Morgunblaðið - 02.02.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.02.2015, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2015 Útivera Veðrið lék við höfuðborgarbúa í gær og þessir krakkar nýttu tækifærið eins og best verður á kosið í brekkunni skammt frá rafstöðinni í Elliðaárdal í Reykjavík. Kristinn Forystusveit ESB á ekki sjö dagana sæla á þessum vetri og það sama á við um almenning í mörgum aðildarrríkjum, þar sem atvinnuleysi hefur farið vaxandi, sérstaklega meðal ungs fólks. Stórsigri Syriza- flokksins í Grikklandi fyrir röskri viku má líkja við jarð- skjálfta, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum á pólitískt landslag, einnig í öðrum skuldsettum ESB-löndum eins og á Spáni. Þar kveður sér nú hljóðs fjöldafylkingin Pode- mos („Við getum“) og skorar bæði sósíal- demókrata og hægriflokkinn PP á hólm. Sam- eiginleg krafa þessara hreyfinga sem skilgreina sig til vinstri er niðurfærsla skulda af hálfu lánardrottna, stöðvun einkavæðingar og innspýting í efnahagslífið m.a. með opinber- um framkvæmdum til að draga úr atvinnu- leysi. Fyrstu viðbrögð af hálfu framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins og þýskra stjórnvalda eru eitt stórt NEI, útstrikun og af- létting skulda sé ekki í boði. – Á hinu leitinu eru síðan þjóðernissinnaðir hægriflokkar sem sækja í sig veðrið í krafti andúðar á sívaxandi fjölda innflytjenda og flóttafólks frá Afríku og stríðshrjáðum löndum fyrir botni Miðjarð- arhafs. Þessar hræringar geta fyrr en varir breytt pólitísku landslagi í ESB og leitt af sér enn frekari sundrungu innan myntbandalags- ins og jafnvel fall evrunnar. Margir samverkandi þættir Myntbandalaginu með evru sem gjaldmiðil var komið á um síðustu aldamót og nú eru 19 ríki aðilar að því. Sett voru ákveðin þjóðhagsleg viðmið fyrir þátttöku en fljótlega varð ljóst að þau voru ekki tekin hátíðlega, hvorki af fjölmennum eða fámennum ríkjum. Pólitískar fremur en efnahagslegar ástæður réðu för og fyrirhugaður fjárhags- legur samruni (fiscal union) hefur látið á sér standa. Efnahags- grunnur evruríkjanna er líka mjög ólíkur og í mörgum þeirra er landlæg spilling, sem ekki hefur tekist að uppræta. Stórfelld til- færsla fjármuna í skattaskjól eru opinbert leyndarmál og forseti framkvæmdastjórnar ESB, Lúxemborgarinn Jean-Claude Juncker, liggur undir ámæli fyrir að hafa rutt slíkum farvegum braut. Grikkland er eitt af þeim ríkj- um þar sem spillt stjórnmálaöfl í samstarfi við auðjöfra hafa haft tögl og hagldir um langt skeið. Þessir aðilar, í samstarfi við ESB, Al- þjóða gjaldeyrissjóðinn og Seðlabanka Evr- ópu, hafa hert svo ólarnar að grískum almenn- ingi að stór hluti kjósenda þar hefur nú sagt hingað og ekki lengra, og krafan um skulda- niðurfærslu endurómar æ víðar. Í Frakklandi hefur ríkt stöðnun samfara 10% atvinnuleysi og gríska bakterían er þegar farin að smita inn í raðir Sósíalistaflokksins sem er við stjórnvöl- inn og á nú í vök að verjast frá hægri og vinstri. Hraðvaxandi samþjöppun auðs Upplýsingar OECD og fleiri alþjóðastofn- ana um stöðuga samþjöppun auðs og eigna á æ færri hendur afhjúpar eðli og innviði ríkjandi efnahagskerfis. Þetta gangverk kapítalismans hefur lengi mátt vera lýðum ljóst, en með frjálsum fjármagnshreyfingum samhliða net- væðingu gagnaflutninga á síðasta aldarþriðj- ungi hefur orðið stökkbreyting sem ýtt hefur svo um munar undir þessa þróun. Jafnframt hefur orðið auðveldara að safna um hana töl- fræðilegum upplýsingum og nýir samskipta- miðlar auðvelda almenningi að fylkja sér gegn óréttlætinu. Við blasir að hátt í helmingur af veraldarauði er kominn í hendur um 1% jarð- arbúa og ekkert lát er á þeirri samþjöppun. Þessi þróun og ástæður hennar er meginþema í bók franska hagfræðingsins Thomas Piket- tys, sem kom út á árinu 2013 og vakið hefur mikla athygli. (Ensk þýðing 2014: Capital in the Twenty-first century). Höfundurinn bend- ir á að þessi þróun sé ógnun við lýðræði og fé- lagslegan og efnahagslegan stöðugleika og leggur til stighækkandi kapítalskatta til að hamla gegn henni. Í Bandaríkjunum er þetta heitt umræðuefni þar sem þrengir mjög að millistéttarhópum, og svipað er uppi á ten- ingnum innan ESB. Spár um hrun evrunnar Úr ýmsum áttum heyrast nú raddir sem spá ekki aðeins vaxandi erfiðleikum á evru- svæðinu, heldur telja að hætta sé á hruni myntsamstarfsins. Þannig taldi ritstjórn tímaritsins Economist sl. haust (25. okt. 2014) að mesti efnahagsvandi heimsins stafaði af verðhjöðnun innan evrusvæðisins. „Á sama tíma og skuldabyrðin vex frá Ítalíu til Grikk- lands munu fjárfestar fyllast ótta, pópúlískir stjórnmálamenn fá aukinn stuðning og – fyrr en seinna – mun evran hrynja.“ Tveimur dög- um fyrir grísku þingkosningarnar greip Mar- io Draghi, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, til þess örþrifaráðs að láta bankann hefja seðla- prentun í stórum stíl til kaupa á skuldabréf- um í von um að hamla gegn áframhaldandi samdrætti. Markmiðið er að ýta undir eyðslu og verðbólgu. Áhrifin á almenning eru að mati Der Spiegel (22. jan. 2015): „Þeir sem spara munu tapa, en lántakendur hagnast.“ Eflaust bíða margir spenntir eftir að sjá hvort þessi hrossalækning skilar einhverju. Hún er hins vegar skýr sýnikennsla í því, hvernig komið er fyrir fullveldi ríkja sem af- hent hafa Evrópusambandinu forsjá sinna mála. Eftir Hjörleif Guttormsson »Úr ýmsum áttum heyrast nú raddir sem spá ekki að- eins vaxandi erfiðleikum á evrusvæðinu, heldur telja að hætta sé á hruni myntsam- starfsins. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. ESB í uppnámi eftir stjórnarskiptin í Grikklandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.