Morgunblaðið - 02.02.2015, Síða 9

Morgunblaðið - 02.02.2015, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2015 Einstökhljómgæðiúr litlutæki Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880 | www.heyrnartækni.is | Framúrskarandi tækni íOticonheyrnartækjumskilar þérbestumöguleguhljómgæðumíólíkumaðstæðum. NýjudesignRITEtækinerueinstakleganettoghafa hlotiðalþjóðleghönnunarverðlaun.Njóttuþessað heyraskýrtogáreynslulaustmeðheyrnartækisem hentarþínumpersónuleguþörfum. Fáðu þetta heyrnartæki lánað í 7 daga - án skuldbindinga Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu ogfáðuheyrnartækitilprufuívikutíma Sími5686880 Fullkomin þráðlaus tækni Engir hnappar Vatnshelt Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Æskilegt væri að fleiri konur væru í hópi íþróttafréttamanna og sjálfsagt er að leita ýmissa leiða til að fjölga konum í stéttinni, að mati yfirmanna íþróttadeilda fjölmiðla sem segja að þeim berist nánast engar starfs- umsóknir frá konum. Samkvæmt fé- lagatali á vefsíðu Samtaka íþrótta- fréttamanna eru 24 í samtökunum, allt karlar. RÚV stendur fyrir íþróttafréttaskóla fyrir konur síðar í þessum mánuði og er markmið hans m.a. að efla hlut kvenna í þessum hluta fréttamennsku. „Maður þarf ekki að skoða hóp íþróttafréttamanna lengi, hvort sem það er hjá okkur eða öðrum fjöl- miðlum, til að sjá að kynjahlutföllin eru í aðra áttina,“ segir Einar Örn Jónsson yfirmaður íþróttadeildar RÚV.„Það er stefna RÚV að jafna hlut kynjanna á sem flestum sviðum og í gegnum tíðina höfum við oft velt því fyrir okkur hvaða leiðir hægt væri að fara til þess í íþróttadeild- inni. Þær konur sem hafa starfað á deildinni hafa ekki fest þar rætur og þegar stöður eru auglýstar sækja konur sjaldan um þær,“ segir Einar. Hann segir hugsanlegt að margir hafi ranga mynd af því sem felist í starfi íþróttafréttamanns „Ég held að sumir haldi að þetta sé stanslaust org og garg í beinum boltalýsingum. Það er bara lítill hluti starfsins og vonandi tekst okkur að draga úr goðsögnunum í kringum starfið.“ Fjölbreytnin góð Einar vonast til að þessi leið beri tilætlaðan árangur. „Miðað við við- brögðin hafa margar konur áhuga á þessu starfi og því ætti að verða ein- hver breyting á.“ „Það er alveg ljóst að það er ekki æskilegt að vera með deild sem í eru eingöngu karlmenn,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson forstöðumaður íþróttasviðs 365, en þar eru allir íþróttafréttamenn karlkyns, líkt og hjá RÚV. Hann segir 365 ekki hyggja á sérstakar aðgerðir til að breyta því, en segir fyrirtækið tilbú- ið til að skoða aðkomu að íþrótta- fréttaskóla RÚV, gefist tækifæri til. „Við höfum einlægan áhuga á að fjölga konum í röðum okkar íþrótta- fréttamanna, en það verður að segj- ast eins og er að þau 15 ár sem ég hef verið í þessu hafa fáar konur sýnt þessu starfi áhuga. Í hinum fullkomna heimi væri jafnari skipt- ing í mörgum störfum, þar á meðal þessu og það þyrfti ekki að vera með sérstakan íþróttafréttaskóla fyrir konur. En þetta er líklega engu að síður nauðsynlegt, við vitum að eftir því sem hópurinn er fjölbreyttari, þeim mun fleiri hugmyndir verða til. Þetta er frábært framtak hjá RÚV og við værum klárlega til í að koma að þessu að einhverju leyti ef eftir