Morgunblaðið - 20.01.2015, Blaðsíða 16
FLUTNINGAR TIL NORÐURLANDANNA EFTIR HRUN16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015
Ljósmynd/Karin Beate Nøsterud-norden.orgLjósmynd/Karin Beate Nøsterud-norden.org Ljósmynd/Eivind Sætre-norden.org
FRÉTTASKÝRING
IngveldurGeirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Erfitt er að segja nákvæmlega til
um hversu margir Íslendingar sæki
sér vinnu annars staðar á Norður-
löndunum, til lengri eða skemmri
tíma enda ekki haldið sérstaklega
utanum um menntun og bakgrunn
þeirra sem flytja af landi brott.
Félagsmönnum Rafiðnaðarsam-
bands Íslands (RSÍ) fækkaði tölu-
vert strax eftir efnahagshrun en
ekki er vitað nákvæmlega hversu
margir þeirra hafa farið til starfa er-
lendis. Fækkunin gæti líka tengst
öðrum þáttum eins og verklokum
stórra framkvæmda á Austurlandi.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður RSÍ, telur þó að inn í
fækkunina spili hversu margir fóru
til vinnu erlendis. Félagsmönnum
RSÍ fækkaði á þessum tíma um
1.000 manns og er vitað að á milli
500-600 manns hafa komið til RSÍ og
fengið réttindi staðfest/þýdd yfir á
annað tungumál, langflestir rafvirkj-
ar.
„Það er mjög algengt að menn
geri það til þess að komast til vinnu í
Noregi en þar er stofnun sem kallast
DSB og þurfa allir sem ætla að
starfa á norskum vinnumarkaði við
löggiltar iðngreinar að fara í gegn-
um hana og fá réttindi samþykkt.
Hvað margir hafa fengið réttindi sín
staðfest segir samt ekkert til um
hversu margir fóru raunverulega því
margir gætu hafa farið beint og
fengið réttindi staðfest án okkar að-
komu og einhverjir ekki látið af því
verða að fara til starfa erlendis.
Einnig þarf eingöngu að fara í þetta
ferli einu sinni, í upphafi,“ segir
Kristján.
Hópur félagsmanna RSÍ sem
ferðast á milli landa til að sækja
vinnu, og flytur ekki endilega búferl-
um, virðist vera töluvert stór, að
sögn Kristjáns. „Tilfinning okkar er
að langflestir hafi farið árið 2009-11
en við heyrum af því enn í dag að
mjög margir eru við vinnu í Noregi
og ferðast á milli á milli vinnutarna.“
Menntun á breiðum grunni
Kristján segir að þeir sem sæki
vinnu erlendis, og þá fyrst og fremst
innan Norðurlandanna, séu flestir
með sveinspróf í rafvirkjun. Raf-
veituvirkjar sæki þó nokkuð vinnu
við raforkukerfi Norðmanna en sá
hópur sé nokkuð fámennur. Félags-
menn Rafiðnaðarsambands Íslands
séu mjög eftirsóttir starfskraftar
annars staðar á Norðurlöndum og
geta gengið í flest ef ekki öll störf í
rafiðnaði þar ytra.
„Það sem einkennir íslenska raf-
iðnaðarmenn og gerir það að verk-
um að þeir eru eftirsóttir er það að
menntun þeirra byggist á mjög
breiðum grunni og er djúp þ.e.a.s.
menn þekkja fræðin mjög vel og eru
lagnir við að nýta sér fræðilega
menntun yfir í verklega. Ég hef oft
heyrt þess getið að íslenskir rafiðn-
aðarmenn séu jafnvel fengnir til
stjórnunarstarfa á þeim verkstöðum
sem þeir starfa á. Menntun okkar
manna er alþjóðleg sem gerir það að
verkum að þeir geta farið til starfa
þar sem þörf er á starfsafli og launin
eru góð.“
Kristján segist ekki heyra á þeim
félagsmönnum RSÍ sem hafi flutt út
að þeir séu á leið heim aftur, en það
byggist yfirleitt á því að stór-
fjölskyldan hefur flust út. Staðan á
íslenskum vinnumarkaði fyrir raf-
iðnaðarmenn er góð og eru atvinnu-
rekendur í erfiðleikum með að fá
rafiðnaðarmenn til starfa. „Ef vinnu-
markaður fer að glæðast enn frekar
með stærri verkefnum er ljóst að við
munum lenda í vandræðum með að
manna slík verkefni nema þá að laun
hér heima verði samkeppnishæfari
við það sem gerist t.d. í Noregi.“
Verk- og tæknifræðingar
Að sögn Árna B. Björnssonar,
framkvæmdastjóra Verkfræðinga-
félags Íslands (VFÍ) og Tæknifræð-
ingafélags Íslands (TFÍ), fjölgaði í
hópi þeirra verkfræðinga og tækni-
fræðinga sem kusu að flytja til Nor-
egs og hefja þar störf eftir árið 2008.
Hlutfallslega fjölgaði íslenskum
tæknimönnum í Noregi hratt frá
byrjun árs 2009. Einnig sóttu íslensk
fyrirtæki inn á markaðinn í Noregi,
einkum verkfræðistofur og arki-
tektastofur.
Í lok ársins 2012 voru 60 íslenskir
verkfræðingar á skrá norsku hag-
stofunnar með fasta búsetu í Noregi.
Sama tala fyrir tæknifræðinga var
117 og fyrir aðra skylda hópa s.s.
arkitekta, byggingarfræðinga eðl-
isfræðinga o.fl. var talan 76. Við
þetta bætast starfsmenn íslenskra
fyrirtækja sem vinna í Noregi um
lengri eða skemmri tíma án fastrar
búsetu.
Íslenskir verkfræðingar og tækni-
fræðingar hafa verið eftirsóttir
starfskraftar í Noregi og fáir þeirra
sem flutt hafa til Noregs hafa snúið
heim, að sögn Árna.
Eftirsóttir starfskraftar erlendis
Félagsmönnum RSÍ fækkaði um þúsund eftir efnahagshrun Þeir sem sækja vinnu til annarra
Norðurlanda eru flestir með sveinspróf í rafvirkjun Fjöldi íslenskra verk- og tæknifræðinga í Noregi
Morgunblaðið/Golli
Vinna Íslenskir iðnaðarmenn eru eftirsóttir starfskraftar erlendis.
FLESTIR Í NOREGI Samkvæmt
norrænum hagtölum bjuggu
fleiri Íslendingar í Noregi en í
Danmörku og Svíþjóð í byrjun
síðasta árs.
Í Noregi bjuggu þá 8.710 Íslend-
ingar, 4.644 karlar og 4.066 kon-
ur. Íslendingar í Danmörku voru
8.285, 3.931 karlar og 4.354
konur. Í Svíþjóð bjuggu 4.537 Ís-
lendingar í byrjun ársins 2014,
þar af voru 2.308 karlar og 2.229
konur.
Ljósmynd/S.Sigfusson-norden.org
Tökum að okkur trjáklippingar,
trjáfellingar og stubbatætingu.
Vandvirk og snögg þjónusta.
Sími 571 2000
www.hreinirgardar.is