Reykjalundur - 01.06.1952, Blaðsíða 21
ODDUR ÓLAFSSON, yfirlceknir:
Frá Islandi til Italíu.
Þegar Ameríkumenn í lok febrúar þessa
árs birtu blaðafregnir um nýtt undralyf gegn
berklaveiki, vöktu þær að vonum mikla
bjartsýni og óskipta athygli um heim allan.
Þó voru mönnum ofarlega í huga ítrekaðar
æsifregnir fyrri tíma um ný berklalyf, sem
sjaldnast höfðu staðizt dóm reynslunnar.
Af fyrstu fregnum varð þó ljóst, að nokkr-
ir af helztu mönnum berklavarnanna í
Bandaríkjunum höfðu látið hafa eftir sér svo
jákvæð ummæli, að ólíklegt mátti teljast
annað, en að hér væri um merka nýjung að
ræða.
Þar sem berklaveikin er útbreidd um allan
heim, en framleiðsla nýrra lyfja venjulega
hægfara fyrstu mánuðina, eða árin, var ekki
óeðlilegt, að við óttuðumst, að alllangur tími
mundi líða unz okkur tækist að fá þessi nýju
lyf til notkunar. Skömmu eftir amerísku
fregnunum barst fregn um það, að Italir
hefðu hafið framleiðslu berklalyfsins og
mundu gefa hingað ríflegan skammt til til-
rauna.
Þegar eftir að fregnin um hið nýja lyf
barst hingað, voru gerðar allar hugsanlegar
ráðstafanir til að fá það af yfirlækni Vífils-
staða, berklayfirlækni og sambandsstjórn
S. í. B. S., sem ákvað, að ég, sem um þetta
leyti var á förum til Danmerkur, skyldi fara
suður til Ítalíu og kynna mér árangur þeirra
af notkun lyfsins og reyna að stuðla að af-
greiðslu hingað eins fljótt og unnt væri.
★
Til Kaupmannahafnar kom ég með Gull-
faxa kvöldið 17. marz, eftir notalega, stutta
og viðburðasnauða ferð, eins og flestar flug-
ferðir eru. Strax morguninn eftir fékk ég
vitneskju um það hjá B. M. (S. í. B. S. Dan-
merkur), að framleiðsla nýja berklalyfsins
Revkjalundur
Oddur Ólafsson.
væri hafin í Danmörku. Framleiðslan var þó
mjög óveruleg og hafði verið notuð nokkra
daga handa örfáum fárveikum sjúklingum
á stærsta hæli Kaupmannahafnar. Mér tókst
að fá viðtal við forstjóra lyfjaverksmiðjunn-
ar morguninn eftir. Var maðurinn mjög
elskulegur í viðmóti, skyldi vel áhuga minn
fyrir að fá lyfið og spurði margs frá Islandi.
Hafði hann dvalið hér alllengi og taldi Is-
landsveru sína eitt lærdómsríkasta skeið í
sínu lífi. Lofaði hann mér því, að ef för mín
til Sviss og Italíu bæri ekki tilætlaðan árang-
ur, þá skyldi hann veita mér úrlausn, er ég
kæmi að sunnan. Var ég nú vongóður um
árangur farar minnar og hélt næsta dag
flugleiðis til lyfjaverksmiðja Sviss. Hafði ég
fregnað að stór lyfjaverksmiðja í Sviss
væri önnum kafin við framleiðslu lyfsins.
Hoffmann la Roche lyfjaverksmiðjan er
ein af þrem stærstu lyfjaverksmiðjum í
Sviss. Þar vinna 1500 manns, og um þetta
leyti var unnið í vaktaskiptum, dag og nótt,
að framleiðslu nýja berklalyfsins. Læknir sá,
er ég náði sambandi við þarna, sýndi mér
þetta merka verksmiðjubákn. Sýndi mér
hvernig berklalyfið varð til og allan þann
19