Morgunblaðið - 20.01.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.01.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015 VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 30% brotaþola segja aldrei frá því að þeir hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Bolir á útsölu Áður kr. 8.900 | Nú kr. 4.450 Litir: Blátt og rautt Eir, hjúkrunarheimili og öryggisíbúðir, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. ( 522 5700 milli 8:00 og 16:00 virka daga. Öryggisíbúðir Eirar til leigu Mosfellsbæ og Reykjavík Vandaðar öryggisíbúðir Eirar til leigu í Mosfellsbæ og Reykjavík. Eirborgir, Fróðengi 1-11, Grafarvogi, Reykjavík. Eirarhús, Hlíðarhúsum 3-5, Grafarvogi, Reykjavík. Eirhamrar, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ. Nánari upplýsingar í síma 522 5700 virka daga milli kl. 8 og 16 • Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðar- fullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti búið lengur heima. • Öryggisvöktun allan sólarhringinn. • Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð. • Góðar gönguleiðir í næsta nágrenni. STÓRÚTSALA Laugavegi 63 • S: 551 4422 Sparidress - Vetrardragtir - Peysur - Blússur - Bolir KLASSÍSK GÆÐAVARA FRÁ GERRY WEBER TAIFUN - GARDEUR - CREENSTONE FUCHS SCHMITT O.FL. O.FL. www.laxdal.is ENN MEIRI AFSLÁTTUR 40-50% afsláttur Húsið er samtals 286,8 fm að stærð þar af er bílskúr skráður 22 fm. Húsið er tvær hæðir og kjallari og er upprunalegt að miklu leyti það er steinað og með harðviðar gluggum. Í kjallara er tveggja herbergja búð, þvottahús og geymslu. Á aðalhæð eru tvær stofur, eldhús, herbergi og snyrting. Á efri hæð eru 3-4 herbergi og bað. Frábær staðsetning. Húsið er laust nú þegar. Sölumenn sýna. V. 88,9 m. Bergstaðastræti 86, 101 Reykjavík Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Samkeppniseftirlitið af kröfum olíufélaganna Skeljungs, Olís og Kers (áður Olíufélagið) um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá árinu 2005 yrði felldur úr gildi. Fram kemur í tilkynningu Sam- keppniseftirlitsins að forsaga málsins sé sú að samkeppnisráð hafi 28. októ- ber 2004 komist að þeirri niðurstöðu að olíufélögin hefðu framið alvarleg brot á samkeppnislögum og ákveðið í framhaldinu að leggja verulegar sektir á félögin. Olíufélögin hafi hins vegar kært ákvörðun samkeppnis- ráðs til áfrýjunarnefndar samkeppn- ismála sem hafi kveðið upp úrskurð í lok janúar 2005. Nefndin hafi staðfest í öllum atriðum niðurstöðu sam- keppnisráðs og talið hæfilegt að sekt- irnar næmu samtals 1,5 milljörðum króna. Ólögmætt samráð staðfest „Síðar á árinu 2005 skutu olíu- félögin úrskurði áfrýjunarnefndar til héraðsdóms Reykjavíkur og féll dóm- ur í því máli í mars 2012. Í þeim dómi var staðfest að félögin hefðu haft með sér ólögmætt samráð, en úrskurður áfrýjunarnefndar var þrátt fyrir það felldur úr gildi vegna þess að dóm- urinn taldi að brotið hefði verið á and- mælarétti félaganna,“ segir í tilkynn- ingunni. Samkeppniseftirlitið hafi ekki get- að fallist á þá niðurstöðu og því áfrýj- að málinu til Hæstaréttar Íslands sem hafi vísað máli félaganna frá dómi vegna verulegra galla á mála- tilbúnaði þeirra. Úrskurður stóð óhaggaður „Að mati Hæstaréttar var ágallinn það alvarlegur að hann varðaði frávís- un málsins í heild sinni frá dóm- stólum,“ segir ennfremur í áður- nefndri tilkynningu. Það dómsmál félaganna var því ónýtt og framan- greindur úrskurður áfrýjunarnefnd- ar frá 2005 stóð því óhaggaður. „Í kjölfar dóms Hæstaréttar frá janúar 2013 höfðuðu olíufélögin ný dómsmál sem miða aftur að því að fá framangreindum úrskurði áfrýj- unarnefndar hnekkt. Það er í þeim málum sem héraðsdómur kveður upp sinn dóm í dag. Þýðir sá dómur að úr- skurður áfrýjunarnefndar stendur enn óhaggaður,“ segir jafnframt í til- kynningu Samkeppniseftirlitsins frá því í gær. Samkeppniseftirlitið var sýknað  Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Samkeppniseftirlitið af kröfum olíufélag- anna  Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála stendur óhaggaður Morgunblaðið/Þorkell Dómshús Samkeppniseftirlitið var sýknað af kröfum olíufélaganna. 65% félagsmanna verkalýðsfélags- ins Einingar-Iðju styðja hugsan- legar verkfallsaðgerðir, þurfi á annað borð að grípa til þess ráðs í komandi kjaraviðræðum. Þetta er niðurstaða könnunar sem félagið lét gera. Haft er eftir Birni Snæ- björnssyni, formanni félagsins, á vefsíðu þess, að félagsfundir að undanförnu hafi einkennst af mikilli samstöðu og krafti. 65% styðja hugs- anlegt verkfall Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.