Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Klausturbleikja Heitur matur í hádeginu Stór pillaður humar Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Glænýr rauðmagi Nýlöguð humarsúpa Guðni Einarsson gudni@mbl.is Starfsgreinasamband Íslands (SGS) kynnti í gær verkfallsaðgerðir sem gætu hafist 10. apríl nk. mæti Samtök atvinnulífsins (SA) ekki kröfu SGS um 300 þúsund króna lágmarkslaun. Rafræn atkvæðagreiðsla um verkfall á að standa frá morgni 23. mars til miðnættis 30. mars. Niðurstaða á að liggja fyrir 31. mars. SA kynnti nýjar leiðir við gerð kjarasamninga í gær. Lagt er til að grunnlaun verði hækkuð en um leið verði samningsbundnar álags- greiðslur vegna yfirvinnu og vakta- vinnu lækkaðar. SA segir að álags- greiðslur séu mun hærri hér en í nágrannalöndunum. SA óskar eftir „uppbyggilegu sam- starfi“ við samtök launafólks um að stokka upp áratugagömul launakerfi. Tiltölulega lág grunnlaun samanborið við heildarlaun, háar álagsgreiðslur og mikill ósveigjanleiki í skipulagi vinnutíma svari illa þörfum atvinnu- lífsins. „Uppstokkun launakerfa gæti orð- ið farvegur til að koma til móts við kröfur um betri framfærslumögu- leika dagvinnulauna og styttri vinnu- tíma án þess að raska verðstöðug- leika,“ sagði m.a. í tilkynningu SA. „Það þyrfti að útfæra þetta með launþegahreyfingunni til að sjá hvað við gætum komist langt í þessu,“ seg- ir Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri SA. Hann segir að álagsgreiðslur séu miklu hærri hér en annars staðar á Norðurlöndum. Þar sé ekki óalgengt að yfirvinnuálag sé 20-50%, mismikið eftir löndum, en hjá okkur sé það 80%. Þorsteinn segir að sumstaðar sé minnst álag á fyrstu yf- irvinnutímana og svo hækki það eftir því sem þeim fjölgi. Vaktaálag sé einnig almennt hærra hér en í ná- grannalöndunum. Þá er sveigjanleiki dagvinnutíma gjarnan meiri í nágrannalöndum en hér, það er hvenær dagsins og innan vikunnar fólk geti skilað sínum 37 dagvinnustundum. „Þetta eru allt þættir sem við vildum skoða mjög gaumgæfilega með viðsemjendum okkar til að sjá hvað mætti lyfta grunnlaunum með lækkun á álags- greiðslum og auknum sveigjanleika í vinnutíma,“ segir Þorsteinn. Hann segir að nú sé sé því sniðinn mjög þröngur stakkur hvenær vinna má á dagvinnutaxta, óháð því hvaða tíma- fjöldi liggi að baki. Þetta eigi t.d. við um starfsgreinar þar sem vinnudagur hefjist snemma dags. Þorsteinn segir að SA séu tilbúin til að skoða hvernig hækka megi lægstu launin sérstaklega. Um það þurfi að nást samstaða. „Þar liggur lykillinn hjá milli- og hátekjuhópunum. Þeir þurfa þá að sætta sig við minni hækk- anir sér til handa,“ sagði Þorsteinn. Leggur til breytt launakerfi  SA leggur til hækkun grunnlauna, lækkun álagsgreiðslna og sveigjanlegri vinnutíma  Rafræn at- kvæðagreiðsla hjá SGS um áformaðar verkfallsaðgerðir  Niðurstaða atkvæðagreiðslu 31. mars Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Starfsgreinasambandið Björn Snæbjörnsson formaður og Drífa Snædal framkvæmdastjóri kynntu í gær áætlun um fyrirhuguð verkföll SGS. Starfsgreinasambandið (SGS) kynnti í gær áætlun um fyrirhuguð verkföll. Hún innifelur m.a. alls- herjarvinnustöðvun frá hádegi 10. apríl n.k. til miðnættis sama dag, á félagssvæðum þeirra 16 aðildar- félaga sem veitt hafa SGS umboð. Einnig vinnustöðvun 14. apríl frá miðnætti til miðnættis sem tekur til félagssvæða Einingar-Iðju, Stétt- arfélagsins Samstöðu og Verka- lýðsfélags Suðurlands. Vinnustöðvun 15. apríl frá mið- nætti til miðnættis sem tekur til fé- lagssvæða Verkalýðsfélags Snæ- fellinga, Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis, Bár- unnar og Stéttarfélags Vest- urlands. Vinnustöðvun 16. apríl frá mið- nætti til miðnættis sem tekur til fé- lagssvæða Framsýnar stétt- arfélags, Verkalýðsfélags Grindavíkur, Öldunnar, Verkalýðs- félags Vestfirðinga og Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur. Vinnustöðvun 17. apríl frá mið- nætti til miðnættis sem tekur til fé- lagssvæða AFLs starfsgreina- félags, Verkalýðsfélags Akraness, Drífandi og Verkalýðsfélags Þórs- hafnar. Vinnustöðvun 27. apríl frá mið- nætti til miðnættis sem tekur til fé- lagssvæða Framsýnar, Verkalýðs- félags Grindavíkur, Öldunnar, Verkalýðsfélags Vestfirðinga, Verkalýðs- og sjómannafélags Bol- ungarvíkur, Verkalýðsfélags Snæ- fellinga og Verkalýðs- og sjó- mannafélags Sandgerðis. Vinnustöðvun 28. apríl frá mið- nætti til miðnættis sem tekur til fé- lagssvæða Einingar-Iðju, Stétt- arfélagsins Samstöðu og Verkalýðsfélags Suðurlands. Vinnustöðvun 29. apríl frá miðnætti til miðnættis sem tekur til fé- lagssvæða AFLs, Verkalýðsfélags Akraness, Drífandi, Verkalýðs- félags Þórshafnar, Bárunnar og Stéttarfélags Vesturlands. Allsherjarvinnustöðvun 30. apríl frá klukkan 12:00 á hádegi til mið- nættis sama dag, á félagssvæðum þeirra 16 aðildarfélaga sem veitt hafa SGS umboð. Allsherj- arvinnustöðvun á sömu fé- lagssvæðum dagana 12., 13., 15., 18., 19., 20., 21. og 22. maí frá mið- nætti til miðnættis sama dag. Ótímabundin allsherjarvinnustöðv- un á svo að hefjast á miðnætti að- faranótt 26. maí á félagssvæðum allra þeirra sextán aðildarfélaga sem veitt hafa SGS umboð. Verkfall SGS gæti hafist 10. apríl verði ekki samið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.