Morgunblaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2015 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Teppi á stigaganginn - nú er tækifærið ! Komum á staðinn með prufur og mælum, ykkur að kostnaðarlausu Eitt verð niðurkomið kr. 6.390 m2 Evrópustofa er áróðursskrif-stofa Evrópusambandsins hér á landi, sett á fót til að hjálpa fyrri ríkisstjórn að sannfæra Íslendinga um nauðsyn aðildar. Eins og rætt hefur verið um umsóknina hér á landi, að hún sé ekki lengur raun- veruleg, þá kemur sjálfsagt ein- hverjum á óvart að áróðursskrif- stofa Evrópusambandsins skuli enn vera starfandi.    Nýjasta útspiliðer að auglýsa upp „námskeið“ sem fer fram eitt kvöld þar sem tveir fyrrverandi forystu- menn Samfylking- arinnar fjalla um Evrópusambandið.    Magnús ÁrniMagnússon, fyrrverandi þing- maður Samfylking- arinnar, og Eiríkur Bergmann Einars- son, fyrrverandi varaþingmaður flokksins, munu þar – án efa af sama hlutleysi og jafnan – ræða við þá sem setjast á þetta „ókeypis“ „námskeið“.    Sú staðreynd að Evrópusam-bandið heldur áfram uppi áróðri hér á landi, í samvinnu við Samfylkinguna og aðra ámóta, ætti að vera umhugsunarefni fyrir þá sem telja ástæðulaust að draga að- ildarumsóknina til baka.    ESB og Samfylkingin vita að ámeðan umsóknin er fyrir hendi er við réttar aðstæður hægt að koma Íslandi fyrirvaralítið inn í sambandið.    Þess vegna er áróðrinum haldiðgangandi og meðal annars þess vegna leggur Samfylkingin allt undir að halda lífi í umsókninni. Magnús Árni Magnússon Áróðursskrifstofa ESB er enn að STAKSTEINAR Eiríkur Berg- mann Einarsson Veður víða um heim 15.2., kl. 18.00 Reykjavík 0 snjókoma Bolungarvík -4 snjókoma Akureyri 4 skýjað Nuuk -17 léttskýjað Þórshöfn 7 skúrir Ósló -2 snjóél Kaupmannahöfn 2 alskýjað Stokkhólmur -1 heiðskírt Helsinki -5 heiðskírt Lúxemborg 5 heiðskírt Brussel 8 heiðskírt Dublin 7 skýjað Glasgow 8 léttskýjað London 8 léttskýjað París 7 alskýjað Amsterdam 2 þoka Hamborg 3 heiðskírt Berlín 7 heiðskírt Vín 7 léttskýjað Moskva -6 snjókoma Algarve 15 skýjað Madríd 13 léttskýjað Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 8 léttskýjað Winnipeg -18 snjókoma Montreal -17 skafrenningur New York -8 alskýjað Chicago -12 snjókoma Orlando 20 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 16. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:21 18:04 ÍSAFJÖRÐUR 9:35 17:59 SIGLUFJÖRÐUR 9:19 17:42 DJÚPIVOGUR 8:53 17:31 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Læknir á Heilsugæslunni í Efstaleiti er bjartsýnn á að vel gangi að manna tvær sérnámsstöður í heimilislækn- ingum sem auglýstar voru á stöðinni á dögunum. Læknaskortur hefur háð starf- semi stöðvarinnar undanfarnar vik- ur og ekki hefur verið hægt að halda uppi fullri þjónustu. Gert er ráð fyrir að væntanlegir sérnámslæknar komi að einhverju leyti í stað þeirra lækna sem vantar. Læknar stöðvarinnar eru m.a. í veikindaleyfi og fæðingarorlofi fram á vor og sagði yfirlæknir stöðv- arinnar í samtali við Morgunblaðið fyrir um mánuði að engan lækni væri að fá. Margrét Ólafía Tóm- adóttir, heimilislæknir á Heilsu- gæslunni í Efstaleiti, segir auglýs- inguna um sérnámsstöðurnar ekki ætlaða til að bæta beint úr þessu ástandi. „Enda eru þetta námsstöður og þeir sem fara í þær þurfa góðan stuðning sérfræðinga. En þeir ganga í flest almenn störf,“ segir Margrét. Hún segir að yfirleitt séu tveir sérnámslæknar á stöðinni, þeir sem nú séu þar ljúki fljótlega sínu námi og því sé nú auglýst. „Það hefur oft- ast nær gengið mjög vel að fá sér- námslækna,“ segir Margrét. Áhugi á heimilislækningum Sérnám í heimilislækningum er fjögurra og hálfs árs langt, þar af eru tvö og hálft á heilsugæslustöð. Margrét segir að nú séu 35 læknar í sérnámi í heimilislækningum hér á landi, það sé mikil aukning frá því fyrir 4-5 árum þegar þeir voru 12. Um þriðjungur sérnámslæknanna sé úti á landi, hinir dreifist um höf- uðborgarsvæðið. „Það hefur orðið gríðarleg breyting á aðsókn í námið á örfáum árum, sem er mikið gleðiefni. Ég vona að ástæðan sé sú að hug- myndafræði heimilislækninga og starf heimilislæknisins sé að heilla meira; að okkur hafi tekist að koma þeim skilaboðum áleiðis. Kannski spilar inn í að það hefur verið ákveð- in óánægja með spítalana sem vinnustaði,“ segir hún. Bjartsýn á að sérnámslæknar fáist  Læknaskortur hefur háð nokkuð starfsemi Heilsugæslunnar í Efstaleiti Morgunblaðið/Eggert Efstaleiti Heilsugæslustöðin hefur þurft að glíma við mikinn læknaskort.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.