Morgunblaðið - 20.01.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.01.2015, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015 HAFNARFJÖRÐUR H EI MS ÓKN Á HÖFUÐBO R G A R S V Æ Ð IÐ 2015 Í Hafnarfirði búa rúmlega 27 þús- und manns. Bærinn hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum eins og önnur sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu. Ný hverfi hafa risið í Áslandi, á Völlum og í Hellnahrauni. Höfnin sem bæjarfélagið er kennt við var ein stærsta versl- unarhöfn landsins allt frá 16. öld. Hefur mikil útgerð verið stunduð þaðan. Fyrsti togari Íslendinga, Coot, var gerður út frá Hafnarfirði 1905-1908. Ketillinn úr honum stendur við hringtorgið þar sem mætast Reykjavíkurvegur, Strand- gata og Vesturgata. Á 18. öld var rætt um að gera Hafnarfjörð að höfuðstað Íslands, en slæm samgönguskilyrði þang- að, lítil mótekja og lítið undirlendi urðu helstu ástæður þess að Reykjavík varð hlutskarpari. Fyrsti vegurinn milli Hafnar- fjarðar og Reykjavíkur var lagður 1898. Hafnarfjörður heyrði undir Álftaneshrepp framan af en eftir skiptingu hans árið 1878 varð bærinn hluti hins nýmyndaða Garðahrepps. Hinn 1. júní 1908 fékk Hafnarfjörður kaupstaðar- réttindi og varð þá að sjálfstæðu bæjarfélagi. Íbúar voru þá orðnir 1.469 talsins. Var lengi helsta verslunarhöfnin  Í Hafnarfirði búa 27 þúsund manns Skúli Halldórsson sh@mbl.is Fyrir skemmstu var nýr flughermir tekinn í notkun í húsakynnum Ice- landair í Hafnarfirði. Í samtali við Morgunblaðið segir Hlynur Elísson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Icelandair, að þetta marki fyrsta skrefið í flutningi á vissum hluta starfseminnar til Hafn- arfjarðar. „Sem stendur þá snýst starf- semin einungis um þjálfun flug- manna í herminum og fimm starfs- menn, tæknimenn og stjórnendur, sjá um þann rekstur. Hjá Icelandair eru á fjórða hundrað flugmenn og í stað þess að fara í reglubundna þjálfun í Kaupmannahöfn og Lond- on, þá fara þeir í Hafnarfjörðinn og þjálfa sig þar undir stjórn rúmlega 20 þjálfunarflugstjóra félagsins,“ segir Hlynur og bætir við: „Þetta hús sem nú er risið er fyrsti áfang- inn að því sem við viljum kalla þjálf- unar-, eða fræðslusetur því í hinum helmingi hússins verður þjálfun fyr- ir flugfreyjur, -þjóna og fleiri. Sjö kennslustofur verða í húsnæðinu en sú starfsemi hefur verið talsvert dreifð undanfarin ár.“ Lóðin var úthlutuð félaginu haustið 2013 og er hún 40 þúsund fermetrar. Þannig er ljóst að lóðin er langt frá því að vera fullnýtt. „Við reynum að hugsa hlutina dálítið langt fram í tímann og horf- um þá gjarnan til næstu áratuga. Það hefur verið mikill vöxtur í starf- seminni nú í nokkur ár og mikill metnaður til staðar þegar horft er til framtíðar og við viljum gjarnan hafa svigrúm til vaxtar.“ Aðstaða fyrir hundrað manns Stefnt er að því að ljúka verkinu í lok þessa árs. „Þá verður komin Teikning/VA Arkitektar Teikning Stefnt er að verklokum í lok þessa árs og mun húsið þá geta hýst hundrað starfsmenn flugfélagsins. Icelandair byggir upp starfsemi í Vallahverfi  Markar fyrsta skrefið í flutningi  Sendir bylgjur út í atvinnulífið „Því miður fara of margir ungar upp í mávskjaft,“ segir Guðmundur Fylkisson lögregluþjónn. Ræturnar segja til sín; Guðmundur sem er Ís- firðingur að upplagi dvaldist mörg sumur í Ófeigsfirði á Ströndum og að vitja um æðarvarpið var meðal reglulegra starfa þar. Það vakti áhuga hans á fuglalífi og þegar okkar maður fluttist í Hafnarfjörð urðu göngutúrar að Hamars- kotsæknum hluti af hinu daglega lífi. „Mér rann til rifja að sjá um- hverfið þarna. Setti mig því í sam- band við bæjaryfirvöld og óskaði eftir því að mega taka þetta svæði í fóstur sem reyndist auðsótt mál,“ segir Guðmundur. Lækurinn í Hafnarfirði, eins og þessi staður er gjarnan kallaður, nær frá Strandgötu að Hörðuvöll- um. Þar eru álftir, gæsir og stokk- endur – svo og gestir eins og gul- og toppendur. Og í þessari veröld fuglanna er eins og annars staðar stöðug barátta milli góðs og ills. Morgunblaðið/Eggert Fuglafeðgin Guðmundur Fylkisson og Katrín Tekla hér saman við Lækinn. Barátta góðs og ills  Fóstrar fugla við Læk  Guðmundur Fylkisson er vinur álfta, gæsa og anda Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.