Morgunblaðið - 18.03.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 18.03.2015, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Hjörtun slá Nemendur í Landakotsskóla leiddust hönd í hönd og mynduðu hjarta í tilefni evrópuviku gegn kynþáttamisrétti. Allir grunnskólanemendur eru hvattir til að gera slíkt hið sama. Eggert Stóryrðin hafa ekki verið spöruð. Formað- ur Samfylkingarinnar brigslar ráðherrum um landráð, aðrir stjórn- arandstæðingar saka ríkisstjórnina um at- lögu að þingræðinu, segja ráðherra kjark- lausa og svikula. Tilefnið er bréf sem utanríkisráðherra sendi Evrópusamband- inu þar sem hann ítrekaði stefnu rík- isstjórnarinnar um að Ísland gerist ekki aðili að sambandinu. Sjaldan hefur eitt bréf ráðherra valdið meiri geðshræringu meðal stjórnarand- stæðinga. Bréfið gerir lítið annað en undir- strika stefnu sem öllum er ljós en um leið sýnir bréfið hversu erfitt rík- isstjórninni hefur reynst að hrinda stefnu sinni formlega í framkvæmd. Sú hætta er alltaf fyrir hendi þegar ekki er gengið hreint til verks í upp- hafi. Allt frá því að þing kom fyrst saman eftir kosningar 2013 hefur rík- isstjórnin haft tækifæri til tryggja framgang stefnu sinnar gagnvart Evrópusambandinu með skilmerki- legum hætti. Réttur til að slíta Eftir því sem árin líða gera æ fleiri sér grein fyrir því hversu óhöndug- lega – svo ekki séu notuð sterkari orð – ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna hélt á Evrópusambands- málum. Komið var í veg fyrir að að- ildarumsóknin yrði borin undir þjóð- aratkvæði. Þingsályktun um aðildarviðræður var þvinguð í gegn- um þingið í júlí 2009. Þingmenn VG töldu nauðsynlegt að gefa út yfirlýs- ingu um þeir áskildu sér „rétt til þess að slíta samninga- viðræðum séu þær ekki að skila fullnægjandi árangri á hvaða stigi málsins sem er“. Steingrímur J. Sig- fússon, þáverandi for- maður Vinstri grænna, taldi þingmenn því ekki meira bundna af þings- ályktuninni en svo að þeir hefðu fulla heimild til að slíta viðræðum hvenær sem er og það án þess að boða til þjóð- aratkvæðagreiðslu eða leita sérstakar heimildar alþingis. Nú bregður hins vegar svo við að þingmenn VG taka undir með öðrum stjórnarandstæðingum og Evrópu- sambandssinnum og krefjast þjóð- aratkvæðagreiðslu um framhald við- ræðna. Hér skal það látið liggja á milli hluta hversu oft vinstri grænir komu eða reyndu að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu á síðasta kjörtímabili, um Evrópusambandið og Icesave. Hitt er augljóst að þeir hafa fallið frá þeim rétti sem fyrrver- andi formaður flokksins áskildi sér og þingmönnum VG. Því verður vart trúað að yfirlýsingin hafi aðeins verið til „heimabrúsks“ eftir að hafa brotið skýrt loforð fyrir kosningar um að ekki yrði sótt um aðild að Evrópu- sambandinu. Árni Páll Árnason, formaður Sam- fylkingarinnar, hefur áttað sig á þeim mistökum sem gerð voru þegar kom- ið var í veg fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu um aðildarumsókn. Allir þingmenn Samfylkingarinnar voru samstiga og með þeim í liði var meðal annarra Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. Stjórn- arflokkarnir voru sannfærðir um að þeir þyrftu ekki pólitískt umboð þjóðarinnar. Í umboðsleysinu var feigðin fólgin. Vandi ESB-sinna Því miður hefur Árni Páll ekki áhuga á að leiðrétta það sem miður fór í sölum Alþingis í júlí 2009. Hann vill þess í stað halda vegferðinni áfram – tryggja að Ísland sé umsókn- arríki svo viðræður geti hafist að nýju þegar og ef „Evrópusambands- sinnuð“ ríkisstjórn kemst til valda. Til að ná þessu fram er einfalt fyrir Árna Pál og samherja hans að leggja fram tillögu til þingsályktunar um áframhald viðræðna og/eða að boðað skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald þeirra. Vandi Evrópusam- bandssinna er hins vegar a.m.k. tví- þættur: Annars vegar er ljóst að meirihluti þingsins er andvígur aðildar- viðræðum og hins vegar verður slíkri tillögu að fylgja rökstudd grein- argerð þar sem meðal annars er lagt til með hvaða hætti breyta eigi þeim skilyrðum sem meirihluti utanrík- ismálanefndar setti og Alþingi sam- þykkti eða eins og segir í þingsálykt- uninni sjálfri: „Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismála- nefndar.