Morgunblaðið - 16.02.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2015
VERKFÆRI MEISTARANS Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899Netfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is
Malín Brand
malin@mbl.is
Ísland hefur verið vinsælláfangastaður á meðal stór-stjarna og eru stjörnurnar úrþáttunum RuPaul’s Drag
Race á leið hingað í apríl. Af þeim
fimmtíu borgum sem þær halda sýn-
ingar í eru átta í Evrópu og þar á
meðal er Reykjavík.
RR Ltd. heldur utan um drag-
sýninguna sem haldin verður í Gamla
bíói 17. apríl og ferða- og viðburða-
skrifstofan Pink Iceland heldur utan
um hópinn og sýnir dragdrottning-
unum fegurð lands og þjóðar. Hannes
Páll Pálsson, einn eigenda Pink Ice-
land, fagnar því að tekist hafi að fá
drottningarnar til litlu eyjarinnar í
norðri. „Við erum öll miklir aðdá-
endur þáttarins RuPaul’s Drag Race
og finnst æðislegt að fá hingað sex
dragdrottningar sem hafa allar orðið
gríðarlega frægar í kjölfar þess að
hafa verið í þáttunum. Sumar þeirra
hafa unnið og hinar lent ofarlega,“
segir Hannes.
Miklar kanónur á ferð
Listamennirnir eru hver um sig
með mörg hundruð fylgjendur á sam-
félagsmiðlum á borð við Twitter, In-
stagram og Facebook, enda risastór
nöfn sem eiga sér fjölda aðdáenda.
„Þetta er nánast konungborið fólk og
mikill heiður að fá að sýna þeim land-
ið,“ segir Hannes. Einungis ein sýn-
ing verður í Reykjavík en hvers
vegna ætli Gamla bíó hafi orðið fyrir
valinu? „Það er hæfileg stærð fyrir
show, gott svið og nýbúið að gera
húsið upp þannig að það er glæsilegt
og hæfir drottningum. Staðsetningin
Dragið er mikilvægt
tjáningarform
Sex stórstjörnur úr heimi dragsins koma hingað til lands í apríl og halda sýningu
í Reykjavík. RuPaul’s Drag Race: Battle Of The Seasons nefnist sýningin sem
verður sett upp í um fimmtíu borgum víðsvegar um Bandaríkin og Evrópu. Drag-
drottningarnar sex eiga það sammerkt að hafa slegið í gegn í raunveruleikaþátt-
unum RuPaul’s Drag Race þar sem dragstjarna Bandaríkjanna er valin.
Kvíði er eðlileg mannleg til-finning sem knýr okkur tilað vera á varðbergi, tilbúin
að bregðast við yfirvofandi hættu.
Hjá mörgum verður þó kvíða-
viðbragðið of virkt, þ.e. hættu-
ástandið er ofmetið og manneskjan
finnur oftar fyrir kvíða en tilefni eða
aðstæður eru til. Kvíðaraskanir eru
margskonar og eru þær helstu al-
menn kvíðaröskun, ofsakvíði, af-
mörkuð fælni, félagsfælni/kvíði,
heilsukvíði, áráttu- og þráhyggju-
röskun og áfallastreituröskun.
Kvíðaraskanir eru mun algengari en
flestir halda. Um þriðjungur fólks
fær kvíðaröskun einhvern tímann á
lífsleiðinni og algengt er að þjást af
fleiri en einni kvíðaröskun.
Einkenni kvíða eru margvísleg og
þó að flestir upplifi mörg einkennin
þá er það mjög persónulegt hvaða
einkenni fólk upplifir. Helstu ein-
kenni kvíða eru eftirfarandi:
Ör/þungur/hraður hjartsláttur
Verkir eða þrýstingur í brjósti
Skjálfti
Svimi
Dofatilfinning eða nálardofa-
tilfinning í hlutum líkamans
Andþyngsli/köfnunartilfinning
Grunn og ör öndun
Ótti við að missa sjálfstjórn
Vöðvaspenna
Höfuðverkur
Einbeitingarerfiðleikar
Munnþurrkur
Skjálfandi rödd/spennt raddbönd
Skapsveiflur
Sviti
Þreyta
Minnkuð kynhvöt
Meltingartruflanir / ógleði
Kuldaköst eða hitaköst
Óraunveruleikatilfinning
(þröngt sjónsvið)
Sjóntruflanir / þokukennd sjón
Ótti við að deyja
Tíðari þvag og hægðalosun
Óskýr hugsun
Roði / fölvi
Svefntruflanir
Miklar áhyggjur / hörmungar-
hugsanir
Eins og sjá má af listanum er birt-
ingarmynd kvíðans ekki bara marg-
þætt heldur virkilega óþægileg og
einkennin geta haft veruleg haml-
andi áhrif á líf einstaklingsins. Sá
sem glímir við kvíða upplifir sig oft
á valdi kvíðans, þ.e. eins og hann
hafi ekki stjórn í eigin lífi heldur
miðast meira og minna allt daglegt
líf við það að komast hjá kvíða. Það
er mjög skiljanlegt þar sem kvíði er
mjög óþægilegt ástand og engum
líður vel þar, en aftur á móti er það
einmitt það versta sem maður getur
gert, þ.e. að forðast allt sem getur
valdið kvíða. Kvíði er nefnilega ekki
hættulegur og getur ekki valdið
neinum sjúkdómum (ekki heldur
geðsjúkdómum). Kvíðaröskun þarf
ekki (og á ekki) að vera ástand sem
fólk sættir sig við að vera með og
miðar líf sitt út frá (með miklum
takmörkunum). Það er hægt að fá
hjálp og losna úr fjötrunum. Þegar
fjötrarnir losna tekur við frelsi til að
taka við stjórntaumunum í eigin lífi.
Þeir sem glíma við kvíðaröskun af
einhverju tagi eða mikið af ofan-
greindum einkennum, eiga ekki að
bíða með að leita sér hjálpar hjá
viðurkenndum fagaðilum eins og
læknum eða sálfræðingum og fá aft-
ur valdið í sínu lífi. Losið fjötrana og
lifið frjáls.
• Heilsustöðin sálfræði- og ráð-
gjafaþjónusta, Skeifunni 11a, Rvk.
www.heilsustodin.is
Getty Images/moodboard RF
Kvíði Getur valdið mikilli vanlíðan.
Í fjötrum kvíðans
Heilsupistill
Bryndís Einarsdóttir
sálfræðingur
Í liðinni viku settist þetta vinalega vélmenni sem gengur undir nafn-
inu hitchBOT, við vegkant í München í Þýskalandi og sýndi sitt vél-
ræna bros. Tilefnið var að vélmennið síbrosandi lagði þá upp í tíu
daga gönguferð um Þýskaland. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem
broskallinn leggur upp í langferð, því áður hefur hann farið í 6.000
kílómetra langa gönguferð um Kanada, en það var í fyrrasumar. Hitch-
BOT er kúnstugt vélmenni sem eflaust á eftir að gleðja þá sem á vegi
þess verða.
Þótt þú langförull legðir sérhvert land undir fót
Vélmennið er farið aftur á flakk
og nú þvælist það um Þýskaland
Vélmennið hitchBOT Sérlega vinalegt og litríkt og skartar forláta stígvélum til göngu.Brosa Alltaf kátt.
Sönn dragdrottning
Sharon Needles er
mjög spennt að koma
til Íslands.