Morgunblaðið - 02.01.2015, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 2015
Poppdrottningin Madonna á ekki sjö
dagana sæla. 14 lögum af væntanlegri
plötu hennar, Rebel Heart, hefur ver-
ið lekið á netið til viðbótar þeim 13
sem lekið var fyrir jól, skv. vefnum
Billboard. Lögin eru ekki fullkláruð
heldur prufuupptökur og hefur Ma-
donna líkt lekanum við hryðjuverk og
„listræna nauðgun“. Meðal þeirra
laga sem síðast var lekið er lag sem
Madonna vann með Pharrell Willi-
ams og nefnist „Back That Up (Do
It)“.
Í frétt dagblaðsins Guardian um
lekann segir að stuldurinn á upptök-
unum sýni enn og aftur hversu erfitt
það sé orðið varðveita hugverk og
persónulegar upplýsingar fyrir tölvu-
þrjótum og er tölvuárásin á Sony
Pictures nefnd því til stuðnings.
Madonna segir í samtali við Guard-
ian að mögulega hafi hennar eigin
tölva orðið fyrir árás hakkara, þ.e.
ekki tölva einhvers sem kemur að
gerð plötunnar. Það sé í raun meira
áfall fyrir hana sem listamann að
verða fyrir slíkum þjófnaði en ef brot-
ist væri inn til hennar og málverki
stolið.
Þjófnaður Madonna er að vonum
miður sín yfir því að upptökum fyrir
næstu plötu hennar, Rebel Heart,
hafi verið lekið á netið.
14 upptökum til við-
bótar lekið á netið
AFP
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þetta eru einleiksfantasíur sem ég
spila á viðarflautu. Hljómurinn er því
aðeins innilegri en ef flautan væri úr
silfri eða gulli,“ segir flautuleikarinn
Melkorka Ólafsdóttir en hún gaf ný-
verið út einleiksplötu með Tólf fant-
asíum Georgs
Philipps Tele-
mann fyrir flautu.
„Þetta eru verk
sem ég hef unnið
með í mörg ár, við
Elfa Rún Krist-
insdóttir fiðluleikari ferðuðumst með
verkin um landið sumarið 2008 og
fluttum þau í kirkjum,“ segir hún.
Þess má geta að tónleikarnir voru til-
nefndir til Menningarverðlauna DV
sem tónleikar ársins og voru meðal
tónleika ársins að mati gagnrýnenda
Morgunblaðsins.
Tók nýverið stóra beygju
Þjóðverjinn Georg Philipp Tele-
mann var með afkastamestu tón-
skáldum átjándu aldarinnar. Hann
lét eftir sig fjölda verka og má þar
nefna Tólf fantasíur fyrir einleiks-
flautu án bassa sem komu út í Ham-
borg í kringum 1733. Í fantasíunum
þykir Telemann sýna einstakt vald
yfir laglínum, formum og hljómrænu.
„Tónlistin er undurfögur og tíma-
laus þrátt fyrir að hún sé skrifuð á
átjándu öld. Hún á mjög mikið erindi
í dag og það er ljóst að Telemann hef-
ur verið virkilega hugmyndaríkur
maður. Hann spilaði til dæmis á alls-
konar hljóðfæri og skar út prentið
fyrir nóturnar sínar sjálfur. Hann
hefur verið algjör töffari,“ segir Mel-
korka kímin.
„Það var líka óvenjulegt að skrifa
einleiksstykki fyrir flautu, á þessum
tíma snerist allt um að búa til hljóma.
Það er náttúrlega ekki hægt að búa
til hljóma með aðeins einu blásturs-
hljóðfæri, það getur bara framkallað
einn tón í einu. Tónsmíðar hans sner-
ust mikið um að beita brellum til að
það kæmi út hljómræna þrátt fyrir að
aðeins ein nóta væri spiluð í einu.
Flétturnar eru því magnaðar,“ segir
flautuleikarinn.
Melkorka er mjög reynd í flautu-
leik en á Íslandi lærði hún m.a. hjá
Bernharði Wilkinssyni, Hallfríði
Ólafsdóttur og Maríu Cederborg.
