Reykjalundur - 01.06.1952, Page 15

Reykjalundur - 01.06.1952, Page 15
Hann stjakaði þeim út úr stofunni fram á ganginn, svo að frúin vaknaði ekki. Strákarnir stóðu andspænis hvor öðrum, hver taug var þanin í líkömum þeirra, and- litin náföl og svartir baugar fyrir neðan starandi augun. Þetta var að ná einhverju hámarki. Kaup- maðurinn vissi ekki, við hverju hann átti að búast. Hann var sem á glóðum, fannst, að hver tilraun til að koma fyrir þá vitinu, væri eins og að loka rafmagnsstraum, brjál- æðið mundi brjótast út. Hann lygndi augunum og reyndi að flytja sjálfan sig í huganum yfir á svið drengja- áranna. Allt í einu blístraði hann hátt og þeytti Grímsa í fangið á Tomma. Eins og elding laust hnefi Tomma nasir árásardrengsins, sem borgaði svipstundis m.eð sömu mynt. Blóðið fossaði úr vitum þeirra og hin yndislegustu slagsmál hófust. Náttföt- in ruku í tætlur, höggin dundu, blóðið rann í straumum. Þeir bitu á jaxlinn, en gáfu ekki frá sér önnur hljóð en lágar stunur. Kaupmaðurinn stóð í stofudyrunum og horfði athugull og ánægður á einvígið. Hann gaf konu sinni, sem vaknað hafði og komið fram í stofuna, ótvíræða bendingu um að hafa hljótt um sig og trufla ekki hólmgöngukapp- ana. Læknir: „l>ér hafið vatn í hnjáliðiinum''. Sjúklingurinn: „Vatn, nei, það er ómögulegt. Vatn smakka ég aldrei, cn mér þætti líklegra að það gæti verið brennivín". ☆ ☆***iírír**ír**'ír'tó''írt!r*******'írTÍr****-ír***5r ★ KJÖRORÐ S. I. B. S. er: STYÐJUM SJÚKA TIL SJÁLFSBJARGAR. ★ *********************************ír ********** Reykjalundur 13

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.