Morgunblaðið - 18.03.2015, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015
✝ Helgi Helga-son fæddist 30.
október 1924 í
Bjarnabæ, Suð-
urgötu 38 í Hafn-
arfirði. Hann lést
6. mars 2015 á Sól-
vangi í Hafn-
arfirði.
Foreldrar hans
voru Bjarnasína
Margrét Odds-
dóttir og Helgi
Einarsson. Helgi var yngstur
af sínum systkinum. Systkin
Helga voru Þóra, Matthías,
Einar, Margrét, Sigurður og
Bjarni. Eftir barnaskóla fór
Helgi í Flensborg og síðan í
Iðnskólann í Hafnarfirði og
lærði netagerð.
Helgi kvæntist Kristínu
Kjartan, f. 18.7. 1981 í
Reykjavík, er búsettur í Hafn-
arfirði.
Eftir nám var hann á bátum
í eigu Jóns Gíslasonar. Síðar
fór hann að vinna á Netagerð-
arverkstæðinu hjá Jóni og var
verkstjóri þar til fjölda ára.
Síðasta starfið hans var á
bensínstöðinni hjá Skeljungi
við Reykjavíkurveg. Helgi og
Stína áttu sinn sælureit við
Hlíðarvatn í Selvogi og voru
þau þar á sumrin eins og
hægt var. Árið 1980 tók Helgi
katólska trú og var það mikið
gæfuspor í hans lífi. Söng
hann í kórnum í St. Jós-
efskirkju og var virkur í sinni
kirkju. Árið 1983 flutti Helgi
á Móabarð 16 í Hafnarfirði og
undi hag sínum vel með frá-
bært útsýni yfir bæinn sinn.
Útför hans fer fram frá St.
Jósefskirkju í dag, 18. mars
2015, kl. 15.
Þórarinsdóttir, f.
26.4. 1920, d.
21.9. 1977 frá
Bjarnastöðum í
Selvogi 18. nóv-
ember 1950. Þau
hófu búskap sinn
í Hafnarfirði og
síðar byggðu þau
hús sitt í Bröttuk-
inn 20. Dóttir
þeirra er Kol-
brún, f. 18.11.
1949, gift Sveini Kjartanssyni,
f. 7.7. 1952. Synir þeirra eru
Kristinn Helgi og Kjartan.
Kristinn Helgi, f. 14.1. 1978 í
Reykjavík, er í sambúð með
Drífu Ósk Sumarliðadóttir, f.
6.12. 1978. Dætur þeirra eru
Kristín Helga, f. 2003, Eyrún,
f. 2009, og María, f. 2013.
Elsku besti pabbi, tengda-
pabbi, afi og langafi. Það er með
trega að við skrifum þessi orð.
Nú ertu kominn til Stínu þinnar
sem þú saknaðir svo sárt. Þú
varst ávallt léttur í lund og með
þinn smitandi hlátur. Við eigum
margar og góðar minningar um
okkar samverustundir sem við
munum ávallt geyma. Þú og Stína
áttuð góðar stundir í sumarbú-
staðnum við Hlíðarvatn í Selvogi.
Þar var oft glatt á hjalla og mikill
gestagangur þar sem bakkelsið
kláraðist fljótt. Söknuður þinn
var mikill þegar Stína þín lést og
fannst þú frið og ró þegar þú
tókst kaþólska trú. Margar voru
sendiferðirnar sem þú fórst fyrir
nunnurnar í Klaustrinu í Hafn-
arfirði og voru þær afar þakklát-
ar fyrir hjálpsemi þína. Gerðir þú
þetta með glöðu geði og varst
ávallt tilbúinn til aðstoðar. Við er-
um einnig þakklát fyrir góðsemi
þeirra í þinn garð. Í gegnum
tengsl ættingja nunnanna heim-
sóttir þú Pólland alls 13 sinnum
þar sem þú kynntist mörgu og
góðu fólki og naust þú ferðanna
til fullnustu. Gaman var að hlusta
á ferðasögurnar þínar við heim-
komu. Þú þekktir margt fólk
enda áttir þú auðvelt með að
kynnast nýju fólki sem heillaðist
af hlýleika þínum og brosi. Með
tilkomu barnabarna og langafa-
barna þinna gladdist þú mjög og
naust þú þín í návist þeirra. Síð-
ustu tæpu fjögur árin dvaldir þú
á Sólvangi í Hafnarfirði þar sem
þú naust umhyggju og hlýju
starfsfólksins þar. Takk fyrir all-
ar góðu stundirnar í lífi okkar.
Með þínum sögum og léttlyndi
bættir þú dag allra sem urðu á
vegi þínum.
Kolbrún, Sveinn, Kristinn
Helgi, Kjartan, Drífa Ósk,
Kristín Helga, Eyrún og
María.
