Morgunblaðið - 18.03.2015, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
✝ Auður LellaEiríksdóttir
fæddist í Reykja-
vík 20. október
1932. Hún lést á
Landspítalanum
11. mars 2015.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ei-
ríkur Helgason
rafvirkjameistari,
f. 14.12. 1907, d.
24.10. 1983, og
Unnur Jónsdóttir húsmóðir, f.
10.8. 1912, d. 19.6. 1984. Systk-
ini Auðar eru: 1) Nína Erna, f.
18.5. 1935, gift Þorvaldi Ólafs-
syni. 2) Helgi, f. 27.6. 1936,
kvæntur Elinborgu Karls-
dóttur. 3) Sesselja, ekkja, f.
22.8. 1941. 4) Þorsteinn, f. 25.2.
1945, kvæntur Jóhönnu Gunn-
arsdóttur. 5) Aðalheiður Stein-
unn, f. 14.11. 1951, gift Erni
Alexanderssyni.
Auður Lella giftist 20. okto-
ber 1956 Benedikt Eyfjörð Sig-
urðarsyni, f. 2.12. 1929, d. 31.5.
2008. Foreldrar hans voru Sig-
urður Gissur Jóhannsson, pípu-
3) Eiríkur Eyfjörð, f. 4.9. 1969,
kvæntur Jórunni Ósk Ólafs-
dóttur, f. 15.2. 1973. Börn
þeirra eru Ólafur Guðni, f.
17.4. 1995, Gunnar Ingi, f. 7.6.
2001, og Thelma Ósk, f. 13.4.
2006. 4) Þorsteinn Eyfjörð, f.
29.3. 1971, börn Þorsteins,
Katla , f. 29.10. 1991. Sólon
Svan, f. 27.7. 1997. Kári Freyr,
f. 9.1. 2004. Margrét Sóley, f.
19.10. 2009, og Aron Andri, f.
27.6.2014.
Fyrstu ár ævi sinnar ólst
Auður Lella upp á Hverfisgötu
90 í Reykjavík en árið 1938, þá
sex ára að aldri, fluttist hún
ásamt foreldrum sínum og
systkinum til Stykkishólms.
Árið 1948 stundaði hún nám í
Iðnskólanum í Reykjavík og
nam hárgreiðslu við hár-
greiðslustofuna Krag. Þau
mæðgin, Auður og Jón Gestur,
stofnuðu hárgreiðslustofu að
Álfhólsvegi 39 í Kópavogi og
lærði Jón Gestur hjá henni. Ár-
ið 1974 fékk hárgreiðslustofan
nafnið Bylgjan og vann hún
þar til 1991. Þá hóf hún störf á
leikskólanum Bæjarbóli í
Garðabæ og síðustu starfsárin
vann hún í Smáraskóla í Kópa-
vogi.
Útför hennar fram frá
Lindakirkju í dag, 18. mars
2015, kl. 13.
lagningameistari,
f. 11.6. 1902, d.
11.8. 1990, Sigrún
Benediktsdóttur,
húsmóðir, f. 11.5.
1906, d. 2.4. 1998.
Börn Auðar og
Benedikts eru: 1)
Jón Gestur, f. 13.9.
1952, d. 4.8. 1990,
kvæntur Heiðu S.
Ármannsdóttur, f.
13.7. 1953, börn
þeirra eru a) Guðjón Þór, f.
10.10. 1972, sambýliskona
María Csizmás, f. 11.10. 1977,
dóttir þeirra Heiða María, f.
21.8. 2012. b) Auður Ösp, f. 4.4.
1976, maki Gunnþór Jens Matt-
híasson, f. 19.4. 1976, börn
þeirra eru Bjarki Már, f. 12.9.
1997, og Patrekur Máni, f.
15.9. 2001. Heiða er gift Hall-
dóri Frank, f. 20.12. 1949. 2)
Sigrún Kaya Eyfjörð, f. 1.8.
1967, sambýlismaður Unnar
Már, f. 14.12. 1968. Börn Sig-
rúnar eru Benedikt Aron, f.
3.5. 1991, Ýmir Franz, f. 10.7.
2000 og Ísak Nói, f. 20.8. 2002.
