Morgunblaðið - 20.01.2015, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015
Ljósmynd/Nikolaj Bock-norden.orgLjósmynd/Johannes Jansson-norden.orgLjósmynd/Nikolaj Bock-norden.org
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Gyða Valdís Guðmunds-
dóttir hjúkrunarfræð-
ingur flutti til Kaup-
mannahafnar í lok árs
2009 og síðan aftur til Íslands þrem-
ur árum síðar. Þar ytra starfaði hún
á sjúkrahúsinu í Herlev [skammt frá
Kaupmannahöfn] og á Ríkissjúkra-
húsinu í Kaupmannahöfn.
„Það voru mikil viðbrigði að
flytja aftur til Íslands. Núna hef ég
verið ein með börnin mín bæði í
Kaupmannahöfn og hér heima og
það er mikill munur þar á,“ segir
Gyða. „Vegna þess að ég var ein-
stæð þar fékk ég mikinn afslátt af
leikskóla- og skóladagheimilis-
gjöldum. Þar sem ég vann vakta-
vinnu var börnunum boðin vist á sól-
arhringsleikskóla, þar sem börnin
geta komið hvenær sem er sólar-
hringsins, en ég var ekki tilbúin að
þiggja það.“
Launin eru þriðjungur
Gyða segir mikinn mun á því
hvernig hlúð sé að fjölskyldum í
Danmörku og hér. „Og allt annað að
lifa af laununum sínum. Í Dan-
mörku rak ég heila fjölskyldu með
hjúkrunarlaununum mínum og
barnabótum. Ég er í nákvæmlega
sama starfi hér og ég var úti, en
launin hérna eru líklega um þriðj-
ungur til helmingur af því sem var í
Danmörku. Miklu hærra hlutfall af
tekjum mínum fer í nauðsynjavörur
hér en þar og ég gæti aldrei náð
endum saman nema vegna þess að
ég fer reglulega til Noregs og vinn
þar.“
Gyða er með norskt hjúkrunar-
leyfi og flýgur reglulega til Noregs
á vegum danskrar vinnumiðlunar.
„Þetta eru stuttar ferðir, allt frá
langri helgi og upp í viku. Þannig
get ég náð endum saman,“ segir
Gyða sem segist fá allt að hálf mán-
aðarlaun fyrir að vinna í nokkra
daga á norskum spítölum. Í Dan-
mörku starfaði hún á hátækni-
sjúkrahúsi fyrir bráðveik börn og
starfar yfirleitt á barnasjúkra-
húsum í Noregi. Hún segir ferðir
sínar þangað ekki síður til að við-
halda fagþekkingu sinni.
Atvinnuöryggið hvarf
Gyða útskrifaðist sem hjúkrunar-
fræðingur árið 2008 og segir marga
sem voru með henni í náminu starfa
erlendis. „Það breyttist líka svo
mikið strax árið 2009. Starfsum-
hverfið varð annað, innkaup breytt-
ust mikið og farið var að kaupa
ódýrari vöru, yfirvinnufyrirkomu-
laginu var breytt og hjúkrunar-
fræðingar fengu ekki fastráðningu
á íslensku sjúkrahúsunum. Þetta at-
vinnuöryggi sem hefur alltaf fylgt
minni stétt var horfið. Ég er með
þannig menntun að ég get unnið
hvar sem er í heiminum.“
Fyrstu misserin eftir hrun var
talsvert fjallað um það í fjölmiðlum
að Íslendingar yrðu fyrir aðkasti í
Danmörku vegna þjóðernis, en
Gyða segist ekki hafa upplifað neitt
slíkt. Hún hafi t.d. ekki verið með
fullt vald á tungumálinu þegar hún
hóf þar störf, en vinnufélagar henn-
ar hafi verið boðnir og búnir að
hjálpa henni. „Eldri konurnar sem
ég vann með sögðu stundum að ég
talaði gammel dansk. Mér fannst
auðvelt að aðlagast samfélaginu og
það var að mörgu leyti erfiðara að
flytja aftur heim en út. Þegar mað-
ur er á leiðinni út undirbýr maður
sig svo vel en síður þegar flutt er til
baka. Það breyttist margt á þessum
þremur árum sem ég bjó úti, það
tók svolítinn tíma að átta sig á því.
Ef börnunum mínum liði ekki svona
vel hérna heima myndi ég skoða það
í alvöru að flytja aftur út. Ég hugsa
sérstaklega um það þegar ég fæ
launaseðilinn um mánaðamótin,“
segir Gyða.
Morgunblaðið/Þórður
Hjúkrunarfræðingur Gyða Valdís starfaði í Danmörku og fer reglulega til
Noregs til starfa vegna hærri launa og til að viðhalda fagþekkingu.
Flýgur reglulega
til starfa í Noregi
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Lilja Dís Snæbjörns-
dóttir hjúkrunarfræð-
ingur hefur verið búsett
á Kaupmannahafnar-
svæðinu í rúm fjögur ár. Í upphafi
búsetu starfaði hún sem sjúkraliði á
lokaðri deild fyrir heilabilaða ein-
staklinga, bætti síðan við sig hjúkr-
unarnámi og starfar nú á bráða-
deild fyrir heilablóðfallssjúklinga á
sjúkrahúsinu í Herlev.
Hún flutti út með fyrrverandi
kærasta sínum sem er íslenskur.
