Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Frá því í desember hefur verið heim- ilt að selja matvæli sem merkt eru með „best fyrir“-merkingunni. Var slíkum vörum áður fargað þegar þessari dagsetningu var náð. Þetta varð heimilt með reglu- gerðarbreytingu hjá atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytinu. Fjallað var um matarsóun í Morgunblaðinu í gær og gagnrýndi Steinþór Skúla- son, forstjóri SS, af því tilefni það viðhorf að ekki megi gefa út- runnin matvæli, þótt vel séu hæf til neyslu. „Hér er hent miklu af pakkavöru og þurrvöru á sama tíma og margir nánast svelta. Ég tel fráleitt – eins og gert var að grýlu í tilteknum fjöl- miðlum fyrir nokkrum árum – að ekki mega gefa vöru eins og morg- unkorn, kex og aðrar pakkavörur, þótt hún sé útrunnin. Þessi vara get- ur verið í fullkomnu lagi,“ sagði Steinþór m.a. í Morgunblaðinu í gær. Merking matvara hefur breyst Jónína Þ. Stefánsdóttir, fagsviðs- stjóri í merkingum matvæla hjá Matvælastofnun, situr í samstarfs- hópi um matarsóun. Hópurinn var stofnaður í september og stefnir að því að birta niðurstöður og tillögur á degi umhverfisins 25. apríl nk. Jónína segir að áður hafi þurft að merkja vörur með fimm daga geymsluþol eða minna með „síðasta neysludegi“. Aðrar vörur voru merktar með „best fyrir“-merking- unni. Um vörur í báðum flokkum gilti að þær mátti ekki selja eftir að dagsetningu var náð. Það hefur nú breyst. „Nú skal merkja vörur með síð- asta notkunardegi ef hætta er á að í þeim vaxi sjúkdómsvaldandi örverur þannig að þær eru ekki öruggar til neyslu eftir dagsetningu síðasta notkunardags. Það má ekki selja þær eftir að komið er fram yfir dag- setningu. Hins vegar má selja vörur sem eru með „best fyrir“-merkingu – og það á augljóslega við um allar þurrvörur og vörur sem geymast lengi – eftir að komið er fram yfir dagsetningu, að því tilskildu að þær séu neysluhæfar. Þetta getur alveg teygt sig niður í kælivörur og átt við um t.d. osta, mjólk og kjöt sem á eftir að elda.“ Vitundarvakning um sóunina Jónína kveðst aðspurð ekki hafa tölfræði á takteinum um það hversu mikið vandamál matarsóun sé á Ís- landi. Hún telur þó að vitundarvakn- ing sé að verða varðandi matarsóun. „Það er ákveðinn hópur sem hefur mikinn áhuga á þessu. Eflaust er líka annar hópur sem hefur engar áhyggjur af þessu,“ segir Jónína. Suma útrunna matvöru er heimilt að gefa  Nýjar reglur tóku gildi í desember  Hópur um matarsóun að störfum Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um að börn sem fengju inngöngu í leikskóla Reykjavíkurborgar yrðu að vera bólusett nema læknisfræðilegar ástæður höml- uðu því, var felld á fundi borgarstjórnar í gær með níu atkvæðum meirihlutans gegn fjórum atkvæðum borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Samþykkt var hins vegar að farið yrði í áhættumat vegna smitsjúkdóma. Forvarnargildi og fordæmisgefandi Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa sent frá sér tilkynningu þar sem harmað er að því hafi verið hafnað að skóla- og frístundasviði yrði falið „að skoða hvernig best er hægt að útfæra aðgerðir til að tryggja að inn- göngu í leikskóla Reykjavíkur fái eingöngu þau börn sem bólusett hafa verið við smitsjúkdómum, nema læknis- fræðilegar ástæður hamli. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokks harma jafnframt að meirihlutinn hafi ekki komið til móts við sjónarmið tillögunnar að neinu leyti með því að leggja ekki til að sviðinu verði falið að skoða hvaða að- gerðir væru tækar í því augnamiði“. Þá segir einnig í tilkynningunni að „borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins styðja þá tillögu sem verður þá von- andi jákvætt skref og innlegg í áframhaldandi umræðu innan borgarkerfisins. Áréttað skal þó að tillaga sjálf- stæðismanna snerist ekki um að mæta aðgerðum vegna hættuástands, heldur er henni fyrst og fremst ætlað að hafa