Morgunblaðið - 02.01.2015, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 7990.- m2
Nýsköpunar- og sprotasjóðurinn
Eyrir Sprotar hefur gert samning
um kaup á hlutafé í íslenska tækni-
fyrirtækinu Mure ehf.
Eyrir Sprotar er hluti af fjárfest-
ingafyrirtækinu Eyrir Invest og
hefur áður fjárfest í sprotum á borð
við Remake Electric og Saga Me-
dica.
ViðskiptaMogginn sagði frá starf-
semi Mure í sumar en fyrirtækið tók
þátt í frumkvöðlaátakinu Startup
Reykjavík. Mure þróar hugbúnað-
inn Breakroom sem í stuttu máli
skapar vinnuaðstöðu í sýndarveru-
leika, í tækjum á borð við Oculus
Rift. Þar getur starfsmaðurinn
skapað sér vinnuumhverfi eftir eigin
óskum, lágmarkað streitu og há-
markað afköst.
Í nóvember var greint frá því að
Google hygðist nota hugbúnað Mure
í tilraunaskyni á vinnustöðvum
starfsmanna bandaríska tækniris-
ans.
Hraðvaxtartækifæri
Í tilkynningu segir að Hilmar
Bragi Janusson verði stjórnarfor-
maður Mure. Hilmar Bragi situr í
fjárfestingaráði Eyris Sprota og er
forseti verkfræði- og náttúruvís-
indasviðs Háskóla Íslands.
„Svo virðist sem Mure sé að bjóða
rétta tækni á réttum tíma fyrir af-
markaða og vel skilgreinda þörf í
vinnuumhverfi. Það á að vera upp-
skrift að hraðvaxtartækifæri fyrir
hæfileikaríkt og vel menntað teymi
eins og Mure,“ segir hann.
„Það að fá Eyri Sprota inn sem
fjárfesti er gríðarlega þýðingarmik-
ið fyrir okkur. 3-D sýndarveruleiki
er loks að verða að alvöru viðskipta-
tækifæri, þetta eru virkilega spenn-
andi tímar,“ segir Diðrik Steinsson,
framkvæmdastjóri Mure, en Diðrik
stofnaði fyrirtækið í félagi við
Bjarna Rafn Gunnarsson og Anton
Heiðar Þórólfsson.
Áður hefur Mure fengið aðstoð
með aðstöðu og styrkjum hjá NMÍ
og verkefnisstyrk frá Tækniþróun-
arsjóði. ai@mbl.is
Eyrir eignast hlut í Mure
Hilmar Bragi
Janusson verður
stjórnarformaður
Diðrik
Steinsson
Hilmar Bragi
Janusson
Morgunblaðið/Golli
Framúrstefnulegt Ljósmynd sýnir hvernig sýndar-vinnurými Mure birtist
á linsum sýndarveruleika-gleraugna á borð við Oculus Rift.
Allir helstu gjaldmiðlar veiktust
gagnvart bandaríkjadal á árinu
2014 en gull var sá gjaldmiðill sem
veiktist minnst. Þetta er niðurstaða
markaðsrannsóknavefsins Hard As-
sets Investor sem kallar banda-
ríkjadalinn sterkasta gjaldmiðil lið-
ins árs en gull næststerkasta
gjaldmiðilinn.
Frá ársbyrjun til seinustu viku
desember veiktist heimsmark-
aðsverð á gulli um 2% gagnvart
bandaríkjadal. Á sama tímabili
veiktist indverska rúpían um 2,4%
gagnvart dalnum. Kínverska yuanið
veiktist litlu meira.
Nýsjálenskur dollar, breskt pund,
kanadadollar, ástralíudollar og
svissneskur franki veiktust allir um
meira en 5% en minna en 10%
gagnvart dal.
Af stóru gjaldmiðlum heimsins
veiktist rússneska rúblan mest
gagnvart dalnum eða um ríflega
40% yfir árið.
Hækkandi kaffibolli
Forbes leit einnig yfir árið og
komst að því að 2014 var ekki gott
ár fyrir margar hrávörur.