Þau höfðu safnað sér fyrir utanför-
inni um hríð og þegar gengi ís-
lensku krónunnar tók að falla varð
heldur minna úr sparnaðinum. „Við
vissum að það væri dýrt að flytja út,
en við sáum peningana bókstaflega
gufa upp. Það var ömurlegt.“
Lilja Dís er 29 ára og segir að
aldrei hafi staðið til að búa svona
lengi í Danmörku, en núna hefur
hún komið sér vel fyrir á Vesterbro
með dönskum kærasta sínum og
segir engin áform um að flytja aftur
til Íslands. „Stundum langar mig til
að flytja til Íslands, en fjölskylda
mín og vinir segja að ég eigi ekkert
erindi þangað; ég sé orðin alltof
dönsk.“ Beðin um að útskýra það
nánar segir Lilja Dís: „Ég held að ég
sé orðin alltof afslöppuð, ég finn fyr-
ir svo mikilli keppni og hraða þegar
ég fer í heimsókn til Íslands.“
Margir Íslendingar
vinna á sjúkrahúsinu
Auk Lilju Dísar starfa þrír Íslend-
ingar á sömu deild og hún; annar
hjúkrunarfræðingur, læknir og
hjúkrunarnemi. Að auki segir hún
allnokkra Íslendinga að störfum í
ýmsum starfsgreinum á sjúkrahús-
inu, þeirra á meðal læknar og hjúkr-
unarfræðingar. „Ég veit að sumt af
þessu fólki náði endum engan veg-
inn saman á Íslandi,“ segir hún.
Talsverður munur er á kjörum
hjúkrunarfræðinga í Danmörku og
á Íslandi að sögn Lilju Dísar sem
segir að vel sé hægt að lifa af dag-
vinnulaunum hjúkrunarfræðinga í
Danmörku, það sé vart hægt á Ís-
landi. „Grunnlaunin mín eru 27.000
danskar krónur (um 560.000 ís-
lenskar krónur) fyrir skatt. Ætli ég
fái ekki um 21.000 (um 436.000 ís-
lenskar krónur) útborgaðar. Full
vinnuvika hjá mér er 32 tímar á
viku, samanborið við 40 tíma á Ís-
landi.“
Ekki í láglaunastarfi
Hún segir að nokkrir af þeim
hjúkrunarfræðinemum sem hún
þekkir hafi ákveðið að starfa á
Norðurlöndunum að námi loknu.
„Sumir fara í námið með það í huga
að flytja til Noregs. Íslenskir hjúkr-
unarfræðingar eru vel menntaðir
og þess vegna eftirsóttir.“
Lilja var á leigumarkaði á Íslandi
eins og í Danmörku og segir ólíku
saman að jafna. „Fyrir það fyrsta
ráða flestir sem eru í vinnu við að
leigja, hafa í sig og á og hafa afgang
til að njóta lífsins. Ég hef aldrei upp-
lifað það hérna að ég sé í láglauna-
starfi, eins og hjúkrunarfræðing-
arnir á Íslandi.“
Lilja Dís Hún segir hjúkrunarfræð-
inga ekki láglaunastétt í Danmörku.
Hærri laun og styttri vinnuvika
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Íslenskum hjúkrunarfræðingum í
Noregi fjölgaði um 50% á þremur
árum, frá 2010 til 2013. Árið 2010
bjó 91 íslenskur hjúkrunarfræð-
ingur í Noregi en í apríl 2013 voru
þeir orðnir 137 og um mitt árið 150.
Auk þessa hóps fóru árið 2013
meira en 100 íslenskir hjúkrunar-
fræðingar reglulega til Noregs að
vinna, þá í ákveðinn tíma í einu á
milli þess sem þeir unnu á Íslandi.
Ólafur G. Skúlason, formaður Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga
(Fíh), gerir ráð fyrir að sá hópur
hafi stækkað síðan.
Í ársbyrjun 2013 höfðu 427 ís-
lenskir hjúkrunarfræðingar fengið
starfsleyfi í Noregi frá ársbyrjun
2008. Það þýðir að 12% starfandi
hjúkrunarfræðinga eru með leyfi
þar í landi á þeim tíma en síðan þá
hefur þeim fjölgað. T.d. var áætlað
að árið 2013 myndu a.m.k. 130
hjúkrunarfræðingar sækja um
leyfi.
Í nýlegri könnun sem Fíh gerði
meðal félagsmanna kom í ljós að
rúm 30% félagsmanna sem svöruðu
könnuninni hafa íhugað alvarlega
að flytjast utan á næstu tveimur
árum. Meðal hjúkrunarfræðinga á
aldrinum 24-35 ára voru það tæp
63% sem höfðu íhugað þetta sama.
Félagið hefur annars ekki heild-
artölu yfir þá félagsmenn sem hafa
farið utan að vinna þar sem þeir
eru þá ekki á kjarasamningi Fíh.
Ólafur segir að eftirspurn hafi
aukist eftir íslenskum hjúkrunar-
fræðingum í Svíþjóð. „Við höfum
mjög góða menntun hér á landi og
eru hjúkrunarfræðingar frá Íslandi
taldir faglegir, klárir og duglegir
erlendis. Það er einfalt fyrir þá að
öðlast leyfi í öðrum löndum og þeir
fá auðveldlega starf.“
Eins og stendur næst ekki að
manna allar stöður hjúkrunarfræð-
inga á Íslandi. „Nýliðun hefur ekki
verið nægjanleg auk þess sem stór-
ir árgangar hjúkrunarfræðinga
mega nú senn hefja töku lífeyris og
hefur það áhrif á þessa stöðu. Við
þurfum nú að finna leiðir til að fá
fleiri inn í hjúkrunarstarfið og
halda þeim í vinnu sem fyrir eru og
verður það verkefni félagsins á
næstunni,“ segir Ólafur.
Íslenskum hjúkrunarfræð-
ingum fjölgar hratt í Noregi
Ungir hjúkrunarfræðingar íhuga alvarlega að flytja utan
Morgunblaðið/Golli
Hjúkrunarfræðingar Eftirspurn eftir þeim hefur aukist í Svíþjóð.