Morgunblaðið - 20.01.2015, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2015
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
GLÆSILEGUR VEL FYLLTUR BH
Fæst í stærðum 70-85 B,C á kr.
6.770, buxur á kr. 2.650.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
Síðan 1956
Mikið úrval • Margir litir
Áður Nú
70x50 5.500 4.125
70x100 9.995 7.495
70x150 15.900 11.925
Plastmottur
25%
afsláttur
út janúar
Húsviðhald
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
TILBOÐ Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri. Stakar stærðir.
TILBOÐSVERÐ: 3.500.-
TILBOÐ Vandaðir dömukuldaskór úr
mjúku leðri, fóðraðir og með góðan
sóla. Stakar stærðir.
TILBOÐSVERÐ: 5.500.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Smáauglýsingar
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Mætur kollega er
fallinn frá.
Sverrir hóf sinn
feril og ílengdist í
Vestmannaeyjum
allt til eldsumbrota þar. Hann var
frumkvöðull í hugsun, brautryðj-
andi og baráttumaður um flúor-
væðingu á tíma þegar tann-
skemmdir voru slíkar að við
algert ofurefli virtist að etja fyrir
tannlækna. Við sem störfum að
tannlækningum í dag, getum vart
sett okkur í spor þeirra undan-
fara okkar sem þurftu að vinna
myrkranna á milli eða þar til eng-
inn var eftir á biðstofunni, þegar
ekki var í fleiri hús að venda, eins
og reyndin var í Vestmannaeyj-
um.
Tannpína, þetta nánast út-
dauða fyrirbæri, setti svip sinn á
líf margra hér áður og létt að
ímynda sér hve oft margur sjó-
maðurinn varð að fá skjóta lausn
á milli mislangra túra. Það voru
enda fyrstu kynni annars undir-
ritaðs, sem þá var ungur háseti á
bát í Eyjum.
En Sverrir skildi ekki bara eft-
ir mark sitt í tönnum Eyjabúa.
Þar hóf hann ástarsamband sitt
við golfíþróttina sem varð hans
viðhald það sem eftir lifði ævi
Sverrir Einarsson
✝ Sverrir Ein-arsson fæddist
20. nóvember 1927.
Hann lést 7. janúar
2015. Útför hans
fór fram 16. janúar
2015.
hans og Eyjabúar
samtíma honum
minnast vafalaust
margra ánægju-
stunda með honum á
golfvellinum í Herj-
ólfsdal sem hann
átti drjúgan þátt í að
byggja upp.
Fyrir okkur sem
upplifum tannlækn-
ingar sem vort dag-
lega brauð, var
Sverrir okkar krydd á það brauð.
Hann innleiddi golf inn í hópinn
okkar sem vildum eiga annað líf
til hliðar við amstrið. Líf þeirra,
sem þátt tóku í þeim félagsskap,
sem fékk viðurnefnið Tanngolf,
varð ríkara og skemmtilegra.
Sverrir lagði golfvelli heimsins
að fótum sér og okkar og vina-
böndin styrktust með fleiri og
metnaðarfyllri uppákomum. Þeg-
ar ferð okkar til Túnis bar upp á
sama dag og Habib Bourgiba var
steypt af stóli, fékk hópurinn við-
urnefnið Háskaferðir. Þar var
hlegið dátt og glaðst og Sverrir
stanslaus gleðigjafi. Mælskulist
hans reið ekki við einteyming.
Það var ekki svo sjaldan að þörf
var á tækifærisræðum og þá kom
aðeins einn til greina, og oftar en
ekki veltumst við um úr hlátri.
En hann fór ekki bara með gam-
anmál. Hann stóð oftar en ekki
upp á fundum hjá okkur kolleg-
um og hans innlegg var alltaf al-
vöruþrungið þótt hann byggi yfir
þeim frábæra eiginleika að geta
matreitt það með húmor, því
Sverrir var bæði skarpur og rétt-
sýnn. Það er ekki slæmur kokkt-
eill. Enda varð hann farsæll for-
maður okkar tannlækna og nú
þegar dagar hans eru taldir, vilj-
um við þakka fyrir frábært fram-
lag hans til okkar félagsskapar,
bæði faglega en ekki síður sem
ógleymanlegur persónuleiki og
ekki síst góður vinur.
Margréti konu hans og fjöl-
skyldunni allri sendum við
dýpstu samúðarkveðjur um leið
og við þökkum samfylgdina.
