Morgunblaðið - 02.01.2015, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015
MORGUN
Það var vetrarlegt um að litast í Laugardalnum í Reykjavík í
gær en snjórinn þakti þar hvern krók og kima. Var það í anda
veðursins í desember þegar mjög kalt var yfirleitt á landinu
og talsverður snjór og klaki á jörðu þótt síðasta ár hafi í heild
einkennst af veðursæld, var raunar það hlýjasta frá upphafi
mælinga á nokkrum landsvæðum.
Vetrarlegt í Reykjavík á nýársdag
Morgunblaðið/Ómar
Snævi þakinn Laugardalurinn tók á móti nýju ári í gær
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Vinna við átaksverkefni við ljósleið-
aravæðingu í dreifbýli hefst á þessu
ári, að því kom fram í áramótaávarpi
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar
forsætisráðherra. Á fjárlögum þessa
árs er varið 300 milljónum króna til
fyrsta áfanga í fyrirhugaðri nýrri
fjarskiptaáætlunar til fjögurra ára.
Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður
stjórnar Fjarskiptasjóðs, sagði að
beðið væri eftir niðurstöðum starfs-
hóps um alþjónustu í fjarskiptum, til
þess að hægt verði að ganga frá
nýrri fjögurra ára fjarskiptaáætlun.
Hún sagði hringtengingu ljósleiðara
á Vestfjörðum vera fyrsta á dagskrá.
Starfshópur um alþjónustu í fjar-
skiptum stefnir að því að skila til-
lögum til innanríkisráðherra um
miðjan janúar, að sögn Haraldar
Benediktssonar, alþingismanns og
formanns starfshópsins. Þá verður
hægt að ljúka við gerð næstu fjar-
skiptaáætlunar.
Hann sagði að hópurinn hefði far-
ið yfir alþjónustukerfið auk þess að
gera tillögur um hvernig bæta mætti
og styrkja fjarskiptasamband. Mið-
að er við að ná tengihraða að lág-
marki 50-60 Mb/s og vonandi enn
meiri svo hægt verði að tala um al-
vöru háhraðanet. Starfshópurinn vill
vinna að því að ljósleiðarakerfi í
dreifbýli verði komið upp á 4-5 ár-
um. Hvort sem um verður að ræða
meiri eða minni flutningshraða.
Haraldur sagði að fyrirtæki sem
keppa á fjarskiptamarkaði sjái að
mestu um þéttbýlisstaðina. Starfs-
hópurinn er að ljúka við greiningu á
kostnaði við lagningu ljósleiðara þar
sem er markaðsbrestur, þ.e. á svæð-
um sem fjarskiptafyrirtækin sinna
ekki.
Fjármagni sem varið er á fjár-
lögum til fjarskiptaáætlunar er ætl-
að að stærstum hluta að stuðla að
hringtengingu ljósleiðara á Vest-
fjörðum og einnig á utanverðu Snæ-
fellsnesi. Þá á að tengja þétt-
býlisstaði eins og Drangsnes,
Kópasker og Raufarhöfn. Verið er
að skoða nýja nálgun varðandi
hringtengingu Vestfjarða.
„Ég tel að þar sé nálgun sem við
þurfum að beita, ný kynslóð fjar-
skiptafyrirtækja,“ sagði Haraldur.
„Þeir sem eiga ljósleiðarakerfi á
hlutum svæðisins geta sameinað þau
í eitt kerfi auk þess sem það verður
lagður nýr ljósleiðari frá Brú í
Hrútafirði og alla leið í Súðavík. Þar
með verður búið að hringtengja
Vestfirði.“ Með þessu yrði tekin sú
stefna að byggja upp eitt meginkerfi
til gagnaflutninga í stað margra
kerfa. Með því spöruðust miklir fjár-
munir. Haraldur sagði að þróunin í
fjarskiptamálum víðast hvar í Evr-
ópu væri í þessa átt. Hann sagði að
Ísafjarðardjúpsverkefnið yrði próf-
steinn á hvort hægt yrði að fá hags-
munaaðila til samstarfs um slíka
uppbyggingu.
Víða um land hafa sveitarfélög,
einstaklingar eða sjálfstæð félög
byggt upp staðbundin gagnaflutn-
ingakerfi. Haraldur benti á að ríkið
hefði fjárfest í ljósleiðaratengingum
á milli orkumannvirkja bæði Lands-
virkjunar og Landsnets. Hann sagði
að starfshópurinn hefði viljað láta
meta samlegðaráhrif með samteng-
ingu þessara ljósleiðarakerfa.
Síðust en ekki síst eru þau miklu
samlegðaráhrif sem felast í því að
leggja ljósleiðara samtímis lagningu
þriggja fasa rafstrengja í jörð að
sveitabæjum. Haraldur sagði að 60-
70% af kostnaði við lagningu ljós-
leiðara væri jarðvinnan. Því fylgdi
lítill aukakostnaður að leggja ljós-
leiðara og rafstreng samtímis.
Átak í ljósleiðaravæðingu dreifbýlisins
Hringtenging ljósleiðara á Vestfjörðum er fyrst á dagskrá Nýrri nálgun beitt þar sem stefnt er
að samvinnu ólíkra hagsmunaaðila við uppbyggingu sameiginlegs gagnaflutningakerfis á ljósleiðara
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Ljósleiðari lagður Áform eru uppi um að ljósleiðaravæða sveitir landsins á
næstu árum. Átakið hefst á þessu ári og verða Vestfirðir hringtengdir.
Arnbjörg
Sveinsdóttir
Haraldur
Benediktsson