Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur verið nauðsynlegt að vera einn með sjálfum sér um tíma. Sýndu sveigj- anleika og þá munu allir erfiðleikar gufa upp. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú getur kannski leyst alla skapaða hluti sjálf/ur en það er ekki eins skemmti- legt. Vertu varkár og segðu ekkert fyrr en þú ert alveg viss. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er munur á því að fara fyr- irhafnarminnstu leiðina og þá sem ekki felur í sér neinar hindranir. En breytingar þurfa að leiða til ávinnings, annars eru þær ekki til neins. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það hefur ekkert upp á sig að blanda öðrum í mikilvæga ákvarðanatöku. Temdu þér eina eða tvær brellur sem þú getur not- að til að koma í veg fyrir ofát eða ofeyðslu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er engin ástæða fyrir þig til þess að vera að væla yfir hlutunum. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Venus fer milli stjörnumerkja í dag og það gerir ykkur kleift að skilja betur hvað ástin hefur mikla þýðingu. Láttu at- hugasemdir annarra sem vind um eyru þjóta. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ágreiningur við maka er sennilegur nú og næstu vikur. Léttu undir með einhverjum sem mun launa þér greiðann. Þér hættir til að sjá ekki skóginn fyrir trjánum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gerðu draum þinn að veruleika og leitaðu á vit ævintýranna. Njóttu þess að vera í faðmi fjölskyldunnar og byrjaðu svo á nýju verkefni. Allt hefur sinn tíma. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að venja þig af því að ætla að keyra skoðanir þínar ofan í annað fólk. Kannski að þú viljir meira frelsi, eða þá að hinn aðilinn vill um frjálst höfuð strjúka. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gættu þess að endurbætur sem þú vilt gera í dag séu raunhæfar og mögu- legar. Ljúktu við hverskonar skreytingar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Margan skemmtilegan manninn rekur á fjörur þínar í dag. Móðir náttúra vinnur á svo hárfínan og stórkostlegan hátt, að bara það að horfa getur verið hjartnæmt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Viðurkenndu það, einhver sem þú ert alltaf að þrasa við er syndsamlega aðlað- andi. Ef þú einbeitir þér að viðtökunum eyði- leggur það fyrir tjáningunni. Taktu þér tak og leitaðu hjálpar ef þú ert kvalin/n. Mér þykir fara vel á því um leiðog ég þakka lesendum Vísna- horns fyrir gamla árið og óska þeim velfarnaðar á hinu nýja að gera þessi orð Ólafs Stefánssonar á Leirnum að mínum: „Það segja gamlir menn að ef áramótin rigna saman verði vorið gott og árgæska til lands og sjávar. Heyfengur með ágætum og troð- júgra kýr í haga. Um áramótin háleit heit vil halda en ekki brjóta. Una glaður upp í sveit, yrkja og friðar njóta. Ævi sína enginn veit, örlög sviðið móta. Inn í framtíð enginn leit né endi á lífsins kvóta.“ Sigurlín Hermannsdóttir skrifaði í Leirinn á sunnudaginn: „Veturinn í ham með hálku og myrkur. En fram undan eru áramót og hækk- andi sól. Óska öllum Leirverjum velfarnaðar á nýju ári. VETRARÞRÍLEIKUR I. Vetrarfærð Á myrkum morgni mannkind fetar glerjaðar götur með geig í fótum. Hugsar kvíðin hvað ef ég dett? Á morgun mun ég mannbrodda kaupa. II. Áramót Sjást á lofti sólir átján, rifna himnar, rignir stjörnum. Fólkið fagnar faðmar, kyssir. Mætast ár á miðri nóttu. III. Á djamminu Ölfúsum gestum öldurhúsa, frekum til fjörs, er fleygt á götu. Villir vega til vina sinna. Gleði rokgjörn í garra bitrum. Hallmundur fyrsti kvað: Engar fara af því sögur. Ekki neitt ég leit yndislegra en ung og fögur áramótaheit. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Háleit heit og Vetrarþríleikur Í klípu „ÉG GAF MIG SJÁLFUR FRAM. ÉG VAR ORÐINN ÞREYTTUR Á AÐ HLAUPA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JÚ, JÚ, HÚN ER STÓR, EN HÚN MUN MÁLA MEÐALSTÓRT HERBERGI Á ÞREMUR MÍNÚTUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vilja gefa henni stjörnurnar og mánann. ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ FLÓATÍÐ MIG KLÆJAR OG ÉG SÉ LITLA STIGA HVAÐ KOM FYRIR ÞIG? HELGA OG ÉG RIFUMST OG HÚN KASTAÐI NAUTAGÚLLASINU Í MIG! HVERNIG GETUR NAUTAGÚLLAS VALDIÐ SVONA MIKLUM SKAÐA? ÞAÐ VAR ENNÞÁ Í POTTINUM! Hvað er sagt hjá læknum? spurðiíslenskukennari gjarnan nem- endur sína á árum áður. Þó hann sé sprækur sem lækur er hann hættur að kenna en legði hann spurninguna fyrir nú er Víkverji sannfærður um að svarið tengdist örugglega oftar læknadeilunni en lækjarsprænu. x x x Undanfarna daga hefur snjóað íhöfuðborginni, rétt eins og búast hefur mátt við á þessum árstíma frá því land byggðist og reyndar lengur en það. Þegar Jón Gnarr var borg- arstjóri ákvað hann að bregðast við snjókomu með því að bíða eftir rign- ingunni og varð margt beinið undan að láta á svellinu fyrir vikið. Samt verður hann örugglega næsti forseti miðað við jólaspjall hans við Sigmar í Kastljósi ríkisútvarpsins, hvenær svo sem hann fær tækifæri til þess. x x x Núverandi borgarstjóri, sem erlæknir að mennt, hefur engu að síður haldið uppteknum hætti for- vera síns í sambandi við viðbrögð við snjókomu. Vegna nýlegrar umræðu um eftirlíkingar í ráðhúsinu dregur Víkverji þá ályktun að hann vilji einnig verða forseti. Annað væri stíl- brot. x x x Vegna ófærðar í húsagötum höf-uðborgarinnar hafa sorphirðu- menn ekki getað unnið vinnuna sína og sorp því hlaðist upp. Borgarstjóri hefur hvatt borgarbúa til þess að hreinsa götur og gangstíga svo sorp- hirðumenn komist að sorptunnum, en Víkverji hefur alla tíð staðið í þeirri trú að það væri hlutverk borg- arinnar að sjá um hreinsunina. Í það minnsta hafa álögur á borgarbúa ekki minnkað í tíð hans í borg- arstjórn. Eftir því sem Víkverji kemst næst eiga borgarar heldur al- mennt ekki snjóruðningstæki enda ekki stæði fyrir slík tæki í húsagöt- um, hvað svo sem síðar verður. x x x Ég er kominn heim í heiðardalinn,söng Haukur, kominn heim til að hlusta á lækinn og svo framvegis. Andrúmsloftið væri örugglega betra ef aðrir tækju hann til fyrirmyndar. Gleðilegt ár. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú held- ur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.) DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is Tæki til vetrarþjónustu Stofnað 1957

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.