F.h. Tannlæknafélags Íslands,
Heimir Sindrason
Kristín Heimisdóttir
Ég hef verið svo lánsamur að
kynnast mörgum skemmtilegum
mönnum og um suma þeirra má
með sanni segja að þeir hafi verið
einstaklega skemmtilegir. Sverr-
ir Einarsson var án efa einn sá
skemmtilegasti. Kynni okkur
hófust þannig að á háskólaárun-
um leigði ég í kjallaranum hjá
honum og Deddu. Fljótlega tókst
góður vinskapur með mér og
þeim hjónum og fékk ég snemma
sæmdarheitið „kjallarabúinn“. Á
þessum árum naut ég þeirra for-
réttinda að fá að sitja með Sverri
og spjalla um heima og geima.
Sama hvar borið var niður,
Sverrir hafði alltaf eitthvað
áhugavert að segja og sá kunni að
segja sögur. Sögur frá Vest-
mannaeyjum, sögur af tannlækn-
um, sjálfum sér og kollegum, sög-
ur af fólki og atburðum héðan og
þaðan. Alltaf voru þessar sögur
húmorískar og sniðugar, til þess
fallnar að láta mann veltast um af
hlátri. Reyndar var Sverri einkar
lagið að gera grín að stjórnmála-
mönnum og stímabraki þeirra.
Án þess að hann setti sjálfan sig á
háan hest, þá fann maður að hon-
um fannst þeir margir hverjir
ekki sérlega tilkomumiklir. Á því
voru þó undantekningar. En það
var glaðværð í gagnrýni hans,
aldrei biturð eða pirringur, miklu
fremur kátína afburðagreinds
manns sem skemmtir sér yfir
ruglingi og argaþrasi dægurmál-
anna. Ég á margar mjög góðar
minningar um Sverri Einarsson.
Þegar ég læt hugann reika aftur
til þessa tíma þá rifjast upp fyrir
mér meðal annars að eitt sinn
sátum við saman og horfðum á
Fellini-mynd. Það var eitt af
þessum skiptum þegar ég hef
hlegið svo mikið að mig verkjaði
sáran undan, en gat ekki hætt;
myndin og athugasemdir Sverris
um hana voru óborganlegar. Nú
eða þegar Sverrir lenti í því að
komast á ellilífeyrisaldurinn,
langt um aldur fram, og fékk boð
um að koma í hópferð með öðrum
gamalmennum niður að Tjörn til
að skoða endurnar, það sem við
gátum skemmt okkur yfir þeim
vel meinandi en galna texta.
Á þeim árum sem ég bjó í kjall-
aranum hjá honum Sverri fannst
mér einatt sem ég væri að tala við
jafnaldra minn, þótt fjörutíu ár
eða svo skildu okkur að. Og þann-
ig man ég Sverri, opinn,
skemmtilegan og gáfaðan, ein-
staklega þægilegan og góðan
mann. Elsku Dedda. Ég sam-
hryggist ykkur, góður drengur er
fallinn frá.
Illugi Gunnarsson.
Elsku Kristín
Ósk, fallega snót
með brosið blíða, þú
komst við líf okkar
með gleði og það við viljum þakka
þér af öllu hjarta.
Allar fallegu stjörnurnar og öll
blómin sem við horfðum á saman
gráta nú með okkur, því þú
hvarfst okkur frá.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Sendum ættingjum og vinum
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Júlíana Kristín, Elín Eyrún
og Halldóra.
Elsku Kristín mín, það var mér
sannur heiður að fá að kynnast
þér. Nú sitja eftir dásamlegar
minningar um virkilega góða og
skemmtilega vinkonu. Þú varst
alltaf tilbúin að hlusta þegar mað-
ur þurfti að tuða smá, hringdir
jafnvel daginn eftir til athuga
hvort maður væri ekki í betra
skapi þann daginn.
Ég man sérstaklega eftir því
hvað við skemmtum okkur oft á
tíðum konunglega yfir klæðaburði
og óförum annarra í ræktinni.
Ég er mjög ánægð að hafa
fengið að vera til staðar fyrir þig
þegar þú misstir mömmu þína, að
fá að ganga í gengum það með þér
hjálpaði mér að skilja betur að-
stæður þínar og líf þitt. Lífið varð
dapurlegra en við skildum hvor
aðra.
Kristín mín, kveð þig með sökn-
uði.
Þín vinkona
Anna St.
Kristín Ósk
Gunnarsdóttir
✝ Kristín ÓskGunnarsdóttir
fæddist 24. febrúar
1983. Hún lést 1.
janúar 2015. Útför
Kristínar fór fram
16. janúar 2015.
Sú harmafregn
barst okkur að
morgni hins 2. jan-
úar sl. að hún Kristín
væri dáin. Vantrú og
sorg fylltu hjartað.
Óraunverulegt.
Kristín var fljót
að læra, fjölhæf, eld-
klár og hörkudugleg.
Betri samstarfs-
mann en hana ekki
hægt að hugsa sér.
