Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
ÁRMÚLI 17
533 12 34
WWW.ISOL.IS
Batterís Höggborvél Batterís Skrúfvél
Batterís Borvél Batterís Borvél
Batterís Stingsög Batterís Sleðasög
Batterí Hleðslutæki
Batterí - Borvél 10,8VBatterís Borvél 10,8V
Þyngd 2,1 kg m. magasíni
og batteríi.
Hægt að slökkva á höggi,
Þyngd 2,6 kg m. batteríi.
4 gírar, 1,5-13mm patróna.
Þyngd 1,8 kg m. batteríi.
2 gírar. 1,5-13mm patróna.
Þyngd 1,7 kg m. batteríi.
1500-3800 str/min,
Þyngd 2,4kg m. batteríi.
Gengur á 1 eða 2 batteríum og
afköstin eru á við snúrusög.
18V 5,2Ah-Li Ion batterí. Mjög fyrirferðarlítið, veggfesting
og einfalt að koma snúrunni fyrir
2 gírar og 12 torkstillingar, 10,8V.
Kemur í tösku með hleðslutæki
og 2 batteríum.
Þyngd 0,9kg með 2,6Ah batteríi.
Kemur í tösku með hleðslutæki
og 2 batteríum.
Verð: 70.921 kr. með VSKVerð: 60.547 kr. með VSK
Verð: 47.421 kr. með VSKVerð: 55.255 kr. með VSK
Verð: 96.325 kr. með VSKVerð: 65.416 kr. með VSK
Verð: 11.427 kr. með VSK
Verð: 20.562 kr. með VSK
Verð: 45.094 kr. með VSK Verð: 45.094 kr. með VSK
Geð guma varð strax annað þegarglitti í vor í gær og engu breytti
þótt allir þekki að Mars sé hvik-
lyndur, skipti ótt skapi og ekki að
treysta.
Lægðirnar, sem í langri lest, hafaátt sviðið síðustu vikurnar,
heyra nú sögunni til.
Það þurftiaðeins
einn glaðbeitt-
an dag til að
sannfæra þjóð-
ina um það.
Maðurinn á bensínstöðinni sagðiað auðvitað myndum við samt
fá páskahret, eins og vant væri.
En hann sagði það bæði sæll ogsigurviss, eins og páskahret
væri veður sem þyrfti ekki að gera
veður úr.
Staksteinar keyrðu um borgina ogveltu fyrir sér hvert myndi
skemmtilegast að skjótast innanlands
í sumar.
Þeir höfðu ekki lengi ekið þegarþað val hafði einfaldast veru-
lega.
Eftir borgaraksturinn voru ölláform um að skoða Holuhraun
úr sögunni.
Það þurfti ekki að fara yfir lækinntil að sækja í það vatnið.
En úr borginni skal halda, þó ekkitil annars en að vera ekki fyrir
á meðan borgarfulltrúarnir eyði-
leggja Grensásveginn.
Hofsvallagatan er enn í rúst eftirþá, þó að fuglahúsin hafi horfið.
Holumynd úr borginni.
Holótt stjórnun
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.3., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 3 heiðskírt
Akureyri 3 alskýjað
Nuuk -7 heiðskírt
Þórshöfn 6 þoka
Ósló 6 heiðskírt
Kaupmannahöfn 8 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 7 þoka
London 12 þoka
París 17 heiðskírt
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 13 heiðskírt
Berlín 16 heiðskírt
Vín 12 skýjað
Moskva 10 heiðskírt
Algarve 13 léttskýjað
Madríd 13 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 12 súld
Aþena 11 léttskýjað
Winnipeg 1 léttskýjað
Montreal -2 snjókoma
New York 13 heiðskírt
Chicago 4 léttskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:36 19:36
ÍSAFJÖRÐUR 7:41 19:41
SIGLUFJÖRÐUR 7:24 19:24
DJÚPIVOGUR 7:06 19:06
Konráð Guðmundsson,
fyrrverandi hótelstjóri
Hótels Sögu, lést á
dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 12.
mars síðastliðinn.
