Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015
ÚTSALAN
HAFIN
50 %
AFSLÁTTUR
Bæjarlind 6 | sími 554 7030 | Við erum á facebook
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Lokað í dag
2. janúar vegna
vörutalningar
Jakkaföt
Stakir jakkar
Kakí- og flauelsbuxur
Stakar buxur
Frakkar
Sumarblússur
30-50%afsláttur
Eggert Þór Bernharðs-
son, sagnfræðingur og
rithöfundur, varð bráð-
kvaddur á gamlársdag,
56 ára að aldri. Eggert
var fæddur í Reykjavík
2. júní 1958, sonur Guð-
rúnar Eggertsdóttur
og Bernharðs Guð-
mundssonar. Stjúpfaðir
hans var Gunnar Giss-
urarson.
Eggert nam sagn-
fræði við Háskóla Ís-
lands og lauk
cand.mag-prófi árið
1992. Var kennari í
sagnfræði við HÍ frá 1987. Haustið
2006 varð Eggert dósent og síðar
prófessor í hagnýtri menningar-
miðlun.
Á sviði sagnfræði var starf Egg-
erts Þórs einkum tengt Reykjavík,
sögu og þróun borgar.
Tveggja binda verk
Saga Reykjavíkur –
Borgin 1940-1990, kom
út 1998 og bókin Undir
bárujárnsboga
Braggalíf í Reykjavík
1940-1970 kom 2001.
Síðasta verk Eggerts
var Sveitin í sálinni –
Búskapur í Reykjavík
og myndun borgar. Sú
bók er tilnefnd til Ís-
lensku bókmennta-
verðlaunanna 2014 í
flokki fræðibóka og
rita almenns efnis. Þá
skrifaði Eggert margt fleira, vann
kennsluefni og fleira.
Eggert lætur eftir sig eiginkonu,
Þórunni Erlu- Valdimarsdóttur,
móður og tvo syni, tengdadóttur og
sonardóttur.
Andlát
Eggert Þór Bernharðsson
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Innanríkisráðuneytið hefur nú til
umfjöllunar drög að nýrri reglugerð
um óháða kærunefnd útlendinga-
mála sem tekur til starfa nú í árs-
byrjun. Nefndin á
að vera úrskurð-
araðili á æðra
stjórnsýslustigi í
málum sem eru
kærð á grundvelli
útlendingalaga.
Hún mun hafa
sömu valdheim-
ildir og ráðherra
til að úrskurða í
kærumálum, uni
menn ekki úrskurði hennar geta þeir
að sjálfsögðu leitað til dómstóla.
Lögin voru samþykkt á Alþingi í
vor en þáverandi innanríkisráðherra,
Hanna Birna Kristjánsdóttir, lagði
frumvarpið um nefndina fram. Vildi
hún bregðast við þeirri gagnrýni að
ráðuneytið færi sjálft yfir og endur-
skoðaði ákvarðanir Útlendingastofn-
unar þótt stofnunin heyrði undir það.
Bent var á að ekki væri hægt að líta
svo á að ráðuneytið væri óháður og
óhlutdrægur aðili í slíkum kærumál-
um. Einn af þremur aðalmönnum í
nýju nefndinni verður nú tilnefndur
af Mannréttindastofnun Háskóla Ís-
lands. Formaður nefndarinnar er dr.
Hjörtur Bragi Sverrisson.
„Núna um áramótin verður þessi
yfirfærsla, þessi kærumál sem hafa
verið til umfjöllunar í ráðuneytinu
fara út,“ segir Ólöf Nordal innanrík-
isráðherra. „Það verður mikil breyt-
ing á útlendingamálunum við þetta
hér í ráðuneytinu. Mér finnst heppi-
legt að þau séu færð yfir til óháðra
sérfróðra aðila þótt auðvitað hafi sér-
fróðir aðilar einnig fjallað um þau
hér. En þetta er liður í að formgera
betur alla meðferð á útlendingamál-
um.
