Reykjalundur - 01.06.1952, Side 20

Reykjalundur - 01.06.1952, Side 20
legum framkvæmdum að Reykjalundi og stjórninni gefin heimild til að taka lán, eins og þörf krefur, til að standa straum af þeim mikla kostnaði, sem af þeim hlýtur að leiða. Stjórninni var falið að gera allt, sem í hennar valdi stendur til að auka starf sambands- deilda og einstakra meðlima fyrir Vöruhapp- drættið. Þingið samþykkti margar fleiri tillögur, er fram komu, en efni þeirra verður ekki rakið hér. Forseti sambandsins, Maríus Helgason, átti að ganga úr sambandsstjórninni, en var einróma endurkjörinn. Einnig áttu þeir Þórð- ur Benediktsson og Oddur Olafsson að ganga úr stjórninni, en voru báðir endurkjörnir. í stað Þorleifs Eggertssonar, er gekk úr stjórninni að eigin ósk, var kjörinn Gunnar Armannsson. í varastjórn sambandsins voru kjörnir: Júlíus Baldvinsson, Árni Einarsson, Örn Ingólfsson og Árni Guðmundsson. Endur- skoðendur voru kjörnir: Jóhannes Arason, Vikar Davíðsson. Til vara: Baldvin Bald- vinsson og Guðmundur Löve. í stjórn Vinnuheimilisins að Reykjalundi var kjörinn Ólafur Björnsson, til vara Ást- mundur Guðmundsson. í stjórn Vinnustofanna að Kristnesi var kjörinn Ásgrímur Stefánsson, til vara Krist- björg Dúadóttir. Þingið samþykkti m. a. eftirfarandi álykt- un: 8. þing S.Í.B.S. haldið að Kristneshæli 11. —13. júlí 1952, ályktar að flytja Ríkisstjórn Islands, Alþingi og þjóðinni allri innilegustu þakkir fyrir ágætan skilning á málefnum berklasjúklinga og öflugan fjárhagslegan stuðning við sambandið og málefni þess. Oddur Ólafsson yfirlæknir flutti fróðlegt erindi um árangur af notkun berklalyfja og vonir þær, er við þau eru bundnar. Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri flutti snjalla ræðu um baráttuna gegn berklaveik- inni og einkum hið mikla starf Heilsuhælis- félags Norðurlands. Forseti þingsins, Steindór Steindórsson, þakkaði ræðumönnum erindin og sleit þing- inu með snjallri ræðu. Sunnudaginn, 13. júlí, fóru þingfulltrú- arnir í boði Berklavarnar á Akureyri og Sjálfsvarnar í Kristneshæli að Mývatni. — Ferðin var hin ánægjulegasta, þrátt fyrir óhagstætt veður. G. L. 18 Reykjalunduk

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.