Konráð fæddist í
Merkigarði á Stokks-
eyri 28. apríl 1930.
Foreldrar hans voru
Guðmundur Einarsson
íshússtjóri og Þorbjörg
Ásgeirsdóttir hús-
freyja. Hann ólst upp
hjá foreldrum sínum í
hópi bræðra sinna,
þeirra Sveinbjörns, Ásgeirs og
Björgvins.
Konráð steig sín fyrstu spor sem
starfsmaður hótels innan við ferm-
ingu á Hótel Stokkseyri. Hann lauk
námi frá Hótel- og veitingaskólanum
árið 1949. Hann starfaði sem fram-
kvæmdastjóri Lídó, sem þá var vin-
sæll skemmtistaður í Skaftahlíð, um
árabil. Konráð starfaði lengst af sem
hótelstjóri á Hótel Sögu eða frá
árinu 1964 til 1990 en þá tók hann
við starfi framkvæmdastjóra
Bændahallarinnar og gegndi því til
ársins 2000. Konráð setti mark sitt á
hótel- og veitingarekstur á Íslandi.
Hann lagði sérstaka
alúð við nýársdansleiki
sem haldnir voru í
Súlnasal Hótels Sögu
og voru árum saman
fastur liður í sam-
kvæmislífi Reykvík-
inga.
Konráð gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum í
félagsmálum svo sem í
stjórn Félags bryta
1956-1960 og í stjórn
Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda frá
1965-1973. Hann var
formaður sambandsins frá 1968.
Konráð sat einnig í skólanefnd Hót-
el- og veitingaskólans frá 1972 til
1980 og var formaður hennar í fjög-
ur ár. Þá sat hann einnig í Ferða-
málaráði og framkvæmdastjórn
VSÍ.
Konráð var kvæntur Eddu Löv-
dal, f. 14. ágúst 1929, d. 7. nóvember
2014. Börn þeirra eru: Þór hagfræð-
ingur, kvæntur Karen Þórsteins-
dóttur, Bryndís hjúkrunarfræðing-
ur og Konráð dýralæknir, kvæntur
Ólafíu Sigríði Hjartardóttur.
Barnabörnin eru tíu talsins og
barnabarnabörnin átta.
Andlát
Konráð Guðmundsson
Félagsmenn í Rafiðnaðarsamband-
inu sem starfa hjá RÚV sam-
þykktu vinnustöðvun hjá Ríkis-
útvarpinu með miklum meirihluta
eða 95,7%, en atkvæðagreiðslunni
lauk í gær.
„Það þýðir að félagsmenn okkar
hjá Ríkisútvarpinu, tæknimenn og
aðrir, munu leggja niður störf 26.
mars klukkan sex að morgni til
mánudagsins þar á eftir. Farið
verður í tvær slíkar tarnir, sú síð-
ari verður fimmtudaginn 9. apríl.
Síðan munum við leggja ótíma-
bundið niður störf 24. apríl. Þetta
mun hafa töluverð áhrif þar inn-
andyra ef samningar nást ekki
fyrir þann tíma,“ segir Kristján
Þórður Snæbjörnsson, formaður
Rafiðnaðarsambands Íslands.
RÍ boðar verkfall
á RÚV í lok mars
Vélbáturinn Kári AK-033 var í gær
dreginn á flot í Hvammsvík í Hval-
firði en báturinn strandaði þar
mannlaus á laugardag eftir að hafa
dregið legufærin talsverða leið
undan ofsaveðrinu sem þá gekk yf-
ir. Dráttarbáturinn Magni frá
Reykjavík var notaður til að draga
bátinn á flot, en varðskipið Þór var
á svæðinu og áhöfn skipsins aðstoð-
aði við undirbúning og verkið.
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Á strandstað Vélbáturinn Kári AK á
strandstað í Hvammsvík í Hvalfirði.
Vélbátur dreginn
á flot í Hvalfirði