forvarnargildi ásamt því að vera hvetjandi og for- dæmisgefandi aðgerð til að minnka áhættu á alvarlegum smitsjúkdómum til framtíðar“. Tillaga um bólusetningu felld  Borgarfulltrúar Sjálfstæð- isflokks harma ákvörðunina Morgunblaðið/Ómar Borgarstjórn Tillagan um bólusetningu barna í leik- skólum var felld með níu atkvæðum gegn fjórum. „Það eru mörg skip á svæðinu en það hefur verið mjög lítil veiði í dag,“ segir Grétar Rögnvarsson, skip- stjóri á Jóni Kjartanssyni SU-111, sem var á loðnu- veiðum í Breiðafirði í gær. „Það var smáveiði hérna í ljósaskiptunum í morgun en svo hefur það farið minnkandi. Annars hefur ver- tíðin verið góð þrátt fyrir ótíðina og vestangangan reddaði þessu. Það kom mjög mikið af loðnu að norð- an og hérna vestur fyrir. Þá hefur náðst í mikið af hrognum, sem er alltaf gott,“ segir Grétar. Fjölmörg skip voru dreifð um Breiðafjörðinn í gær við loðnuveiðar og -leit Ljósmynd/Sigurður Aðalsteinsson Vestangangan bjargaði málunum Gert við nótina Skipverjar á Birtingi NK notuðu tímann meðan landað var í Neskaupstað í gær til að gera við loðnunótina. Á myndinni eru þeir Hjörvar Moritz og Kristinn Hjartarson að skipta um og splæsa nýtt pokaband. Lögregla í San Bernardino í Kaliforn- íu leitar nú að 41 árs gömlum Íslend- ingi, Alfreð Erni Clausen, vegna um- fangsmikils fjársvikamáls. Hann, ásamt tveimur öðrum, er talinn hafa svikið meira en 44 milljónir dollara, rúma sex milljarða króna, út úr hópi fólks með loforðum um að breyta lán- um þess samkvæmt frétt CBS-sjón- varpsstöðvarinnar. Alfreð Örn er sagður hafa staðið fyrir svikamyllu ásamt tveimur öðr- um mönnum í kringum lögfræðistofu. Héldu þeir því fram að þeir gætu breytt skilmálum lána fólks. Lánin fóru hins vegar til ólöglærðra manna sem breyttu reikningum fólksins og tóku við mánaðargreiðslum og fyrir- framgreiðslum frá því. Hinir tveir mennirnir voru handteknir 5. mars. Mennirnir þrír eru meðal annars ákærðir fyrir stórfelldan þjófnað og peningaþvætti. Saksóknari San Bernardino hvatti fólk í dag á twittersíðu sinni til þess að veita upplýsingar um ferðir Al- freðs, bæði á ensku og íslensku. Svo virðist sem ýmsir hafi brugðist við hér á landi en embættið setti inn færslu í kvöld þar sem öllum á Íslandi sem hafi sent upplýsingar um hann eru færðar þakkir. „Þetta er mjög flókið og skrítið mál en við gerðum ekkert rangt,“ sagði Alfreð Örn Clausen m.a. í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi og þar kom fram að hann hefði verið hér á landi síðan á síðasta ári. Leitað vegna stór- felldra fjársvika Ásgerður Jóna Flosa- dóttir, for- maður Fjölskyldu- hjálpar Ís- lands, segir grátlegt hversu miklu er hent af matvælum. „Verslanir eru farnar að selja vörur sem eru að renna út með miklum afslætti. Þær gætu líka komið þeim til okkar og við sett þær í frysti og svo úthlutað þeim í stað þess að þeim sé fargað. Fólk fær að velja sér pakkavörur sjálft. Við úthlutum ferskum vörum en svo getur fólk fengið hinar vör- urnar ef það vill,“ segir Ás- gerður Jóna. Yrði sett beint í frysti FJÖLSKYLDUHJÁLPIN Ásgerður Jóna Flosadóttir Jónína Þ. Stefánsdóttir Norðurál Grundartanga ehf. og Félag iðn- og tæknigreina, Verkalýðsfélag Akraness, Stétt- arfélag Vesturlands, VR og RSÍ undirrituðu í gærkvöldi kjara- samning sem gildir til 31. desem- ber 2019. Vilhjálmur Birgisson, formað- ur Verkalýðsfélags Akraness, segir þetta tímamótasamning. „Hér er verið að feta nýja leið sem hefur ekki verið farin áður, allavega ekki gagnvart verka- fólki og iðnaðarmönnum. Það er fólgið í því að launahækkanir starfsmanna verða vísitölutengd- ar. Það liggur alveg fyrir að launavísitalan hefur ætíð mælst umtalsvert hærri en almennar prósentuhækkanir í kjarasamn- ingum,“ segir Vilhjálmur og kveðst bjartsýnn á að samning- urinn verði samþykktur. Laun verða tengd við launavísitölu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.