Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 VAKANDI!VERTU blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR 36% þeirra sem beita drengi kynferðislegu ofbeldi eru ókunnugir karlar. 35% afsláttur af öskjummeð PowercellSerumi og maska HELENA RUBINSTEIN KYNNING Í SNYRTIVÖRUVERSLUNINNI GLÆSIBÆ MIÐVIKUDAG TIL FÖSTUDAGS Glæsilegur kaupauki* þegar þú kaupir HR krem eða 2 vörur. *Gildir ekki með Nudit eða blýöntum. Einn kaupauki á viðskiptavin meðan birgðir endast. Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 20% afsláttur af öllum förðum. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook St.36–42 Ný skósending Tilboðsverð á sýningarbílum frá 8.490.000 kr. Komdu í dag og skoðaðu þennan magnaða jeppa, við tökum gamla bílinn uppí. Það er kominn nýr meðlimur í Jeep fjölskylduna Þverholt 6 - 270 Mosfellsbæ - Sími 534 4433 - www.isband.is - Opið alla virka daga frá 10-18, laugardaga 11-15 Frumsýnum stórglæsilegan Jeep Cherokee, litli bróðir mest verðlaunaða jeppa í heimi Jeep Grand Cherokee. Alvöru jeppi, hlaðinn lúxus og tæknibúnaði t.d. leggur sjálfur í stæði, adaptive cruise control og blind spot detection. Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið laxdal.is Buxur - Buxur fyrir allar konur GERRY WEBER - GARDEUR Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Við erum að skoða hvort þörf sé á að gera breytingar hjá skattrann- sóknarstjóra á ábendingahnappnum sem embættið hefur haldið úti, í kjölfar nýlegra úrskurða Persónu- verndar,“ segir Bryndís Kristjáns- dóttir, skattrannsóknarstjóri rík- isins. Eftir að Persónuvernd úrskurð- aði að hnappur á heimasíðu Tryggingastofnunar væri ólöglegur þurfti sú stofnun að fjarlægja hnappinn. Hægt var að tilkynna um bótasvik í gegnum hnappinn og komu um 10% allra mála TR í gegnum ábendingarhnappinn. Bryndís segir að töluvert berist af ábendingum til embættisins um meint skattundanskot, hvort sem er í gegnum ábendingahnappinn, með tölvupósti, með símtali, bréfleiðis eða með komu á skrifstofuna. „Ábendingum hefur farið fjölg- andi undanfarin ár. Sumar ábend- inganna berast embættinu undir nafni þess sem þær sendir, en flest- ar berast undir nafnleynd. Nafn- lausar ábendingar geta hvort held- ur er borist bréfleiðis, með símtali, með komu á skrifstofu embættisins eða í gegnum ábendingahnappinn á vefsíðunni.“ Hnappurinn er enn uppi á heima- síðu Skattrannsóknarstjóra. Bryn- dís segir að skatturinn geri ekki greinarmun á því með hvaða hætti ábendingar berist; hvort þær hafi verið sendar undir nafni eða ekki. Fjöldi ábendinga sem bárust skattrannsóknarstjóra var 332 árið 2014, 283 árið 2013, 223 árið 2012 og 185 árið 2011. Flestar enda án afskipta Það sem af er árinu hafa 69 ábendingar borist í gegnum ábend- ingarhnappinn hjá Vinnumála- stofnun en þar er einnig tilkynn- ingahnappur á forsíðunni. Þar þurfa þeir sem senda ábendingar að gefa upp nafn. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni var skoðun á 48 ábend- ingum lokið án afskipta en 21 ábending leiddi til frekari rann- sóknar. Langstærsti hlutinn af ábendingum, sem stofnuninni ber- ast, kemur í gegnum ábending- arhnappinn og segir Gissur Pét- ursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, að hnappur- inn sé stofnuninni mjög mikilvægur í þeirri eftirlitsvinnu sem hún sinn- ir. „Sá sem kvartar þarf að gefa upp hver hann er en við veitum þeim, sem hann klagar, ekki upplýsingar um nafnið. Við gætum trúnaðar,“ segir Gissur. „Við tökum allar ábendingar og grennslumst fyrir um hvort það sé sannleikskorn í þeim en við gerum það varlega. Við erum alltaf að skoða og sinn- um eftirliti, skoðum samfélagsmiðla og annað til að athuga hvort fólk sé að vinna. Það er oft þannig að fólk segir á samfélagsmiðlum að það sé mjög uppgefið eftir erfiðan vinnu- dag, þótt það sé á bótum hjá okkur. Fólk gleymir sér stundum. En við erum að reyna að fá almenning með okkur til að sinna eftirliti með svik- urum. Við getum ekki haldið úti spæjurum í fullri vinnu en ef fólki ofbýður það sem það heyrir eða sér þá lætur það yfirleitt vita af því.“ Trúnaðar gætt við kvörtun  Ábendinga- hnappar nauðsyn- legir til að hafa uppi á svikurum Gissur Pétursson Bryndís Kristjánsdóttir Morgunblaðið/Golli Svik 332 ábendingar bárust skattrannsóknarstjóra árið 2014. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.