Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2. DAGUR ÁRSINS 2015 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ég, Eyrbekkingurinn, man fyrst eftir Selfossstelpunni fjórtán eða fimmtán ára. Í fyllingu tímans kynntumst við betur og Ingunn hef- ur stundum sagt í gríni að þetta hafi allt smollið saman á balli í Sel- fossbíói haustið 1982. Þá varð ekki aftur snúið,“ segir Ari Björn Thor- arensen á Selfossi sem varð fimm- tugur í gær, nýársdag. Slíkt væri varla í frásögur færandi nema hvað Ingunn Gunnarsdóttir, eiginkona hans, er fimmtug á morgun, 3. jan- úar. Ætla af því tilefni – með börn- unum sínum þremur – að halda sameiginlega upp á afmælin og vænta fjölmennis á skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi þar sem hófið verður haldið. Dagamunur er tímabær Ari er fæddur á sjúkrahúsinu á Selfossi en Ingunn á Landspít- alanum í Reykjavík. „Nei, þetta er nú ekki svo krúttlegt að við höfum verið í vöggu hlið við hlið á sjúkra- húsinu. Erum þó fædd undir sama tunglinu sem útskýrir kannski eitt- hvað,“ segir Ingunn, sem jafnan hefur boðið fjölskyldu og vinum heim á afmælisdegi sínum. Þá hefur móðir Ara, Guðrún Thorarensen, jafnan haldið upp á afmælisdag son- arins, boðið skylduliði sínu í kaffi á fyrsta degi árs jafnvel þó að afmæl- isbarnið hafi ekki alltaf mætt, enda bundið við vinnu. Að þessu sinni verður þó meira umleikis, það er annað kvöld, á þriðja degi árs. „Við héldum partí þegar við urð- um tvítug, en vorum í útlöndum á þrítugs- og fertugsafmælum okkar. Nú er hins vegar tímabært að gera sér dagamun,“ segir Ingunn sem annast umboð Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga hjá embætti Sýslumannsins á Selfossi. Hún hef- ur í tímans rás tekið þátt í ýmsu fé- lagsstarfi í heimabæ sínum. Er for- maður Lúðrasveitar Selfoss, sem hún hefur starfað með frá 1978 og auðvitað ætla félagar hennar þar að spila í afmælinu. Um Ara Björn er það að segja að hann hefur í bráðum þrjátíu ár ver- ið fangavörður á Litla-Hrauni og var lengi í forystusveit starfssystk- ina sinna. Í dag situr hann í bæj- arstjórn Árborgar, er formaður Héraðsnefndar Árnesinga og situr í ýmsum ráðum fyrir sveitarfélagið. Er einnig formaður Afréttarmála- félags Flóa og Skeiða. Fangavörður í fjallferðir „Sennilega er ég eini fjárlausi bóndinn á Íslandi sem er í forsvari fyrir svona virðulegan félagsskap. En þetta tengist annars svolítið sveitalífinu sem stendur mér nærri, hestamennskunni og sauðfé. Mér finnst fátt skemmtilegra en fara á afrétt á haustin, fór fyrst árið 1980 og síðan þá eru fjallferðirnar orðn- ar alls 45. Ég reikna með að ein- hverjir úr því kompaníi komi í af- mælið. Býst þó ekki við neinum fyrrverandi föngum af Litla- Hrauninu, þó að ég hafi eignast vin- áttu og trúnað þeirra marga sem vonandi hefur hjálpað þeim að kom- ast á beina braut í lífinu.“ Eru fædd undir sama tungli  Hjónin Ingunn og Ari fimmtug 1. og 3. janúar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fimmtug Ari Björn Thorarensen og Ingunn Gunnarsdóttir skera sér bita af heimareykta hangikjötinu úr sveitinni. Þau Ari Björn og Ingunn eru bæði í steingeitinni, en áhrif þess stjörnu- merkis spanna dagana 22. desember til 19. janúar. Sagt er að steingeit sé einstaklingur sem oft eigi frumkvæði að jákvæðri uppbyggingu. Sé ann- ars jarðbundin, vilji ná árangri en sé þó raunsæ og almennt íhaldssöm á góð gildi. Afneiti allskonar freistingum enda sé ábyrgðartilfinningin sterk. Þá er sagt að steingeitina skipti miklu öryggi heimilis hennar og að fjölskyldan eigi gott líf og telji hún flest til vinnandi til þess að svo megi verða. „Já, ég get samþykkt og skrifað upp á að margt af þessu eigi við um mig,“ segir Ari og Ingunn tekur hlæjandi í sama streng. Afneita allskonar freistingum JARÐBUNDNAR OG RAUNSÆJAR STEINGEITUR VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4430 I-PAD ÁSKRIFT 4430 1. Andlát: Eggert Þór Bernharðsson 2. Ellefu fengu riddarakross í dag 3. Hækkaði skyndilega flugið 4. Öflug sprenging við … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Philipp Richardsen píanóleikari verður með tónleika í Kaldalóni Hörpu í kvöld þar sem hann vefur vín- arklassík, tyrkneskan djass og suð- ræna sveiflu í órofa heild. Nýjasti geisladiskur Richardsens, með píanó- tónlist eftir Chopin, var valinn „Hljóðupptaka ársins“ í Suður-Kóreu, en eftir að hafa lokið tónleikaferð sinni um helstu tónlistarhús Evrópu, Ástralíu, Asíu og Ameríku liggur leið Richardsens nú aftur til Íslands. Tón- leikarnir hefjast kl. 19.30. Klassík, djass og tangó í Hörpu  Stórsveit Reykjavíkur fagnar nýju ári með árlegum sveiflualdartón- leikum, sem hefjast í Silfurbergi, Hörpu, sunnudaginn 4. janúar kl. 17. Þekkt lög með Benny Goodman, Artie Shaw, Jimmy Lunceford, Cab Calloway, Charlie Barnet, Les Brown, Glenn Miller, Duke Ellington og Count Basie verða leikin. Gestasöngvarar verða systkinin Páll Óskar Hjálmtýs- son og Sigrún Hjálmtýsdóttir. Söng- kvartettinn Nútímamenn kemur einn- ig fram. Stjórnandi verður Sigurður Flosason. Stórsveitin tekur fyr- ir gullöld sveiflunnar Á laugardag Vestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s, hvassast með vesturströndinni. Él víða um land, en úrkomulaust á Suðaust- urlandi og Austfjörðum. Frost 0 til 7 stig, mest í innsveitum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestlæg eða breytileg átt 3-13 m/s og víða él. Frost víða 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum norðaust- anlands. VEÐUR Hróður íslensks íþrótta- fólks berst víða. Landvinn- ingar þess hófust á síðustu öld en fjöldinn allur af ís- lensku íþróttafólki stundar íþrótt sína erlendis. Íslensk- ir þjálfarar fengu ekki mörg tækifæri erlendis á árum áður en nú hefur það aukist umtalsvert. Þjálfarar sigla nú einnig utan og nema lönd eins og sjá má á sam- antekt í íþróttablaðinu í dag. »2-3 Fjöldi Íslendinga þjálfar erlendis „Það er svo langt til 2016 að ég hugleiði það ekkert. Það er svo margt sem getur breyst í millitíðinni og mér finnst vera farsælast að ein- beita sér að núinu og því sem maður er að gera akkúrat núna,“ seg- ir Arnór Þór Gunnarsson, landsliðsmaður í hand- knattleik og marka- hæsti Íslending- urinn í efstu deildinni í Þýska- landi um þessar mundir. »2-3 Farsælast að einbeita sér að núinu Í Sögustundinni í íþróttablaði Morg- unblaðsins er „Finninn fljúgandi“, Matti Nykänen, til umfjöllunar. Nyk- änen er einn þekktasti núlifandi ein- staklingur í Finnlandi. Hann vann til fernra gullverðlauna í skíðastökki á vetrarólympíuleikunum 1984 og 1988. Eftir að ferlinum lauk hefur Nykänen tekið upp á ýmsu, misjafn- lega gáfulegu. »4 Hátt fall hjá finnsku þjóðhetjunni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.