Morgunblaðið - 02.02.2015, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 2015
Útivera Veðrið lék við höfuðborgarbúa í gær og þessir krakkar nýttu tækifærið eins og best verður á kosið í brekkunni skammt frá rafstöðinni í Elliðaárdal í Reykjavík.
Kristinn
Forystusveit ESB á ekki sjö
dagana sæla á þessum vetri og
það sama á við um almenning í
mörgum aðildarrríkjum, þar
sem atvinnuleysi hefur farið
vaxandi, sérstaklega meðal
ungs fólks. Stórsigri Syriza-
flokksins í Grikklandi fyrir
röskri viku má líkja við jarð-
skjálfta, með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum á pólitískt landslag,
einnig í öðrum skuldsettum
ESB-löndum eins og á Spáni.
Þar kveður sér nú hljóðs fjöldafylkingin Pode-
mos („Við getum“) og skorar bæði sósíal-
demókrata og hægriflokkinn PP á hólm. Sam-
eiginleg krafa þessara hreyfinga sem
skilgreina sig til vinstri er niðurfærsla skulda
af hálfu lánardrottna, stöðvun einkavæðingar
og innspýting í efnahagslífið m.a. með opinber-
um framkvæmdum til að draga úr atvinnu-
leysi. Fyrstu viðbrögð af hálfu framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins og þýskra
stjórnvalda eru eitt stórt NEI, útstrikun og af-
létting skulda sé ekki í boði. – Á hinu leitinu
eru síðan þjóðernissinnaðir hægriflokkar sem
sækja í sig veðrið í krafti andúðar á sívaxandi
fjölda innflytjenda og flóttafólks frá Afríku og
stríðshrjáðum löndum fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Þessar hræringar geta fyrr en varir
breytt pólitísku landslagi í ESB og leitt af sér
enn frekari sundrungu innan myntbandalags-
ins og jafnvel fall evrunnar.
Margir samverkandi þættir
Myntbandalaginu með evru sem
gjaldmiðil var komið á um síðustu
aldamót og nú eru 19 ríki aðilar að
því. Sett voru ákveðin þjóðhagsleg
viðmið fyrir þátttöku en fljótlega
varð ljóst að þau voru ekki tekin
hátíðlega, hvorki af fjölmennum
eða fámennum ríkjum. Pólitískar
fremur en efnahagslegar ástæður
réðu för og fyrirhugaður fjárhags-
legur samruni (fiscal union) hefur
látið á sér standa. Efnahags-
grunnur evruríkjanna er líka mjög
ólíkur og í mörgum þeirra er landlæg spilling,
sem ekki hefur tekist að uppræta. Stórfelld til-
færsla fjármuna í skattaskjól eru opinbert
leyndarmál og forseti framkvæmdastjórnar
ESB, Lúxemborgarinn Jean-Claude Juncker,
liggur undir ámæli fyrir að hafa rutt slíkum
farvegum braut. Grikkland er eitt af þeim ríkj-
um þar sem spillt stjórnmálaöfl í samstarfi við
auðjöfra hafa haft tögl og hagldir um langt
skeið. Þessir aðilar, í samstarfi við ESB, Al-
þjóða gjaldeyrissjóðinn og Seðlabanka Evr-
ópu, hafa hert svo ólarnar að grískum almenn-
ingi að stór hluti kjósenda þar hefur nú sagt
hingað og ekki lengra, og krafan um skulda-
niðurfærslu endurómar æ víðar. Í Frakklandi
hefur ríkt stöðnun samfara 10% atvinnuleysi
og gríska bakterían er þegar farin að smita inn
í raðir Sósíalistaflokksins sem er við stjórnvöl-
inn og á nú í vök að verjast frá hægri og
vinstri.
Hraðvaxandi
samþjöppun auðs
Upplýsingar OECD og fleiri alþjóðastofn-
ana um stöðuga samþjöppun auðs og eigna á æ
færri hendur afhjúpar eðli og innviði ríkjandi
efnahagskerfis. Þetta gangverk kapítalismans
hefur lengi mátt vera lýðum ljóst, en með
frjálsum fjármagnshreyfingum samhliða net-
væðingu gagnaflutninga á síðasta aldarþriðj-
ungi hefur orðið stökkbreyting sem ýtt hefur
svo um munar undir þessa þróun. Jafnframt
hefur orðið auðveldara að safna um hana töl-
fræðilegum upplýsingum og nýir samskipta-
miðlar auðvelda almenningi að fylkja sér gegn
óréttlætinu. Við blasir að hátt í helmingur af
veraldarauði er kominn í hendur um 1% jarð-
arbúa og ekkert lát er á þeirri samþjöppun.
Þessi þróun og ástæður hennar er meginþema
í bók franska hagfræðingsins Thomas Piket-
tys, sem kom út á árinu 2013 og vakið hefur
mikla athygli. (Ensk þýðing 2014: Capital in
the Twenty-first century). Höfundurinn bend-
ir á að þessi þróun sé ógnun við lýðræði og fé-
lagslegan og efnahagslegan stöðugleika og
leggur til stighækkandi kapítalskatta til að
hamla gegn henni. Í Bandaríkjunum er þetta
heitt umræðuefni þar sem þrengir mjög að
millistéttarhópum, og svipað er uppi á ten-
ingnum innan ESB.
Spár um hrun evrunnar
Úr ýmsum áttum heyrast nú raddir sem
spá ekki aðeins vaxandi erfiðleikum á evru-
svæðinu, heldur telja að hætta sé á hruni
myntsamstarfsins. Þannig taldi ritstjórn
tímaritsins Economist sl. haust (25. okt. 2014)
að mesti efnahagsvandi heimsins stafaði af
verðhjöðnun innan evrusvæðisins. „Á sama
tíma og skuldabyrðin vex frá Ítalíu til Grikk-
lands munu fjárfestar fyllast ótta, pópúlískir
stjórnmálamenn fá aukinn stuðning og – fyrr
en seinna – mun evran hrynja.“ Tveimur dög-
um fyrir grísku þingkosningarnar greip Mar-
io Draghi, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, til
þess örþrifaráðs að láta bankann hefja seðla-
prentun í stórum stíl til kaupa á skuldabréf-
um í von um að hamla gegn áframhaldandi
samdrætti. Markmiðið er að ýta undir eyðslu
og verðbólgu. Áhrifin á almenning eru að
mati Der Spiegel (22. jan. 2015): „Þeir sem
spara munu tapa, en lántakendur hagnast.“
Eflaust bíða margir spenntir eftir að sjá
hvort þessi hrossalækning skilar einhverju.
Hún er hins vegar skýr sýnikennsla í því,
hvernig komið er fyrir fullveldi ríkja sem af-
hent hafa Evrópusambandinu forsjá sinna
mála.
Eftir Hjörleif Guttormsson
»Úr ýmsum áttum heyrast
nú raddir sem spá ekki að-
eins vaxandi erfiðleikum á
evrusvæðinu, heldur telja að
hætta sé á hruni myntsam-
starfsins.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
ESB í uppnámi eftir stjórnarskiptin í Grikklandi