“ Þannig verða þeir sem leggja áherslu á að Ísland verði áfram um- sóknarríki í skrifborðsskúffum í Brussel að gera landsmönnum skil- merkilega grein fyrir því með hvaða hætti þeir vilja breyta þeim fyrir- vörum sem meiri hluti utanríkismála- nefndar mótaði þar sem segir meðal annars: „Meiri hlutinn leggur áherslu á að kröfum Íslendinga um forræði yfir sjávarauðlindinni verði haldið sem og rétti Íslendinga til að stýra sókn í veiðistofna er byggist á sjálfbærri þróun, ráðgjöf sérfræðinga og veiði- reynslu.“ Þá segir einnig: „Meiri hlutinn telur einnig afar mikilvægt að Íslendingar fari með samningsforræði við stjórn veiða úr deilistofnum eins og hægt er og tryggi þannig sem best réttindi Ís- lands til veiða úr þeim, en deilistofn- ar hafa orðið sífellt mikilvægari í af- komu greinarinnar. Leita þarf leiða til að tryggja hagsmuni Íslands með beinum aðgangi að slíku samnings- ferli.“ Þessi skilyrði eða fyrirvarar urðu til þess að samningaviðræður við Evrópusambandið sigldu í strand þegar árið 2011. Þá neitaði Evrópu- sambandið að opna sjávarútvegs- kafla enda ljós að sambandið gæti aldrei fallist á fyrirvarana. Með réttu hefði þá átt að slíta viðræðunum með formlegum hætti. Það var ekki gert en þess í stað var þeim haldið á lífi í pólitískri öndunarvél og ódælum sjávarútvegsráðherra hent út úr rík- isstjórninni. Það var ekki fyrr en í janúar 2013 – í aðdraganda kosninga – sem rík- isstjórnin ákvað að gera formlega hlé á viðræðunum (og það án samráðs við utanríkismálanefnd!). Krafna um framhald viðræðna er innantóm og marklaus án þess að ESB-sinnar geri grein fyrir hvernig þeir vilja breyta fyrirvörum sem meiri hluti utanríkismálanefndar mótaði. Án breytinga eru viðræður tilgangslausar og aðeins hluti af póli- tískum blekkingarleik. Lög um viðræður Fyrrnefnt bréf utanríkisráðherra er pólitísk yfirlýsing um stefnu rík- isstjórnarinnar en líkt og forseti Al- þingis hefur bent á hefur þingsálykt- unin frá 2009 ekki verið felld úr gildi. Það virðist því undir nokkrum emb- ættismönnum í Brussel komið, hvort Ísland verði flokkað áfram sem um- sóknarríki eða ekki. Ákvörðun þeirra mun byggjast á öðru en hagsmunum Íslands. Til framtíðar er nauðsynlegt að reynt verði að koma í veg fyrir að (ó) leikurinn frá því í júlí 2009 verði end- urtekinn. Þess vegna er skynsamlegt að ríkisstjórnin beiti sér fyrir að Al- þingi samþykki lög um hugsanlegar viðræður við Evrópusambandið. Þar verði lagt bann við að íslensk stjórn- völd efni til aðildarviðræðna við Evr- ópusambandið án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spurt verði: Ertu þú fylgjandi eða andvígur því að Ísland gerist aðili að Evrópusam- bandinu? Góður meirihluti ætti að vera fyrir því að setja lög af þessu tagi. Allir þingmenn stjórnarflokkana geta staðið að baki lagasetningunni sem og þingmenn VG og jafnvel fleiri úr stjórnarandstöðunni. Með setningu laganna getur ESB- sinnuð ríkisstjórnin ekki hafið við- ræður um aðild án þess að meirihluti kjósenda veiti samþykki sitt. Auðvit- að getur slík ríkisstjórn afnumið lög- in, en það gera varla þeir sem nú eru háværastir í kröfunni um þjóðar- atkvæðagreiðslu enda um pólitískt feigðarflan að ræða. Eftir Óla Björn Kárason »Krafna um framhald viðræðna er mark- laus án þess að ESB- sinnar geri grein fyrir hvernig þeir vilja breyta fyrirvörum sem utanrík- ismálanefnd mótaði 2009. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks. Endurtökum ekki (ó)leikinn frá júlí 2009

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.