Morgunblaðið - 16.02.2015, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2015
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
Í 77% tilvika eru börn sem
beitt eru kynferðisofbeldi
í fyrsta sinn ekki
orðin 13 ára.
MÁ BJÓÐA ÞÉR
Í SJÓNMÆLINGU?
20% afsláttur af öllum gleraugum.
Gildir út febrúar.
Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 – Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 8.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
• Lönguhlíð
• Dalbraut 1
með Nizza hnetusúkkulaði, karmelluglassúr og lakkrískurli
LAKKRÍSBOLLUR
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NÝTT
„Það er alveg klárt mál að þetta mun
draga úr aðsókn í Kolaportið. Hins
vegar hefur aðsókn erlendra ferða-
manna alltaf verið að aukast og ég
held að þessi aðgerð muni ekki hafa
áhrif á það. Erlendir ferðamenn eru
alltaf að verða stærri hluti af okkar
gestahópi,“ segir Gunnar Hákonar-
son, framkvæmdastjóri Kolaports-
ins.
Brátt hefst jarðvinna á Hörpu-
reitnum við Tollhúsið, þar sem til
stendur að reisa fjögurra til sex
hæða byggingar með 80 íbúðum auk
verslunar og þjónustuhúsnæðis.
Væntanlega verður þeim 195 bíla-
stæðum sem eru við Tollhúsið lokað
meðan á framkvæmdum stendur, en
þær munu taka þrjú ár. Fyrst verður
hafist handa við að leita að fornminj-
um áður en byrjað er að grafa fyrir
bílakjallaranum.
Gunnar kveðst ekki vita hvort
borgin ætlar að bregðast við lokun
bílastæðisins meðan á framkvæmd-
unum stendur. „Ég hef ekki heyrt
talað um nein slík áform, en auðvitað
mun þetta hafa áhrif á aðsókn í
miðbæinn, ekki bara Kolaportið
heldur miðbæinn allan,“ segir Gunn-
ar og bætir við að bílastæði í mið-
bænum séu ákaflega vel nýtt, þess
vegna sé mikill missir af þessum
bílastæðum. isb@mbl.is
Mun draga úr að-
sókn í Kolaportið
Vinna hefst brátt við Hörpureitinn
Teikning var frá
GP Arkitektum
Teikning sem birtist hér í blaðinu
12. febrúar af breytingum á hús-
inu nr. 8 við Eddufell var unnin af
GP Arkitektum. Fyrir mistök var
teikningin merkt Reykjavík-
urborg. Er beðist velvirðingar á
þessu.
LEIÐRÉTT
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Áætlaður kostnaður vegna aksturs-
þjónustu fyrir fatlað fólk á árinu
2015 er samtals um 1.277 milljónir
króna. Þar af eru um 1.200 milljónir
vegna aksturs og 77 milljónir vegna
miðlægs kostnaðar. Kostnaður
ferðaþjónustunnar vegna síðasta
janúarmánaðar liggur ekki fyrir að
svo stöddu.
Þetta kemur fram í svörum
Strætó vegna fyrirspurnar Morgun-
blaðsins um kostnað við ferðaþjón-
ustuna. Alls eru þetta rúmar 106
milljónir króna í hverjum mánuði.
Unnið að óháðri úttekt
Notendur ferðaþjónustu fatlaðra
eru rúmlega 2.500 en farnar eru
rúmlega 1.500 ferðir á dag. Ekki
fékkst uppgefið hvernig kostnaðin-
um er skipt á milli sveitarfélaganna.
Sérstök neyðarstjórn hefur verið
sett tímabundið yfir stjórn ferða-
þjónustu fatlaðs fólks og er Stefán
Eiríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar, formaður henn-
ar. Neyðarstjórnin á að tryggja
áreiðanleika og öryggi þjónustunnar
með auknu samstarfi allra hlutaðeig-
andi. Er unnið dag og nótt til að leið-
rétta það sem miður hefur farið.
Margt hefur farið úrskeiðis hjá
ferðaþjónustu fatlaðra síðustu vikur.
Innri endurskoðun Reykjavíkur-
borgar hefur verið falið að gera
óháða úttekt á aðdraganda, innleið-
ingu og framkvæmd ferðaþjónustu
fatlaðs fólks hjá Strætó.
Spurningunum sem lagðar voru
fyrir borgarráð af hálfu borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins í janúar sl.
hefur ekki enn verið svarað.
Þar spurðu borgarfulltrúarnir
átta spurninga sem erfiðlega hefur
gengið að fá svör við:
1. Hvaða tölvukerfi var tekið upp
hjá Strætó bs. til að sinna þessu
verkefni?
2. Var þetta keypt sem staðlað
kerfi eða er þetta sérsmíðað og þá af
hverjum?
3. Var sú þjónusta boðin út?
4. Hver var ráðgjafi Strætó bs. við
val á þessum búnaði, aðlögun, þjálf-
un og innleiðingu?
5. Hvað kostaði þetta tölvukerfi?
6. Hver mun bera kostnaðinn af
þeirri leiðréttingu sem greinilega
þarf að gera?
7. Mun sá rekstrarsparnaður sem
áætlað var að ná við útboð á þjónust-
unni nást?
8. Var of mörgu fólki með reynslu
sagt upp þannig að þekking yfir-
færðist ekki við breytingu á þjónust-
unni?
Yfir 100 milljónir á mánuði
Áætlaður kostnaður vegna akstursþjónustu fyrir fatlaða á árinu 2015 er um
1.277 milljónir Rúmlega 1.500 ferðir á dag Mörgum spurningum ósvarað
Morgunblaðið/Kristinn
Strætó Ferðaþjónusta fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu hefur verið í deigl-
unni. Aksturinn er annasamur en um 1.500 ferðir eru farnar á dag.
Málefni
Strætó bs.
voru til um-
ræðu í bæj-
arstjórn
Kópavogs
fyrir helgi.
Þar lagði
Birkir Jón
Jónsson,
fulltrúi
Framsóknar, fram nokkrar
spurningar til stjórnar Strætó,
bæjarlögmanns Kópavogs og
Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu (SSH), í til-
efni frétta af ferðaþjónustu
fatlaðra. Meðal þess sem Birkir
vill fá að vita er hver beri ábyrgð
á störfum neyðarstjórnarinnar,
hvort það sé stjórn Strætó eða
stjórn SSH, og hvort lagagrund-
völlur sé fyrir skipan neyðar-
stjórnarinnar. Þá vill Birkir vita
hvort til standi að láta gera
óháða úttekt á aðkomu stjórnar
Strætó og SSH að ákvörðunum í
tengslum við kerfisbreytingu á
ferðaþjónustunni.
Einnig spurt
í Kópavogi
MÁLEFNI STRÆTÓ BS.
Birkir Jón Jónsson