Móðurmissir er sár og ristir
djúpt, eins og ein góð vinkona
sagði „þegar ég missti mömmu þá
varð ég allt í einu fullorðin á einu
andartaki“ allt í einu er stoð og
stytta fjölskyldunnar fallin frá og
við eins og umkomulaus munað-
arlaus börn. Hún var ættmóðir og
máttarstólpi, nú er okkar tími
kominn að fullorðnast og taka við
keflinu að sjá um að hlúa jafn vel
að okkar erfingjum og hún sá um
okkur og barnabörnin og barna-
barnabörnin.
Mömmu féll aldrei verk úr
hendi og var húsmóðir af Guðs
náð. Hlýjastar eru minningarnar
um að koma heim úr skólanum
þar sem ávallt var tekið á móti
okkur og vinunum með einhverju
nýbökuðu og kaldri mjólk. Við
sáum mömmu sjaldnast öðruvísi
en með einhverja handavinnu í
hendi og lék allt í höndum hennar
eins og list. Ótrúleg þolinmæði
hennar gagnvart okkur börnun-
um og öllum okkar ólíku áhuga-
málum. Húsið og garðurinn bar
þess ósjaldan merki ef ekki var
allt fullt af hjólum, þá voru það
skellinöðrur eða alls konar dýr af
öllum stærðum og gerðum. Gagn-
vart þessu öllu sýndi hún ótrú-
lega yfirvegun og þolinmæði.
Þegar við hugsum aftur í tím-
ann þá er svo sterkt hvað hún
gerði öllu góð skil, samanber upp-
lifun okkar af hátíðisdögum eins
og jólum, þar sem hún gerði allt
sem í hennar valdi stóð að gera þá
hátíð ávallt ógleymanlega. Við
eigum alltaf góðar minningar í
hjarta um hversu natin hún var,
passaði að öllum liði vel og allt var
gert af fagmennsku og ást.
Hún lifði fyrir aðra og setti
sjálfa sig aldrei í fyrsta sæti, ást
hennar og umhyggja til barna-
barnanna verður þeim ógleyman-
leg minning sem greypt verður í
hjarta þeirra um ókomna tíð. Nú
hefur móðir okkar endurnýjast
eftir erfið veikindi í faðm pabba
og bróður okkar sem báðir eru
fallnir frá, þar heldur hún líklega
uppteknum hætti að dekstra þá
eins og enginn sé morgundagur-
inn. Hafðu þökk fyrir allt og allt,
elsku mamma.
Demantar missa sinn mátt,
meðan stjörnurnar draga sig í hlé.
Það virðist vera svo svo fátt,
sem veikir það sem ég sé.
Þú ert vatnið, eldurinn, jörðin og loftið,
þú ert sálin sem fyllti mengið.
Án þín hefði sál mín soltið,
og ástlaus um jörðina gengið.
Sál þín er sönn og fögur,
og seigla þín svo sver.
Fegurð þín, fas og sögur,
myndi fella heilan her.
Ég skal með lífi mínu þín gæta,
vera mild huggun í þínum raunum.
Sjálfan skal ég mig ávallt bæta,
og sýna þér næga ást að launum.
Aldrei hef ég ást séð svo hreina,
aldrei fundið hjarta svo tært.
Aldrei mun ég aðdáun minni leyna,
og alltaf sýna hvað er mér kært.
Þú ert djásnið sem ég skarta,
og sólin sem hjarta mitt vermir.
Aldrei mun ég daga sjá svarta,
því þú ert ljós mitt og skermir.
Ásjóna þín skín bjartar en sólin,
svipur þinn getur lífgað upp rós.
Þótt þú fáir ávallt öll hólin,
þá sparar þú aldrei öðrum hrós.
(Þ.j.)
Sigrún Kaya, Eiríkur
og Þorsteinn.
Mig langar til að minnast fal-
legu og glæsilegu systur minnar,
hennar Lellu.
Árið 1938 flutti Auður Lella
með foreldrum sínum og systk-
inum til Stykkishólms. Þau fluttu
í Stöðvarhúsið, krakkarnir í
Hólminum stóðu við girðinguna,
inni á Presttúninu og fylgdumst
með þegar búslóðin var borin inn.
