Morgunblaðið - 20.01.2015, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.01.2015, Qupperneq 6
Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is „Ég hef enga reynslu sjálfur en hef samt sem áður trú á þessu,“ segir Bjarni Hilmar Jónsson, annar eig- enda netverslunarinnar BSV, sem fór nýlega að bjóða upp á svokall- aðan hrotubana. Um er að ræða hring sem settur er á litla fingur fyr- ir svefninn, og ætlaður er til þess að stöðva eða minnka hrotur. Bjarni segist hafa lesið töluvert um hringinn, sem byggður er á æva- fornri kínverskri speki, áður en hann ákvað að flytja hann inn. Sam- bærilegir hringar eru seldir víða í Evrópu og Bandaríkjunum, og virð- ast fjölmargir notendur þeirra fara fögrum orðum um virknina, þrátt fyrir að sumir séu á öðru máli. Lítill hnúður þrýstir á taugar Hringurinn, sem er gerður úr áli og krómhúðaður, fæst í þremur stærðum. Lítill hnúður innan á hon- um á að sögn Bjarna að þrýsta á taugar og verði það til þess að hrot- ur minnki. „Eins og vitað er er mikið af taugum í fingrunum og þessi hnúður þrýstir á ákveðna taugaenda sem stöðva eða að minnsta kosti minnka hrotur, samkvæmt því sem ég hef lesið,“ segir Bjarni. Þá á hringurinn að hjálpa vöðvum í hálsinum, draga úr bólgum í ennis- og nefholi og draga úr slímmyndun í nefi að sögn framleiðenda. „Ég er ekki að blekkja fólk“ „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn án þess að vera óheiðarlegur þá get ég ekki ábyrgst það að ekki sé að- eins um sálfræðilega virkni að ræða,“ segir Bjarni, en bætir við að ef fólk finni fyrir einhverri jákvæðri virkni yfirhöfuð sé markmiðinu náð, hvort sem hún sé sálfræðileg eða líf- fræðileg. „En fólk sem hrýtur mikið er tilbúið að gera nánast hvað sem er til að losna við þetta.“ Hann segist hafa séð hringinn til sölu á Ebay í Bandaríkjunum og Bretlandi, og því haft trú á virkni hans. „Ég renndi svolítið blint í sjó- inn með því að taka þetta inn og bjóða þetta en ég tel mig ekki vera að blekkja fólk.“ 150 keypt hringinn hér á landi Netverslunin er sú fyrsta sem vit- að er til að bjóði upp á hringinn hér á landi, en yfir 150 manns hafa nú þeg- ar fest kaup á vörunni. Verðið er 3.980 krónur, en mestur hluti söl- unnar fór fram í gegnum Hópkaup, sem buðu hringinn á 40% afslætti, eða á 2.390 krónur. „Það var hlegið að mér hjá Hóp- kaupum fyrst og af fólki í kringum mig en þetta seldist upp á mettíma,“ segir Bjarni. „Ég hélt það myndu kannski seljast um 30-40 stykki en svo seldust upp öll 150 stykkin á mettíma,“ bætir hann við og segir auk þess nokkur stykki hafa selst í gegnum netverslun hans. Endurgreitt ef vara virkar ekki Að sögn Bjarna verða hringarnir sendir út til kaupenda í dag, og er því ekki komin nein reynsla á þá hér á landi ennþá. Þá segir hann nokkra hafa spurt hvort varan verði end- urgreidd ef hún virkar ekki sem skyldi, „og ég sagði að sjálfsögðu já,“ segir hann. Samkvæmt frétt á vef breska mið- ilsins Daily Mail hafa allt að 85% notenda hringsins þar í landi sagt hann virka. Hringurinn, sem á ensku nefnist Good Night Anti-Snoring Ring, er seldur í apótekum og heilsuverslunum um landið, og virð- ist vera orðin algeng lausn þeirra sem hrjóta mikið, þó hver dæmi fyr- ir sig um virkni hans. Selur hring sem á að stoppa hrotur  Hrotubaninn seldist upp á mettíma  Yfir 150 manns hér á landi hafa fest kaup á vörunni sem á að stöðva eða minnka hrotur  „Ég tel mig ekki vera að blekkja fólk,“ segir innflytjandi hringanna Ljósmynd/Af vefsíðu BSV netverslunarinnar Hrotubaninn Á innanverðum hringnum er lítill hnúður sem á að sögn Bjarna að þrýsta á taugar og það að verða til þess að hrotur minnki. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015 Í TROMSÖ Baldur Arnarson baldur@mbl.is Verðhrunið á olíu að undanförnu var sem rauður þráður á fyrsta degi ráð- stefnunnar Arctic Frontiers í Tromsö í gær. Stjórnmálamenn, fræðimenn og fulltrúar olíurisa véku að því í erindum sínum. Verðhrunið geti bæði haft efnahagsleg og heims- pólitísk áhrif. Hversu langvinn þessi áhrif verða treysti enginn sér til að spá fyrir um. Það sjónarmið kom fram í hring- borðsumræðum á óformlegri opnun ráðstefnunnar sl. sunnudag, sem sagt var frá á mbl.is í gær, að vegna olíuhrunsins sé olíu- og gasvinnsla á erfiðum svæðum á norðurskauts- svæðinu ekki lengur arðbær. Meðal ræðumanna þá var Jens Ulltveit-Moe, forstjóri fjárfestinga- sjóðsins Umoe, sem sagði að leyfi til olíu- og gasvinnslu í Barentshafi væru „leyfi til að tapa