinn tekur
til áranna 2014, 2015 og 2016. Á samnings-
tímanum veitir Bústólpi árlegan fjárstyrk til
sambandsins líkt og í fyrri samningum.
Nýjung að þessu sinni er að Bústólpi mun
á samningstímanum veita árlega sérstakan
styrk til uppbyggingar barna- og unglinga-
starfs. Styrkinn mun hljóta aðildarfélag
UMSE sem að mati stjórnar UMSE hefur með
Styrktarsamningur milli UMSE og Bústólpa endurnýjaður
einhverjum hætti skarað fram úr í barna- og
unglingastarfi eða verið með á sínum veg-
um sérverkefni sem miðar að uppbyggingu
og/eða útbreiðslu barna- og unglingastarf-
sins. Með samningnum eru undirstöður
reksturs UMSE tryggðar enn frekar og mun
starfsemi sambandsins þannig haldast öflug
áfram.
„Við erum mjög ánægð með að hafa
endurnýjað styrktarsamninginn við Bústólpa.
Allir styrkir eru mikilvægir og hjálpa okkur
í starfinu.Við höfum ennfremur verið að fá
styrki frá sveitarfélögunum hér á sam-
bandssvæðinu,“ sagði Bjarnveig Ingvars-
dóttir, formaður UMSE, í spjalli við Skinfaxa.
S tjórnarmenn Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra hefur verið á ferð um landið í haust og vetur til að kynna
starfsemi félagsins.
Laugardaginn 7. nóvember síðastliðinn
fóru Anna Bjarnadóttir, Þórey S. Guðmunds-
dóttir og Flemming Jessen norður í A-Húna-
vatnssýslu til að kenna og fræða íbúa sýsl-
Útbreiðsluferðir FÁÍA í Húnavatnssýslum og til Siglufjarðar
unnar í boccia, ringo, ýmsum dönsum, aðal-
lega stóladönsum, auk leikfimi. Byrjað var í
íþróttahúsinu á Blönduósi en svo var sama
dagskrá á Skagaströnd síðar um daginn. Því
miður sáu sér ekki margir fært á að mæta, en
þeir sem komu létu vel af dagskránni. Þess
má geta að fimm gestir úr V-Húnavatnssýslu
mættu á Skagaströnd.
Ferðin norður var ekki síður ætluð til þess
að styrkja og koma hreyfingu á undirbúning
heimamanna fyrir Landsmót UMFÍ 50+ sem
verður þar næsta sumar.
Þá var farin mjög vel heppnuð ferð til
Siglufjarðar og haldið námskeið í boccia þar
sem farið yfir reglur og þjálfun. Hluti þátt-
takenda tók að lokum dómarapróf.