Þegar hringt var í mig og sagt
að Helgi föðurbróðir minn væri
látinn fann ég fyrir sorg en jafn-
framt létti, Helgi var örugglega
feginn að fá hvíldina.
Helgi var yngstur af sjö systk-
inum sem bjuggu og kennd voru
við Bjarnabæ hér í firðinum. Árið
eftir að Helgi fæddist dó faðir
hans, Helgi Einarsson sjómaður,
aðeins 49 ára að aldri frá þessum
stóra barnahópi. Það hefur verið
þungbært og mikil sorg en ekki
var gefist upp. Nýbúið var að
gera Bjarnabæ upp sem kostaði
mikla peninga á þessum árum og
sat mikil skuld eftir. Voru heim-
ilin oft leyst upp og börnum kom-
ið fyrir hér og þar. Móður og
systkinum var tilkynnt að
Bjarnabær færi á uppboð og yrði
seldur. En þá eins og stundum
var björgin ekki langt undan.
Uppboðið byrjaði, margir mættir
og það var byrjað að bjóða en þá
stendur maður upp aftarlega, lít-
ur rólega yfir salinn og býður töl-
una sem hvíldi á húsinu því þá
vissi fólk að ekki þýddi að bjóða
meir.
Þessi bjargvættur móður og
systkinanna var Einar Þorgils-
son, útgerðarmaður, fiskverk-
andi og verslunareigandi hér í
firðinum. Daginn eftir lét Einar
Þorgilsson kalla á móður og þrjú
elstu systkinin á sinn fund og
sagði að þau fengju húsið en yrðu
að vinna og greiða skuldina. Ein-
ar vissi að þau stæðu við sitt eins
og þau gerðu alla sína ævi. Ég
varð að segja frá þessu, til að
sýna hvað það munaði litlu að
fjölskyldunni yrði tvístrað.
Svona byrjaði ævin hjá Helga
frænda mínum. Þrjú elstu systk-
inin ólu yngri systkinin upp.
Helgi ólst upp í góðu yfirlæti.
Hann byrjar fyrstu vinnu sína í
sveit í Þingnesi í Borgarfirði hjá
Sveinbirni Björnssyni. Síðan fer
hann að vinna ýmis störf og fer á
síld á Fagrakletti með Jóni Sæ-
mundssyni, miklum aflamanni.
Helgi fer í Iðnskólann í Hafnar-
firði og útskrifast sem
netagerðarmaður en klárar
meistaranámið í Höfðavík í
Reykjavík. Fljótlega er hann ráð-
inn til sjá um netverkstæðið hjá
Jóni Gíslasyni og starfaði þar í
tugi ára.
Helgi kynntist yndislegri
konu, Kristínu Þórarinsdóttir.
Þau eignuðust dóttur hinn 18.
nóvember 1949 og fékk hún nafn-
ið Kolbrún. Mikil gleði og ham-
ingja var þegar hún kom í heim-
inn. Helgi og Stína giftu sig 18.
nóvember 1950. Þau byggðu sér
hús í Bröttukinn 20 Hafnarfirði.
Helgi og Stína áttu einstaklega
góð ár, þau voru sérlega samhent
enda var Helgi óspar á að dásama
Stínu sína. Hann var oft að segja
hvað hann væri mikill gæfumað-
ur að eignast hana fyrir konu.
Helgi byggði sumarbústað við
Hlíðarvatn í Selvogi en þaðan var
Stína ættuð. Þar áttu þau margar
ánægjulegar stundir. Árið 1973
greindist Stína með krabbamein
og eftir mikla baráttu dó hún
1977 og var það gífurlegt áfall
fyrir Helga og Kolbrúnu.
Kringum 1980 steig Helgi mik-
ið gæfuspor, tók kaþólska trú og
fann frið og ró. Hann sinnti ýms-
um verkefnum í Klaustrinu og
fyrir regluna. Helgi fór í 13 skipti
til Póllands og kynntist mörgu
þar. Allt sem Helgi frændi minn
kom nálægt var unnið með ein-
stakri samviskusemi því allt átti
að vera fullkomið. Elsku Kolbrún
og fjölskylda, innilegasta samúð
okkar.
Helgi, Sólveig og fjölskyldur.
Helgi Helgason
Amma fæddist í janúarmánuði
frostaveturinn mikla 1918. Það
sætir því ekki furðu að foreldrar
hennar hafi valið svo sumarlegt
og glaðlegt nafn á nýfætt barn
sitt. Og amma bar nafn með
rentu, hún var forfallið sumar-
barn sem hún nýtti jafnan til úti-
vistar og það var alltaf stutt í dill-
andi hláturinn.