fjármunum“. Sum leirsteinsverkefni eru ekki lengur arðbær Spurður um það sjónarmið að olíu- hrunið hafi gjörbreytt fýsileika olíu- vinnslu á erfiðum svæðum við Noreg sagði Børge Brende, utanrík- isráðherra Noregs, að mikil lækkun olíuverðs hefði margvíslegar afleið- ingar. „Verð á olíu sveiflast til og frá. Eins og við höfum séð að undanförnu getur það auðveldlega lækkað. Það getur líka auðveldlega hækkað aftur. Mörg verkefni um vinnslu olíu úr leirsteini eru ekki lengur hagkvæm [vegna mikillar lækkunar olíuverðs]. Ef fallið verður frá þeim á næstu ár- um mun það hafa áhrif. Eins og ég gat um í ræðu minni tel ég að eft- irspurn eftir orku muni aukast í framtíðinni. Það er staðreynd að 1,3 milljarðar manna hafa ekki aðgang að raforku. Þá má geta þess að um 2 milljarðar manna búa við takmarkaðan aðgang að raforku og án raforku verður eng- in efnahagsleg þróun. Þörfin fyrir raforku mun því aukast á næstu ára- tugum ... Hvað varðar fjárfestingu í framtíðinni er það undir fjárfestum komið en ekki Noregi sem ríki að taka þá áhættu. Það er undir olíu- og gasiðnaðinum komið,“ sagði Brende í samtali við Morgunblaðið. Liggur í orðum hans að lögmál framboðs og eftirspurnar muni með tímanum leiða til hærra olíuverðs. Tim Dodson, aðstoðarforstjóri Statoil, var einnig meðal ræðu- manna. Hann sagði aðspurður að mikil lækkun olíuverðs gæti leitt til þess að hætt yrði við nýjar fjárfest- ingar á svæðum þar sem olíuleit er dýr. Hann sagði Statoil ekki hafa áhuga á Noregshluta Drekasvæðisins Ian Storey, félagi við rannsókn- arstofnunina Institute of Southeast Asian Studies í Singapúr, sagði í ræðu sinni að refsiaðgerðir Vestur- landa gegn Rússum hefðu haft þau áhrif að viðskiptaveldin í Suðaustur-Asíu, þ.e. Kína, Japan og Suður-Kórea, hefðu sýnt aukinn áhuga á að koma að olíuleit og vinnslu á norðurskautssvæðinu. Refsiaðgerðirnar hafa haft gífurleg áhrif í Rússlandi Refsiaðgerðirnar hafi haft gífurleg áhrif í Rússlandi og jafnvel haft meiri áhrif en Vesturlöndin reiknuðu með. Verðhrun á olíu hafi veikt rússneska hagkerfið og skert svigrúm Rússa til að auka áhrif sín á alþjóðavettvangi í gegnum olíugróða. Storey segir aðspurður að refsiað- gerðirnar hafi styrkt samstarf Rússa og Kínverja í orkumálum. Hann telur ekki að verðhrun á olíu að und- anförnu muni draga úr áhuga Kín- verja á olíuleit og vinnslu á norð- urskautssvæðinu. Kínverjar hafi nóg fjármagn og hugsi orkumálin til langs tíma, 20-30 ára, og leggi áherslu á að minnka hlut innfluttrar olíu frá Miðausturlöndum. Hvað varðar norðausturleiðina, siglinga- leiðina sem stytt getur siglingatím- ann milli austurstrandar Kína og Evrópu um tugi prósenta, telur Stor- ey að borið hafi á ýkjum í fjölmiðlum. Ekki sé nóg að horfa til tímasparn- aðar. Dýrt sé að sigla þessa leið, auk þess sem hún sé ekki fær stórum gámaflutningaskipum. Storey segir skipasmíði stóra at- vinnugrein í Singapúr, líkt og í Suð- ur-Kóreu. Áform fyrirtækja í Singa- púr á að þróa og smíða olíuborpalla fyrir norðurskautssvæðið séu í upp- námi vegna olíuhrunsins. Zha Daojiong, prófessor við Pek- ing-háskóla, lét þess getið í erindi sínu að rannsóknarskipið Snædrek- inn hefði fengið óheppilegt nafn. Nafngiftin fæli enda í sér ógn. Skipið kom til Reykjavíkur 2012. Olíuhrunið getur frestað vinnslu  Utanríkisráðherra Noregs segir fjárfesta munu skera úr um hvort farið verður í áhættusöm olíu- verkefni  Sérfræðingur segir verðhrun á olíu hafa styrkt samband Rússa og Kínverja í orkumálum Sun Xiansheng, einn fram- kvæmdastjóra kínverska olíu- risans CNPC, sagði að olíuverð kynni að haldast lágt á næstu árum. Hins vegar væri útlit fyrir að eftirspurn eftir olíu og gasi verði orðin meiri en framboðið árið 2020. Hún verði þá ígildi 8,07 milljarða tonna af olíu en framboðið 8,05 milljarðar tonna. Hlutur jarðefnaeldsneytis í orkuframboði heimsins muni á tímabilinu 2015-2035 lækka ur 86,3% í 81,6%. CNPC er fjórða stærsta fyrirtæki heims, sam- kvæmt tímaritinu Fortune. Sun vildi aðspurður ekki tjá sig um hvort viðskiptaþvinganir Vesturlanda gegn Rússum kynnu að hafa áhrif á viðskipta- samband Rússa og Kínverja. Eftirspurnin senn meiri en framboðið OLÍUVERÐIÐ Ljósmynd/Pernille Ingebrigtsen/Arctic Frontiers 2015 Børge Brende Mikil lækkun olíuverðs mun hafa margvíslegar afleiðingar í för með sér. Ljósmynd/Pernille Ingebrigtsen/Arctic Frontiers 2015 Ráðstefnan Albert prins af Mónakó var meðal ræðumanna í Trömsö.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.