Reykjalundur - 01.06.1952, Blaðsíða 8

Reykjalundur - 01.06.1952, Blaðsíða 8
tók mér ljúfmannlega, eins og hann var drengur til, af því að við áttum í þessu máli sameiginlegar kenndir og sama skilning. Stofnun Heilsuhælisfélags Norðurlands. Eins og að framan var rakið, hlaut ráða- gerðin um stofnun Heilsuhælisfélags á Norð- urlandi þegar hinar beztu undirtektir allra dugandi manna og félagssamtaka, og eftir nokkurn undirbúning var, samkvæmt fund- arboði borgara í bænum, haldinn stofnfund- ur Heilsuhælisfélags Norðurlands 22. febrú- ar 1925 í Samkomuhúsi bæjarins. Steingrím- ur Jónsson bæjarfógeti setti fundinn og gaf síðan orðið Jónasi Þorbergssyni, sem hafði verið falið að reifa málið og leggja það fyr- ir fundinn. Að erindi hans loknu var gengið til atkvæða um það, hvort félagið skyldi stofnað, og var það samþykkt nær einróma. Var þá gengið með lista um fundarsalinn, og létu menn skrá sig í félagið. Urðu félags- menn þegar á fundinum 340. Að því búnu var Steingrímur bæjarfógeti kosinn fundar- stjóri með lófataki. Þá var lagt fram og rætt frumvarp til laga fyrir félagið, og náði það samþykki með lítilli breytingu. Því næst var gengið til kosninga, og voru kosin í stjórn félagsins: Ragnar Olafsson formaður, Böðv- ar Bjarkan féhirðir og Kristbjörg Jónatans- dóttir ritari. I framkvæmdanefnd félagsins voru kjörin: Anna Magnúsdóttir, Hallgrím- ur Davíðsson, Jónas Rafnar, Jónas Þorbergs- son, Kristján Karlsson, Sveinbjörn Jónsson og Vilhjálmur Þór. Stjórn og framkvæmda- nefnd hófu starf þegar næsta dag og gáfu út ýtarlegt ávarp til Norðlendinga (sjá Dag 26. febr. 1925). Deildir í félaginu voru stofn- aðar víðs vegar og fjársöfnun hafin um land allt. Formanni félagsins var þegar falið að setja sig í samband við húsameistara ríkis- ins og ríkisstjórnina um stuðning við málið og þess farið á leit, að húsameistari kæmi norður til undirbúnings málinu. Ennfremur var ákveðið að senda Alþingi rökstutt er- indi um málið og fara þess á leit, að ríkið legði fram fé að hálfu á móti framlögum almennings. Milliþinganefndin frá 1919. Til þess að ljóst megi verða, hversu mikl- ir örðugleikar risu fram undan við stofnun Heilsuhælisfélagsins, verður ekki hjá því komizt að hverfa til baka og rekja að nýju eldri drög. Eins og' að framan var ritað, var skipuð milliþinganefnd í berklavarnamálum árið 1919 eða ári síðar en fyrst var hafizt handa norðanlands í heilsuhælismálinu á aðalfundi norðlenzkra kvenna. Höfðu þá þegar safnazt tugir þúsunda í Heilsuhælis- sjóðinn. Eigi að síður lauk nefndin störfum án þess að veita þessari áhugaöldu norðan- lands og sérstökum þörfum Norðlendinga verulegan gaum. A það ber að líta, að ný- lega var skollin yfir mikil fjárhagskreppa, enda urðu tillögur nefndarinnar um úrlausn- ir í mikilli ósamsvörun við hinn stórbrotna tilgang berklavarnalaganna. Tillögur nefnd- arinnar voru meðal annars þær, að reist yrðu eða leigð einskonar biðskýli fyrir berkla- veika menn, sem biðu þess að komast á Vífilsstaðahæli eða í gröfina. Langmyndar- legasta biðskýlið af þessu tagi átti að vera á Akureyri og rúma 12—15 menn, en berkla- sjúklingar í héraðinu voru árið 1924 sam- kvæmt áðursögðu, 119. Magnús Pétursson læknir gat þess þó í ágreiningsorði í nefnd- arálitinu, að hann teldi ófært að ganga fram hjá einróma kröfum Norðlendinga, því að þeir mundu vera því kunnugastir, hvar skór- inn kreppti. Vildi hann leysa vandræði Norð- lendinga á þann hátt, að auka við sjúkra- húsið á Akureyri, svo að þar mætti koma fyrir deild berklasjúkra manna, er gæti rúmað 28—30 sjúklinga. Ýmsar aðrar ófull- nægjandi tillögur — og jafnvel fáránlegar — voru þá uppi í málinu, eins og til dæmis sú, að kaupa gróðrarstöðina á Akureyri og gera íbúðarhúsið þar að sjúkrahúsi fyrir berklaveika menn. Enn má geta þess til dæm- is um það, hversu óvænlega virtist horfa, að Guðm. Björnsson landlæknir, sem var stórhuga maður og hafði beitt sér fyrir stofnun Vífilsstaðahælis, taldi um þessar mundir, að Norðlendingar mundu þurfa að bíða eftir heilsuhæli sínu um þrjátíu ára skeið, ef ekkert óvænt kæmi fyrir. Reykjalundur 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.