Þessi kærumál varða mjög hag
einstaklinga og þau hafa verið tölu-
vert þung hér í ráðuneytinu, eins og
við þekkjum. Hjá hinum norrænu
þjóðunum eru úrskurðarmálin
hvergi höfð innan ráðuneytanna. En
þessi mál eru sífellt að verða þyngri í
öðrum Evrópulöndum og eflaust
verður ekkert lát á því. En það er
miklu betra að ráðuneyti hugi frem-
ur að stefnumörkun í málaflokknum
en að vera að taka á einstökum mál-
um.“
53 vildu afsala sér
ríkisborgararétti
Árið 2013 sóttu alls 172 einstak-
lingar um hæli á Íslandi og bendir
allt til þess að fjöldinn hafi verið svip-
aður á nýliðnu ári, samkvæmt upp-
lýsingum frá innanríkisráðuneytinu.
Fjölmennasti hópurinn árið 2014 var
frá Úkraínu, níu manns. Fallist var á
veitingu verndar í 57% þeirra mála
sem komu á borð Útlendingastofn-
unar og fengu þar efnislega meðferð.
Af alls 92 hælisumsóknum sem af-
greiddar voru hjá stofnuninni var 43
lokið með endursendingu til annars
ríkis á grundvelli Dyflinnarreglu-
gerðarinnar.
Alls sóttu 674 manns um íslenskan
ríkisborgararétt fyrstu níu mánuði
ársins2014, nýrri tölur eru ekki fyrir
hendi. Voru 546 umsóknir afgreidd-
ar, þar af fengu 452 réttinn. Þess má
geta að 53 einstaklingar vildu afsala
sér ríkisborgararétti hérlendis.
Óháð nefnd mun
sinna kærunum
Hælisþrætur úr höndum ráðuneytis
Ólöf Nordal
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Úthlutað hefur verið úr Menning-
arsjóði Kaupfélags Skagfirðinga til
30 verkefna á sviði menningar og
lista í Skagafirði og Húnavatns-
sýslu. Sjóðurinn hefur verið starf-
ræktur í 60 ár en á árinu 2014 fagn-
aði kaupfélagið 125 ára afmæli
sínu.
Afhending styrkja úr sjóðnum
fór fram í vikunni. Í tilefni af 125
ára afmælinu fengu tveir aðilar sér-
staka styrki úr sjóðnum, annars
vegar Vesturfarasetrið á Hofsósi
og hins vegar Fjölbrautaskóli
Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Vesturfarasetrið verður 20 ára árið
2016 og af því tilefni verður opnuð
ný sýning um ferðir Íslendinga til
Vesturheims. Fjölbrautaskólinn
fékk styrk til markaðssetningar á
nýjum námsbrautum.
Í tengslum við úthlutun úr sjóðn-
um var veittur sérstakur farand-
bikar sem börn Stefáns Guðmunds-
sonar, fv. stjórnarformanns KS, og
Hrafnhildar Stefánsdóttur, konu
hans, gáfu kaupfélaginu þar sem
markmiðið er að verðlauna ungt og
efnilegt afreksfólk í íþróttum. Að
þessu sinni fengu bikarinn þær
Linda Þórdís Róbertsdóttir og
Bríet Lilja Sigurðardóttir, körfu-
boltakonur úr Tindastóli, sem báð-
ar eru í stúlknalandsliði Íslands
undir 16 ára aldri og burðarásar í
meistaraflokki kvenna hjá sínu fé-
lagi.
Menningarsjóður KS
styrkti 30 verkefni
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Menningarsjóður Körfuboltakonurnar Linda Þórdís Róbertsdóttir og Bríet
Lilja Sigurðardóttir fengu styrk úr sjóðnum og farandbikar minningarsjóðs
Stefáns Guðmundssonar og Hrafnhildar Stefánsdóttur. Með þeim eru
Bjarni Maronsson, stjórnarformaður KS, Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
og bræðurnir Stefán Vagn og Ómar Bragi Stefánssynir.
- með morgunkaffinu