Hún kom með Herðubreið og var
ekið með hana á vörubíl og upp á
Silfurgötu. Sumt var flutt á hand-
vagni, sem hafði verið fenginn að
láni annaðhvort í Kaupfélaginu
eða í Sigurðarbúð. Það var eink-
um tvennt sem vakti athygli
krakkanna í Hólminum við þessa
nýju fjölskyldu. Þeim varð star-
sýnt á konuna. Þau höfðu aldrei
séð svona hávaxna konu og þegar
þau spurðu var þeim sagt að
þetta væri í ættinni og að bróðir
Unnar væri með hæstu mönnum
á Íslandi og væri í lögreglunni í
Reykjavík. Krakkarnir komust
fljótlega að þeirri niðurstöðu að
hún væri alger nútímakona og
ætti helst að leika í bíómyndum.
Hitt undrið í þessari nýju fjöl-
skyldu var dóttirin, Auður Lella.
Hún var úti á blettinum að líta
eftir yngri systkinum sínum.
Auður Lella var í ljósum kjól, og
allt í einu leit hún upp frá því að
laga beislið á Helga, leit í áttina
til krakkahópsins, gekk svo eins
og algjör gribba út að skurðinum,
innan við girðinguna, gretti sig og
sagði: „Þið eruð sveitalubbar“.
Svo setti hún á sig snúð og
strunsaði til baka. Enginn sagði
orð. Þá leit hún við og rak út úr
sér tunguna. Þá kallaði einhver til
hennar: „Montrass!“
Þessi fyrstu samskipti krakk-
ana gleymdust strax og eignaðist
hún marga góða vini.
Lella og Jón Gestur sonur
hennar voru mjög samrýmd og
máttu ekki hvort af öðru sjá. Leið
þeirra lá oft í Hólminn og var þá
sett upp hárgreiðslustofa á Silf-
urgötunni þar sem Hólmarar og
ættingjar fengu klippingu og lit-
un, sérstaklega fyrir fermingar
og stórafmæli hjá stórfjölskyld-
unni.
Á Álfhólfsveginum þar sem
þau bjuggu var mikill gestagang-
ur af ættingjum, vinum og hár-
greiðslukúnnum og þrátt fyrir að
vera með þrjú ung börn, vinna
fullan vinnudag var alltaf tekið
höfðinglega á móti öllum enda
hörkudugleg og ósérhlífin.
Lella var mikil hannyrðakona
og lærði hún af móður sinni að or-
kera og eru þeir ófáir sem eiga
dúka eftir hana, prjónaðar peys-
ur og prjónapils og féll henni
aldrei verk úr hendi. Síðast en
ekki síst vinsælu Lellu kleinur og
vínarbrauð sem voru ómissandi í
útilegum og ættarmótum.
Elskulega Lella mín, þú varst
mér meira en systir, líkari móður
og er ég óendanlega þakklát fyrir
að hafa átt þig að og hafa átt sam-
leið með þér alla tíð. Höggið er
þungt og sárt þegar það kemur
svo óvænt sem nú en þú sagðir við
mig rétt fyrir andlátið, „Þetta er
komið gott, nú vil ég deyja og fara
til himnaríkis og hitta hann
Benna minn.“ Ég trúi að þú hafir
verið reiðubúin og sátt við að
hverfa og búin að hitta hann
Benna þinn, Jón Gest, pabba og
mömmu og ég veit að þið svífið
saman í eilífðinni. Skilaðu kveðju
til þeirra frá mér elskulega Lella
mín.
Eiríkur, Þorsteinn og Sigrún,
guð styrki ykkur í gegnum þenn-
an erfiða tíma og megi yndislegar
minningar um móður ykkar lifa
áfram.
Guð blessi þig, mín elskulega
systir.
Aðalheiður Steinunn
Eiríksdóttir og fjölskylda.
Fallin er frá Auður Lella, vin-
kona okkar úr Stykkishólmi. Við
höfðum kynnst í fyrsta bekk
barnaskóla. Hún flutti með for-
eldrum sínum úr Reykjavík í
Hólminn sem barn. Allar götur
frá því í barnaskóla höfum við
fylgst að og hefur vináttan aldrei
rofnað þó að við færum sitt í
hvora áttina þegar barna- og
unglingaskóla lauk.
Vináttan batt okkur saman og
til að halda hópinn var þráðurinn
tekinn upp að nýju í sauma-
klúbbnum, sem stofnaður var
þegar við vorum átta eða tíu ára
gamlar. Minningarnar flæða
fram um þessa saumaklúbbs-
fundi, sem stóðu næstum óslitið í
rúmlega 70 ár. Auður Lella var
ákaflega drífandi og dugleg kona,
sem lét aldrei hlutina flækjast
fyrir sér. Það var gengið í málið
með krafti. Henni þótti mikilvægt
að halda í gömlu skólafélagana og
þá vináttu, sem var á milli okkar
allra. Ef nefnt var að nú væri tími
til kominn að hittast var gengið í
það að hringja í alla og nefna stað
og stund og var þá engin undan-
komuleið, allir áttu að mæta.
