Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015
Ellefu Íslendingar voru í gær sæmdir heið-
ursmerki hinar íslensku fálkaorðu. Þeir eru:
Dýrfinna H.K. Sigurjónsdóttir ljósmóðir fyrir
störf á vettvangi heilsugæslu og umönnunar;
Herdís Storgaard hjúkrunarfræðingur fyrir
brautryðjandastörf að slysaforvörnum barna;
Inga Þórsdótir, prófessor og forseti heil-
brigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, fyrir
framlag til vísinda og rannsókna; Magnús
Pétursson, ríkissáttasemjari og fyrrverandi
ráðuneytisstjóri, fyrir störf í opinbera þágu;
Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði,
fyrir rannsóknir og fræðslu á sviði íslenskra
jarðvísinda; Páll Guðmundsson myndlist-
armaður fyrir framlag til íslenskrar mynd-
listar; Sigrún Huld Hrafnsdóttir, ólympíu-
methafi fatlaðra og myndlistarmaður, fyrir
afrek og framgöngu á vettvangi íþrótta fatl-
aðra; Sigurður Halldórsson héraðslæknir fyr-
ir læknisþjónustu á landsbyggðinni; Sigurður
Hansen bóndi fyrir framlag til kynningar á
sögu og arfleifð Sturlungaaldar; Silja Aðal-
steinsdóttir bókmenntafræðingur fyrir fram-
lag til íslenskrar menningar og bókmennta;
Þorvaldur Jóhannsson fyrir framlag til
mennta og framfara í heimabyggð.
Ellefu hlutu fálkaorðuna á nýársdag
Morgunblaðið/Eggert