Þeir sem hafa átt gamlan kaffi-
poka uppi í eldhússkáp frá því í jan-
úar geta fagnað arðbærri fjárfest-
ingu því kaffi er sú hrávara sem
hækkaði mest árið 2014 eða um
48,6%. Washington Post bendir á að
það voru einkum þurrkar í Brasilíu
sem ýttu kaffiverðinu upp enda
landið einn af stærstu kaffiframleið-
endum heims.
Þurrkar áttu líka þátt í að ýta
verði á nautakjöti upp um 31,8% en
kakó hækkaði um 7,7%.
Af öðrum hrávörum má nefna
sykur sem lækkaði um 11,2%, plat-
ínu sem missti 11,8%, og silfur sem
seldist 18,4% ódýrara í lok ársins.
Þá ætti fatnaður að lækka í verði
því heimsmarkaðsverð á bómull fór
niður um 27,9%. Mest lækkaði hrá-
olía, um 49% á árinu.
Til samanburðar hækkaði Nas-
daq 100-vísitalan um 19,8% yfir ár-
ið, S&P 500 hækkaði um 12,8% og
Dow Jones-vísitalan styrktist um
8,9%. ai@mbl.is
AFP
Baunir Þurrkarnir í Brasilíu hafa
verið þeir mestu í áttatíu ár og
hækkað heimsmarkaðsverð á kaffi.
Kaffi
hækkaði
mest á
liðnu ári
Gull sterkara
en flestir aðrir
helstu gjaldmiðlar
Kínversk stjórnvöld birtu á fimmtu-
dag mælitölur atvinnulífsins fyrir
desember. Stendur þar upp úr að inn-
kaupastjóravísitalan (PMI) dróst
saman milli mánaða, mældist 50,1 í
desember en var 50,3 stig í nóvem-
ber.
Vísitalan er reiknuð þannig að 50
stig jafngilda engri magnbreytingu
milli mánaða, mæling undir 50 jafn-
gildir samdrætti og mæling yfir 50 er
til marks um aukningu.
Þykir innkaupastjóravísitalan til
marks um hvort hjól atvinnulífsins
snúast hægar eða hraðar.
Innkaupastjóravísitalan í desem-
ber er í samræmi við væntingar
markaðsgreinenda, samkvæmt könn-
un sem Reuters gerði.
Þrátt fyrr lækkaða innkaupa-
stjóravísitölu berast jákvæðar fréttir
úr ákveðnum atvinnugreinum. Inn-
kaupavísitalan fyrir þjónustugeirann
hækkaði milli mánaða og fór úr 53,9 í
nóvember upp í 54,1 í desember.
Þjónustugeirinn myndar um helming
kínverska hagkerfisins.
Vísitala sem mælir nýjar pantanir
lækkaði úr 50,9 stigum í nóvember
niður í 50,4 stig í desember. Útflutn-
ingsvísitalan batnaði lítillega, fór úr
48,4 stigum í nóvember upp í 49,1 stig
í desember.
Reuters segir mælingarnar í des-
ember auka líkurnar á að ráðamenn í
Beijing muni grípa til frekari aðgerða
til að örva hagkerfið svo að aftra megi
því að dragi harkalega úr hagvexti.
Á liðnu ári beittu stjórnvöld ýms-
um brögðum til að koma í veg fyrir að
hægði um of á hjólum atvinnulífsins.
Þannig voru stýrivetir lækkaðir í nóv-
ember, bankakerfið fékk fjármagns-
innspýtingu og slakað var á reglu-
verki fjármálageirans til að ýta undir
lánveitingar. Þá hefur hag-
skipulagsráð verið duglegt við að
samþykkja framkvæmdir til að
byggja grunninnviði landsins.
ai@mbl.is
AFP
Afköst Starfsmaður bílaverksmiðju í bænum Zouping. Innkaupastjóra-
vísitalan í desember sýnir merki um að hægt hafi á atvinnulífinu.
Kínverska innkaupastjóravísi-
talan fór niður í desember
Greinendur búast við að stjórnvöld grípi til enn meiri örvunaraðgerða