Morgunblaðið - 20.01.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.01.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég gerði þetta nú barafyrir sjálfa mig. Ég hafðiverið í hörkuvinnu ímörg ár og langaði að gera eitthvað skapandi, eitthvað sem ég hefði áhuga á. Ég sé ekki eftir því, þetta hefur verið frá- bært,“ segir Anna Ingimarsdóttir þegar hún er spurð hvers vegna hún valdi að fara í nám í Ljós- myndaskólanum fyrir tveimur og hálfu ári, en hún útskrifast ásamt níu öðrum úr skólanum í þessum mánuði. Þau opna útskriftarsýningu á verkum sínum í Hörpu nk. laug- ardag, 24. janúar, kl. 15. „Þetta er mjög mikið verklegt nám þar sem fólk fær að skapa sinn eigin heim. Hver og einn hefur fengið að finna sinn hljóm og vett- vang í ljósmynduninni.“ Námskeið í Skotlandi Anna flutti ung að heiman, hún fór aðeins sautján ára til Hollands og vann þar sem aupair og þaðan lá leiðin til Skotlands. „Ég sótti nokkra kúrsa í ljósmyndun þegar ég var í Skotlandi, en ljósmyndaá- huginn hefur alltaf verið fyrir hendi, alveg frá því ég var lítil,“ segir Anna sem er með tvö verkefni á útskriftarsýningunni, annars veg- ar þrívítt landslagsklippiverk og hins vegar dýraportrett, af hundum og köttum. „Ég tók það aðeins lengra og fór út í vöruþróun og lét framleiða fyrir mig púða með dýraljós- myndum og líka samstæðuspil fyrir börn, þar sem myndirnar eru af hundum og köttum. Spilið hefur heldur betur slegið í gegn.“ Fuglar næsta verkefni Anna segist hafa byrjað að mynda ketti árið 2012 fyrir sýningu skólans eftir fyrsta árið í náminu. „Þá vaknaði þessi áhugi hjá mér að mynda dýr og ég bætti fljótlega við hundum í fyrirsætuhópinn og ég ætla mér líka að takast á við að mynda fugla, það verður næsta ögr- andi verkefni.“ Anna segir að það sé ekki auð- velt að mynda dýr; þau vilji ekki vera kyrr þegar þau sitja fyrir á mynd og skilji ekki mannamál, svo það sé ekki hægt að leiðbeina þeim. „Þetta er ekki ósvipað og smá- barnamyndatökur, þetta er stuttur og snarpur tími, kannski tuttugu mínútur. Þegar ég var að mynda kettlinga sem voru snarir í snún- Gæludýra- myndatökur eru ögrandi Dýrin skilja ekki mannamál og vilja ekki endilega vera kyrr lengi í einu þegar þau eru látin sitja fyrir í myndatöku. Einmitt þess vegna finnst Önnu Ingi- marsdóttur skemmtilega ögrandi að takast á við slík verkefni og hún ætlar m.a. að einbeita sér að gælu- dýraportrettum nú að lokinni útskrift úr Ljósmynda- skólanum. Sýning á verkum útskriftarnemanna tíu verður opnuð um næstu helgi í Hörpu. Ljósmynd/Anna Ingimarsdóttir Hvolpur Þessi var sjö vikna og var alltaf að leka niður í myndatökunni. Anna Hún er heilluð af dýrum og nýtur þess að taka myndir af þeim. Árleg garðfuglaathugun Fuglavernd- ar verður um næstu helgi, dagana 23. til 26. jan. Framkvæmd athugunar- innar er einföld, það eina sem þátt- takandi þarf að gera er að fylgjast með garði í klukkutíma einhvern þessara daga. Viðkomandi þarf að skrá hjá sér hvaða fugla hann sér og mesta fjölda af hverri tegund á með- an athugunin stendur yfir, þ.e. þá fugla sem eru í garðinum, en ekki þá sem fljúga yfir. Gott er að hefja undirbúning taln- ingar nokkrum dögum áður með því að hefja daglegar fóðurgjafir til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóð- ur hentar hverri fuglategund. Upplýsingar um fóðrun garðfugla er hægt að finna á vefsíðum um „fóðrun“, á garðfuglavefnum og einnig í Garðfuglabæklingi Fugla- verndar sem fæst á skrifstofunni eða má panta á netfanginu: fuglavernd@fuglavernd.is eða í síma 5620477. Að lokinni athugun skal skrá nið- urstöður með því að sækja eyðublað sem finna má á vefsíðu Fuglaverndar, fuglavernd.is Vefsíðan www.fuglavernd.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Fegurð Fugl gæðir sér á beri. Gaman að telja fugla í görðum Kvenréttindafélags Íslands er með far- andsýningu sem heitir Á leið um land- ið, en hún var gerð vegna 100 ára af- mælis kosningaréttar íslenskra kvenna. Snorrastofa og Borgarbyggð hafa tekið á móti sýningunni sem stendur í Bókhlöðu Snorrastofu, en hún mun í janúarlok halda för sinni áfram til 11 annarra sveitarfélaga á landinu og enda í Reykjavík í desember. Í kvöld kl. 20.30 verður kvöld- dagskrá í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti í tilefni þessarar sýningar, þar sem konur í bókmenntum koma við sögu. Aðalheiður Guðmundsdóttir flytur erindið Skjaldmeyjar og sköss, en þar fjallar hún um konur í karlaveldi forn- aldarsagna Norðurlanda. Helga Kress flytur erindið „… og var hinn mesti kvenskörungur“ en þar fjallar hún um borgfirskar konur í ís- lenskri sagnahefð. Fulltrúar Kvenréttindafélags Íslands og Borgarbyggðar flytja líka ávörp. Allir velkomnir og að erindum lokn- um verða umræður og kaffiveitingar. Dagskrá í Bókhlöðu Snorrastofu í kvöld Skjaldmeyjar og sköss og líka hinir mestu kvenskörungar Morgunblaðið/Ómar Flott Þessi kvenskörungur mætti á Víkingahátíð í fyrra og tók þátt í bardögum. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. www.danco.is Heildsöludreifing Eingöngu selt til fyrirtækja Ljúffengt... Danco hefur allt til að auðvelda veitingarnar hvort sem er í veisluna, mötuneytið, kokteilboðið, skólaeldhúsið, alls staðar. Forréttir, pizzur, smáréttir, forskornar tertur og fleira. ...hagkvæmt og fljótlegt Veisluþjónustur Veitingahús - Mötuneyti Fjölbreytt úrval af matvöru og veisluréttum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.