Hún lauk jafnframt prófum frá
Listaháskóla Íslands og Konserva-
toríunum í Haag og Amsterdam. Hún
stundaði einnig meistaranám við Gu-
ildhall School of Music and Drama í
London og hlaut þar til að mynda
James Galway-verðlaunin. Melkorka
lærði líka hjá Patricks Gallois í París
og lauk þar Premier Prix og Prix de
Exellence prófum með hæstu ein-
kunn.
„Ég tók nýverið beygju í mínum
ferli. Ég hef lært og spilað á flautu í
tuttugu ár en ákvað síðasta vor að
taka við stöðu verkefnastjóra í
Hörpu. Lífið snýst þannig ekki leng-
ur bara um flautuna þó ég sé samt
ekki hætt að spila,“ segir Melkorka
en hún segir að platan hafi komið til
þar sem hún vildi skilja eitthvað eftir.
Með því væru verkin líka aðgengi-
legri fleirum. Þess má geta að Mel-
korka er einnig að ljúka viðskipta-
fræðinámi í fjarnámi frá Edinborg.
Vitundarvakning í tónlistinni
Melkorka hefur komið fram með
ýmsum hljóðfærahópum og má þar
nefna Orkester Norden, Caput, Fíl-
harmóníuhljómsveit Lundúna og
Concertgebouw-hljómsveitina. Hún
var auk þess einn stofnenda kamm-
ersveitarinnar Ísafoldar og hefur frá
árinu 2006 sinnt afleysingum í Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og spilað einleik
með SÍ í þrígang. Hún hefur þar að
auki tekið þátt í ýmsum verkefnum
hér og þar, meðal annars í Bandaríkj-
unum og í Japan. Hún segir ýmislegt
vera að breytast í tónlistarlífinu á Ís-
landi.
„Fólk er að gera sér grein fyrir því
að það er ekkert svo auðvelt eða
skemmtilegt að flokka allt niður í ein-
hver box. Það er líka að átta sig betur
og betur á því að það þarf ekki að
vera sérfræðingar í klassískri tónlist
til að kunna að meta hana. Ég held að
fólk sé yfirhöfuð óhræddara við að
gefa ýmsu séns núna en áður. Tónlist-
arfólkið sjálft er líka iðnara við að
setja tónlist í allskonar samhengi. Ég
hlusta til að mynda sjálf á allskonar
tónlist og ég trúi því að ef maður set-
ur sjálfan sig og upplifanir í eitthvert
box þá sé maður um leið búinn að
loka á ýmislegt sem lífið hefur upp á
að bjóða,“ segir hún.
Listin finnur sína leið
Eins og áður sagði var Melkorka
ráðin verkefnastjóri tónlistar í Hörpu
síðasta vor.
„Það eru ákveðin viðbrigði og auð-
vitað smá spekileki hvað tónlistina
varðar. Ég get ekki gert allt það sem
ég hefði annars getað gert í tónlist-
inni eftir að ég tók við starfinu. Á
móti kemur að ég hef meira starfs-
öryggi og staðan er þess eðlis að
menntun mín og reynsla nýtist þar
líka og vonandi get ég hjálpað til þess
að koma listinni áfram á annan hátt.
Það er orðið þannig á Íslandi í dag að
það er mjög erfitt að standa utan við
Sinfóníuhljómsveitina ef maður ætlar
að lifa af því að spila. Í SÍ er ráðið í
stöður til lífstíðar og því þurfa ungir
tónlistarmenn að vera heppnir til að
hitta á lausar stöður þegar og ef þeir
koma heim úr námi. Styrkjaum-
hverfið er líka orðið mjög breytt frá
því sem var fyrir nokkrum árum, það
er búið að skera svo mikið niður. En
ég hef trú á því að manneskjan þurfi á
listinni að halda og að hún muni alltaf
lifa af hræringar í pólitík og sam-
félagi. Hún finnur sínar leiðir,“ segir
Melkorka að lokum.
Viðarflautan
veit á gott
Melkorka Ólafsdóttir gaf nýverið út
Tólf fantasíur fyrir einleiksflautu
Ljósmynd/Margrét Bjarnadóttir
Spegill Dansarinn Margrét Bjarnadóttir sá um plötuumslagið en hún hefur einnig fengist við mynd- og ritlist.
12
16
L
THE HOBBIT 3 3D (48R) Sýnd kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 - 11
NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 2 - 5 - 8
BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 1:50
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
7
48
RAMMA
STÆRSTA OPNUNARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU