Dagrenning - 01.10.1950, Blaðsíða 7
Sóvietrikin og leppríki þeirra 1950. Stjörnurnar sýna hernaðarlega mikilvœgar stöðvar, sem öll-
um er stjórnað frd Moskva, en örvarnar sýna þau landsvæði þar sem Rússar geta rekið um-
boðsstyrjöld án þess að koma sjálfir beinlinis við átökin.
þar tapað fyrir hinni rússnesku leppstjóm
dettur Rússum ekki í hug að koma henni
til hjálpar með beinum aðgerðum. Á korti
því, sem fylgir þessari grein, sést greinilega
það svæði af „hinum gamla heimi“, Evrópu
og Asíu, sem kommúnisminn hefur nú þeg-
ar flætt yfir. Það eru aðeins smárendur eftir
að vestan og sunnan, og þjóðir þessara rand-
ríkja, svo sem Indverjar, Frakkar og ítalir
eru allir stórkostlega sýktir af kommúnisma
og þess er aðeins örskammt að bíða, að
kommúnistar efni til innanlandsbyltinga þar,
t. d. í Indlandi. Örvarnar á kortinu sýna hvar
Rússar geta rekið umboðsstyrjaldir án þess að
koma sjálfir beinlínis við átökin. í engu þeirra
ríkja, sem örvarnar benda á eru nágranna-
þjóðimar þess umkomnar að verja sig sjálf-
ar fyrir árás frá leppríkjunum, nema
lið allra tegunda í Asíulöndum. Við það að
Kóreustyrjöldin tapaðist komast Bandaríkja-
menn og Kínverjar í návígi við landmæri
Mansjuriu, og mun það enn verða til þess að
breikka bilið milli þeirra. Rússar halda sér
utan allra raunverulegra átaka en standa á
bak við og etja leppríkjum sínum lengra og
lengra út í torfæruna.
Kórea er fyrsta ríkið, sem Rússar tefla
fram í umboðsstyrjöld, en með um-
boðsstyrjöld er átt við það, að þeir
tefli fram her leppríkis, sem þeir hafa
búið að vopnum og æft til bardaga, og ætlað
er að færa út áhrifasvæði kommúnismans án
þess þó að Rússar taki beinan þátt í atburð-
unum né verði lagalega eða stjómmálalega
flæktir í aðgerðir leppríksins. Þannig hefur
þetta verið í Kóreu og nú þegar allt virðist
DAGRENNING 5