Þrátt fyrir stórt heimili með
manni sínum, Benedikt Sigurðs-
syni flugvirkja og fjórum börn-
um, gaf hún sér alltaf tíma til að
hitta okkur vinkonurnar. Hún
rak sína eigin hárgreiðslustofu og
hafði oft mikið að gera, en alltaf
var Lella hress og kát á fundum
okkar saumaklúbbsstelpnanna úr
Hólminum.
Nú kveðjum við okkar kæru
vinkonu með söknuði. Hún hefur
ekki gengið heil til skógar und-
anfarin ár en samt vildi hún ekki
missa af neinum fundum okkar.
Nú hvílist hún frá öllu amstri og
eftir sitjum við og minnumst
skemmtilegra daga með henni.
Hafðu þökk fyrir allt, kæra
Lella mín.
Erla, Ása, Hrefna,
Erna og Ragnheiður.
Auður Lella
Eiríksdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR INGÓLFSSON
frá Eyri Ingólfsfirði,
Arnarhrauni 48,
Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 5. mars á Landspítalanum í Reykjavík.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
19. mars kl. 13.
.
Svanhildur Guðmundsdóttir,
Guðjón Ólafsson, Fjóla Berglind Helgadóttir,
Guðrún Ólafsdóttir, Gunnlaugur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
HALLDÓR R. HALLDÓRSSON,
Þverási 27,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum 9. mars.
Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn
20. mars kl. 13.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á MND félagið.
.
Bryndís Eiríksdóttir,
Sigríður G. Halldórsdóttir, Marteinn S. Sigurðsson,
Kristín H. Halldórsdóttir, Brynjar H. Ingólfsson,
Birna Margrét Halldórsdóttir,
Hjálmar Arnar, Sigurður,
Agnes Dís, Halldór Bjarki og Ingunn María.
Ástkæra eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÓSK AXELSDÓTTIR
lögg. sjúkraþjálfari,
Lundi 3,
Kópavogi,
lést á Borgarspítalanum fimmtudaginn 12. mars.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi
fimmtudaginn 19. mars kl. 13.
.
Sigurjón Sigurðsson,
Lárus Axel Sigurjónsson, Katrín Ösp Gústafsd.,
Bjarki Sigurjónsson, Guðrún Erla Hilmarsd.,
Ágústa Jóhanna Sigurjónsdóttir, Helgi Guðlaugsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRUNN ÞORGRÍMSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
Hrafnistu Hafnarfirði,
lést á heimili sínu sunnudaginn
15. mars.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 23. mars kl. 13.
.
María Pétursdóttir,
Ágúst Pétursson, Hanna Rannveig Sigfúsdóttir,
Áslaug Pétursdóttir, Ómar Karl Arason,
Pétur Þórir Pétursson, Kristín Jónsdóttir,
Andrés Pétursson, Kristín B. Guðmundsdóttir,
Þorgrímur Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGUNN HOFFMANN,
hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2,
áður til heimilis að Flókagötu 43,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
20. mars kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent á
Rauða krossinn.
.
Hans Indriðason, Erla Einarsdóttir,
Níels Indriðason, Guðlaug Ástmundsdóttir,
Indriði Indriðason, Anna Toft,
Gunnar Indriðason, Hildur Þorvaldsdóttir,
Ragnheiður Indriðadóttir, Kristinn Karlsson
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri sonur og bróðir,
AXEL DAGUR ÁGÚSTSSON,
Norðurtúni 16,
Egilsstöðum,
lést laugardaginn 7. mars.
Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju
föstudaginn 20. mars kl. 13.
.
Eydís Bjarnadóttir, Bergur Már Hallgrímsson,
Ágúst Þorbjörnsson, Ragnhildur Geirsdóttir,
Ívar Hrafn Ágústsson,
Geir Þór Ágústsson, Kristín Steinunn Ágústsdóttir,
Vaka Bergsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
HREINS RAGNARSSONAR,
Torfholti 4,
Laugarvatni.
.
Guðrún Einarsdóttir og fjölskylda.