Dagrenning - 01.10.1950, Qupperneq 42
Lausn yðar er í nánd,
Það ætti að vera næsta athyglisvert fyrir þá
nrörgu, seni eru sjáendur en sjá þó eigi, og
heyrendur en heyra þó eigi, hve margir af
vísindamönnum nútímans eru örugglega
sannfærðir um að aldaskifti séu í nánd, og að
þeir komast að þessari niðurstöðu eftir mörg-
um og ólíkum leiðum. Á þeim sannast dæmi-
sagan um hina mörgu menn, sem stefna að
sama marki en koma sér ekki saman urn
hver leiðin sé greiðust, en hittast þó allir að
lokum á einum stað. Og vegna þess að „Dag-
renning“ hefur gert sér far um að vekja at-
hygli almennings á þessari merkilegu stað-
reynd, þykir rétt að benda á enn eitt dæmi.
Fyrir nokkrunr árurn kom út í Englandi
bók, sem heitir „Tlie Ritual of Higher
Magic“ og er eftir Furze Morrish.
Niðurlagskafli bókarinnar hljóðar þannig:
„Vér höfum lifað tiltölulega stutt tímabil
efnishyggju, stvrjalda og eyðileggingar. Þetta
er Mars-tímabilið, sem nær hér urn bil yfir
árin 1909—1945. Á þessum tíma höfum vér
verið að greiða gamlar skuldir, þetta hefur
verið nokkurs konar vorhreingeming. Áður
en vorhreingerning hefst finnst mönnum
allt í besta lagi, vegna þess að menn taka
ekki eftir ryki og sýklum. En þegar farið er
að hrófla við húsgögnum og gólfdúkum og
byrjað er að sópa, þá þyrlast upp ský af rvki
svo að mönnum ofbýður og bölva þessu um-
stangi. En á eftir, þegar allt er hreint og fág-
að, þá batnar andrúmsloftið.
Árið 1945 hefst „tunglöld" og stendur fram
til 1980. Þetta verður tími „sáningar".
Árekstrar verða fremur andlegs en líkamlegs
eðlis — fremur til að greiða götu hins nýja
tíma, en að þeim fylgi eyðilegging. Líklegt
er að þá verði miklar æsingar, mikill flokka-
dráttur og fvlgisveiflur milli hinna róttæk-
ustu stjórnmálaflokka — líkt og flóð og fjara
af völdum tunglsins, bókstaflega talað —
ásamt auknum áhuga fyrir andlegum h'rir-
brigðum. Verður þetta fvrst hugaræsandi og
blandið margskonar hlevpidómum, en síðar
mun það leiða til hins rétta skilnings. Má
áreiðanlega búast við miklu af bókum, ræð-
um og mannfundum út af hinu „dulræna"
sem skeður á tunglöldinni, og keniur í stað-
inn fyrir þá flóðöldu glæpa og „spennings",
sem einkenndi Mars-öldina. En eftir það,
svona undir aldamótin, höfum vér ástæðu til
að búast við að upp renni sólaröld sem for-
boði liinnar „nýju aldar“, er koma skal.
Þeir sem vilja draga samlíkingar af Biblí-
unni munu sennilega kalla sólaröldina í lok
þessarar aldar hina „Nýju Jerúsalem“, sem
sé að koma. En fjöldinn, sem flýtur með
straumi framvindunnar, er ekki líklegur til
þess að af honum megi vænta neinnar upp-
byggingar. Hann er „hinn týndi sauður“, sem
bjarga þarf. En mönnum, sem þekkingu liafa,
munu veitast stórkostleg tækifæri á tungl-
öldinni til að búa í haginn fyrir framtíðina,
með því að gerast samverkamenn skaparans
i því að framkvæma fyrirætlan hans, sem er
framþróun. Þekking á eðli og levndum öfl-
um náttúrunnar, er tákn hins nýja tíma. Og
þá er tækifærið til þess að skapa „frið á jörð“,
en það geta einungis þeir menn, sem vilja
40 DAGRENN I NG