Ég fluttist ung frá Dalvík en
fékk þó ófá tækifæri til að snúa
aftur á sumrin og naut því þeirra
forréttinda að fá að búa ýmist
heima hjá henni eða hjá Dúddu
frænku. Minningarnar frá þess-
um tíma eru margar og allar
jafnyljandi. Ein sterkasta minn-
ingin er þó kannski margar sem
renna sama í eina, þar sem amma
tekur á móti okkur í byrjun sum-
ars með borðið fullt af ömmu-
kexi, rjómaosti og hlaðinn bakka
af pönnukökum fylltum með
rjóma og sultu. Áður en langt um
leið seildist hún í skúffuna undir
ofninum og þá vissi maður að hún
var líka nýbúin að steikja kleinur
handa okkur.
Amma var stórskemmtileg
kona – gáfuð, kát og fyndin í til-
svörum. Hún var tónelsk og hafði
Lilja
Rögnvaldsdóttir
✝ Lilja Rögn-valdsdóttir
fæddist í Dæli í
Skíðadal 20. janúar
1918. Hún lést á
dvalarheimilinu
Dalbæ 23. janúar
2015.
Útför hennar fór
fram frá Dalvík-
urkirkju 28. febr-
úar 2015.
gaman af söng. Hún
var orkumikil og
kvik í hreyfingum,
einu skiptin sem ég
man eftir því að
amma gæti setið
kyrr var þegar hún
sinnti handavinnu
sinni. Hún var alltaf
vel tilhöfð, prýdd
skartgripum og fín-
um fötum. Þegar ég
sá hana í síðasta
sinn gekk hún eftir ganginum á
Dalbæ, svo falleg og fín í eld-
rauðri peysu og síðu pilsi á leið á
bænastund.
Það er sárt að kveðja ömmu
Lilju en þó huggaði mig mikið á
hinstu kveðjustundinni hvað við
erum ótrúlega rík að hún skuli
skilja eftir sig svo stóra og kær-
leiksríka fjölskyldu.
Nanna.
Eitt það besta er að eiga góða
langömmu, það átti ég svo sann-
arlega – betri vinkonu er ekki
hægt að eiga. Samband okkar
var sérstakt og ómetanlegt. Við
eigum ótal margar fallegar minn-
ingar saman. Það sem okkur
fannst best var að fara saman
fram í Dælisreit á sumrin liggja
þar í sólbaði, fá kaffi hjá ömmu
Dúddu og njóta þess að heyra
friðinn sem ríkir í Skíðadalnum
fagra. Það sem gerði samband
okkar sérstakt var að við náðum
svo vel saman, við gátum platað
hvor aðra vel, og ekki má gleyma
að minnast á þrjóskuna, þar sem
við höfðum nóg af henni. Meiri
hörku og dugnað veit ég ekki um
í þessum litla kroppi. Viljinn var
ótrúlegur að halda sér í formi alla
tíð, að fara í morgunleikfimi
tvisvar á dag og það var ekki nóg
með það heldur fannst þér ekk-
ert betra en að fara út að labba
og anda að þér fersku lofti. Fal-
legra hjarta er ekki til en hjá þér,
elsku amma. Mér þykir óendan-
lega vænt um að hafa fengið að
vera svona mikið með þér, að
hafa gefið mér tíma til þess að
koma og hjálpa þér í veikindum
þínum, að fá að hátta þig á kvöld-
in, nudda á þér tærnar, og vera
hjá þér þangað til þú sofnaðir á
kvöldin – minningarnar gerast
ekki dásamlegri. Í dag veit ég að
þú ert komin á betri stað, staðinn
sem þú varst búin að bíða eftir
lengi. Það var alltaf stutt í hlát-
urinn og gleðina hjá þér, elsku
amma mín. Mér fannst ekkert
dásamlegra en að fara með þér
hringinn í sveitinni, þú kunnir öll
bæjarnöfnin og fannst mér það
alltaf jafnyndislegt að heyra þig
telja þau upp. Meðan ég vann á
Dalbæ passaði ég alltaf upp á að
þú værir í fínum fötum, hárið
væri vel greitt, og ekki mátti nú
gleyma ilmvatninu, ég heyri hlát-
urinn í þér yfir þessu öllu saman.
Að kyssa þig góða nótt eftir
kvöldvakt – og góðan dag eftir
næturvakt, þú varst oftast nær
komin á fætur, búin að búa um
rúmið þitt og opna gluggann.
Komin í föt og sast í sófanum þín-
um með útvarpið í gangi.
Skammaðist svo í mér og sagðir
mér að ég ynni alltaf of mikið, að
ég ætti nú að fara heim að sofa.
Skildir ekkert í þessari vinnu hjá
mér, sífellt með áhyggjur af því.