Hún var sólargeisli, allt varð ein-
faldlega bjartara þegar hún gekk í
salinn. Hún var full af lífi, glöð og
hjálpsöm. Ef ætti að lýsa henni í
tveimur orðum ættu orðin „ynd-
isleg manneskja“ vel við. Þannig
munum við hana og við munum öll
sakna hennar sárt, þó mestur sé
missir ástvina hennar og fjöl-
skyldu. Hugur okkar er hjá þeim á
þessum erfiðu tímum.
Ég treysti því að hún Kristín
blómstri nú á öðru engi og strái
þar áfram sólargeislum sínum.
Góðu minningarnar lifa. Ég er
þakklátur fyrir að hafa fengið að
kynnast henni þó þau kynni hafi
auðvitað orðið allt of stutt.
Sá djúpi samhugur og sorg sem
við höfum upplifað undanfarna
daga verða okkur lærdómur, að
meta enn betur bæði lífið og nær-
veru hvors annars hverja mínútu,
hverja stund.
Ég vil fyrir hönd lækna og alls
starfsfólks í Læknasetrinu kveðja
Kristínu með þessum fátæklegu
orðum og þakka fyrir árin sem við
fengum að vera samferða henni
bæði í starfi og leik. Það var verð-
mætt að fá að kynnast henni.
Fjölskyldunni færi ég, fyrir
hönd okkar allra, innilegustu sam-
úðarkveðjur. Blessuð sé minning
Kristínar Óskar Gunnarsdóttur.
Þórarinn Guðnason,
formaður stjórnar
Læknasetursins.
Elsku fallega vinkona mín, hún
Kristín, er farin frá okkur. Þetta
hafa verið erfiðir dagar síðan ég
fékk fréttirnar af andláti hennar
og dagarnir hafa einkennst af
sorg, spurningum, vanmætti og
fleiri áður óþekktum tilfinningum.
Það er ofboðsleg sorg sem fylgir
svona dauðsfalli, allt öðruvísi sorg
en ég hef áður upplifað.
Ég syrgi svo margt. Ég syrgi
brosin sem ég fæ aldrei að sjá, ég
syrgi stórafmælin sem verða ekki
fleiri, ég syrgi hlátrarsköllin sem
ég mun aldrei njóta, ég syrgi ást-
ina og rómantíkina sem hún mun
aldrei upplifa, ég syrgi barnið sem
ég sá hana aldrei eignast, ég syrgi
árin sem við fáum ekki saman, ég
syrgi námið sem hún náði ekki að
klára, ég syrgi ferðirnar til út-
landa sem við munum aldrei fara,
ég syrgi símtölin sem við eigum
aldrei eftir að eiga, ég syrgi lífið
hennar sem var henni um megn.
Elsku Kristín
Ég veit að þér líður betur núna
og ert hjá foreldrum þínum og
hefur fundið frið.
Guð geymi þig, elsku hjartans
vinkona mín. Minning þín mun lifa
með okkur það sem eftir er.
Þín vinkona
Kristjana (Kidda) Svarfdal.
Þegar daginn er tekið að lengja,
sólin hækkar á lofti og nýtt ár
gengur í garð, vill maður horfa til
framtíðar með bjartsýnina að
vopni og gengur inn í nýtt ár fullur
sannfæringar um að ekkert muni
bjáta á og allt muni ganga manni í
haginn, það var með því hugarfari
sem ég fór inn í árið. Þess vegna
var það mikið reiðarslag þegar
mér barst það til eyrna að Kristín
Ósk, þessi góða vinkona mín, sem
ég var svo heppinn að fá að kynn-
ast sumarið 2007 hefði kvatt þessa
jarðvist alltof ung eða aðeins tæp-
lega 32 ára að aldri. Af þeim skipt-
um sem ég hef hitt Kristínu á
þessum árum er þó ein helgi sem
sérstaklega stendur upp úr, en
það er verslunarmannahelgin
2012, en þá varð hún þess valdandi
að ég kynntist þeim mæðgum
Söndru og Katrínu Emblu sem
hafa síðan þá bætt við litrófið í
hversdeginum hjá mér svo um
munar og síðasta sumar bættist
svo gleðigjafinn Adam Vilbergur í
fjölskylduna. Líf mitt væri örugg-
lega litlausara í dag ef ég hefði
ekki rekist á Kristínu þessa versl-
unarmannahelgi. Hafðu ævarandi
þökk fyrir þessi áhrif sem þú hafð-
ir á líf mitt.
Þar sem englarnir syngja sefur þú,
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Minning þín mun lifa í hjarta
okkar
Örvar Jóhannsson.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Málarar
Viðhalds- og málningarvinna
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð
góð umgengni. Tilboð/ tímavinna.
Lítið Mál ehf. Sigurður GSM:
896 5758, malid@internet.is.
Smáauglýsingar