því væri leitað,“ segir Óskar. Þær sækja síður um Víðir Sigurðsson, yfirmaður íþróttadeildar Morgunblaðsins og mbl.is, segist telja að ein ástæðan fyrir því að fáar konur starfi sem íþróttafréttamenn gæti verið rang- hugmyndir um starfið. Hann segir að sér berist fjölmarg- ar fyrirspurnir um störf í hverjum einasta mánuði. „Síðan ég tók við þessu starfi fyrir sjö árum hefur ein þeirra verið frá konu og hún var um sumarstarf sem þegar var búið að ráða í. Ég hef margoft haft samband við konur sem ég hef talið að hefðu áhuga á starfinu og myndu standa sig vel í því, en það hefur ekki borið árangur.“ Skiptir máli að hafa bæði konur og karla í þessu starfi? „Já, tvímælalaust og ég myndi gjarnan vilja að þetta væri öðruvísi. Það myndi pottþétt auka breiddina. Mögulega njóta aðrir fjölmiðlar góðs af þessu átaki RÚV.“ Sumir halda að þetta sé stanslaust org  RÚV hyggur á íþróttafréttaskóla fyrir konur  Konur sækja sjaldan um störf á íþróttadeildum fjölmiðla, að sögn yfirmanna deildanna  Ranghugmyndir um starfið eru hugsanlega ástæðan Morgunblaðið/Ómar Útvarpshúsið Þar verður íþróttafréttaskóli fyrir konur. Yfirmaður íþrótta- deildar RÚV vonar að konum meðal íþróttafréttamanna fjölgi í kjölfarið. Alls sóttu 54 lögfræðingar um hálft starf lögfræðings hjá Útfararstofu kirkjugarðanna ehf. Starfið mun að- allega felast í vinnu við gerð erfðaskráa og kaupmála ásamt því að aðstoða fjölskyldur við dánarbússkipti. Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Útfararstofu kirkjugarðanna ehf., telur gæta misskilnings í afstöðu Lögmannafélags Ís- lands til áforma útfararstofunnar eins og greint var frá í Morgunblaðinu síðastliðinn fimmtudag. Hún sagði að útfararstofan hygðist auka þjónustustig sitt og bjóða upp á þjónustu sem félli utan einkaréttar lögmanna. gudni@mbl.is 54 lögfræðingar sóttu um hálft starf hjá útfararstofu Elín Sigrún Jónsdóttir Mbl.is fór í heimsókn á æfingu hjá fimleikakappanum Jóhanni Fann- ari Kristjánssyni og hitti hann og fjölskyldu hans á heimili þeirra í Kópavogi. Veggirnir í svefn- herbergi Jóhanns eru þaktir verð- launapeningum, auk þess sem hann er með áritaðan búning frá félaga sínum Alfreð Finnbogasyni, bolta áritaðan af Íslandsmeisturum Breiðabliks og ýmislegt fleira. Nú er Jóhann kominn á fullt við æfingar, en hann keppir á Special Olympics í Los Angeles í júlí. Jó- hann fer fyrir hönd Gerplu, ásamt þeim Eydísi Ásgeirsdóttur, Birki Eiðssyni og Erlu Björgu Haralds- dóttur. Ítarlegt viðtal við Jóhann er á mbl.is Á fullu að æfa fyrir Special Olympics  Jóhann Fannar Kristjánsson í Gerplu Morgunblaðið/Kristinn Kóngurinn Jóhann Fannar Kristjánsson hitar upp fyrir æfingu hjá Gerplu. LEIÐRÉTT Ráðherrabörn á þingi Í umfjöllun blaðsins í fyrradag um ráðherrabörn á þingi misritaðist nafn Svandísar Svavarsdóttur. Þá sagði í fréttinni að Bjarni Benediktsson hefði setið á þingi 1942-1946 og 1949-1970. Hið rétta er að þingmannsferill Bjarna var samfelldur frá 1942-1970. Einnig var Friðrik Sophusson sagður hafa set- ið á þingi 1978-1979 og síðan 1979-1998, en Friðrik sat samfellt á þingi 1978- 1998. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Skannaðu kóðann til að sjá viðtalið við Jóhann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.