En það sem mér finnst dýrmæt-
ast er að við vorum svo ótrúlega
nánar. Þótt öll þessi ár væru á
milli okkar var samt ótrúlegt
hvað við náðum vel saman. Þér
fannst alltaf svo gaman að fylgj-
ast með mér og finnst mér það
ómetanlegt. Það var alltaf jafn-
gaman að hringja í þig meðan ég
var í Hússtjórnarskólanum, þú
varst svo áhugasöm um það sem
ég var að gera, sérstaklega
fannst þér spennandi þegar að ég
var að vefa og hekla, þitt uppá-
hald enda mikil handavinnukona.
Nú verður skrítið að geta ekki
farið með þér hringinn í sveitinni
um helgar, skroppið í göngutúr
með þér, séð þig hlaupa eftir
ganginum, fengið sér rommkúlu
með þér … Elsku amma, takk
fyrir allt, þú varst mesta hörku-
tól og dugnaðarkona sem ég veit
um með fullt hjarta af ást og
kærleika. Söknuðurinn er sár.
Minningarnar dýrmætar og
munu lifa í hjarta mínu alla ævi.
Amma, þú verður alltaf uppá-
halds.
Þín langömmustelpa,
Súsanna Svansdóttir.
Elsku langamma mín, það sem
ég er heppin og þakklát fyrir að
hafa átt með þér margar yndis-
legar stundir. Ég man ekki öðru-
vísi eftir þér en með bros á vör.
Þessari litlu, fíngerðu konu sem
var alltaf hress og kát, arkandi út
um allt. Ég hafði einstaklega
gaman af því hvað þú áttir til að
vera stríðin. Þú gast alltaf komið
manni til að hlæja, hvort sem það
var með því að sprauta á mig
vatni eða taka út úr þér tenn-
urnar. Við áttum ófáar stundir
saman í Dælisreit, þar sem við
gátum spjallað um gamla tíma.
Það eru mér dýrmætar minning-
ar. Ég mun sakna þess að geta
ekki dekrað við þig lengur og
fengið mér rommkúlur hjá þér
eða setið með þér í sófanum og
átt með þér góðar stundir. Sakna
þín sárt elsku langamma mín,
minning um þig lifir í hjarta mínu
að eilífu. Þín langömmustelpa,
Jenný Svansdóttir.
Hljóðfæri
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Rafmagnsreiðhjól, eldri árgerð
seld með allt að 50% afslætti,
verð nú frá 75.000, takmarkað
magn. www.el-bike.is
Hvaleyrarbraut 39, 220
Hafnarfirði, opið virka daga
8–16, sími 864 9264.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Smáauglýsingar
Það var fagur
dagur við Skjálf-
andann þann 15.
júní 1961, Skjálf-
andinn bjartur og
fagur og ég að fara að heim-
sækja fólkið í Vetrarbraut, þá
var Helga þar stödd og tók
mér fagnandi. Þetta voru
fyrstu kynni mín af Helgu og
voru þau kynni mér góð, Helga
leiðbeindi mér um lífsins
braut. Helga sá til þess að ég
færi á Húsmæðraskólann á
Laugarvatni veturinn 1962 til
1963.
Þegar Helga síðar fluttist
suður, kom ég oft til hennar og
þangað var alltaf gott að koma.
Helga var mjög ráðagóð og
leiðbeindi mér um margt sem
kom sér vel. Það var alltaf gott
að koma í Karfavoginn, mér
alltaf tekið opnum örmum og
ávallt gefið eitthvað í gogginn
enda ekki í kot vísað hjá Helgu
og Halla. Það var mikið rúm í
huga og hjarta þeirra hjóna.
Helga
Þorgrímsdóttir
✝ Helga Þor-grímsdóttir
fæddist 11. apríl
1930. Hún andaðist
26. febrúar 2015.
Útför Helgu var
gerð 10. mars 2015.
Ég kveð Helgu
með þakklæti og
virðingu fyrir allt
það góða sem hún
gerði fyrir mig.
Guð gefi þér, Halli
minn, þrek og
styrk. Hvíl í friði,
elsku Helga mín.
Anna
Karlsdóttir.
Margar minningar koma
upp nú á kveðjustund. Frá Há-
vegi í Kópavogi og úr Karfa-
vogi. Jólaboðin á annan í jólum
þóttu sjálfsögð, að mæta var
bara lögmál. Fyrst þegar mað-
ur var bara krakki og svo þeg-
ar maður fékk árin yfir sig og
eignaðist eigin fjölskyldu var
mætt með börnin þar er þau
uxu úr grasi. Svo komu barna-
börnin og auðvitað var sjálf-
sagt að mæta líka með þau.
Oftast voru ærsl í öllum, allt
þótti sjálfsagt. Borðin svign-
uðu undan kræsingunum, allir
voru velkomnir til ykkar
Halla.
Samúðarkveðjur til Halla og
ykkar afkomenda.
Hafðu þökk fyrir allt.
Kveðja,
Valdís.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar