Morgunblaðið - 18.03.2015, Síða 39

Morgunblaðið - 18.03.2015, Síða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2015 Hljómsveitin Of Monsters and Men (OMAM) sendir frá sér aðra breið- skífu sína, Beneath The Skin, 8. júní nk. og heldur í tónleikaferð um Norður-Ameríku og Evrópu 4. maí sem lýkur 7. ágúst. Þá mun hljóm- sveitin halda tónleika í Eldborg í Hörpu 19. ágúst og hefst miðasala á þá á föstudaginn, 20. mars, á vef Hörpu. Íslensk útgáfa breiðskíf- unnar mun innihalda tvö lög sem verða ekki á erlendri útgáfu hennar, „Backyard“ og „Winter Sound“ og verða lögin einnig á viðhafnarút- gáfum skífunnar. Í tilkynningu segir að hljóm- sveitin hafi eytt sl. ári á Íslandi og í Los Angeles með upptöku- stjóranum Rich Costey sem vann með þeim að breið- skífunni. Costey hefur unnið með þekktum hljómsveitum á borð við Muse, Death Cab for Cutie, Foster The People og Interpol. Í síðustu viku sendi sveitin frá sér stutt myndbrot til að tilkynna heitið á fyrstu smáskífunni sem og útgáfu- deginum. Ævintýri líkast OMAM sló í gegn erlendis vorið 2012 þegar fyrsta plata sveitarinnar, My Head is an Animal, náði sjötta sæti á bandaríska breiðskífulist- anum Billboard. Skífan hefur selst í tveimur milljónum eintaka á heims- vísu sem er sannarlega magnaður árangur hjá íslenskri hljómsveit. Í kjölfarið fylgdu langar og strangar tónleikaferðir víða um heim og hefur sveitin leikið á fjölda tónlistarhátíða, m.a. Lollapalooza, Bonnaroo, Coac- hella, Iceland Airwaves og Gla- stonbury og vinsælum spjallþáttum á borð við The Tonight Show með Jay Leno, Late Show með Jimmy Fallon, The Graham Norton Show og gamanþættinum Saturday Night Önnur breiðskífa OMAM kemur út 8. júní Ljósmynd/Meredith Truax Ævintýri Of Monsters and Men gaf út fyrstu plötu sína, My Head is an Ani- mal, á Íslandi árið 2011 og sló hún í gegn þegar hún kom út erlendis 2012. Beneath The Skin, kemur út 8. júní á Íslandi á vegum Record Records. Live. Þá lánaði OMAM lag sitt, „Dirty Paws“, í kynningarmynd- skeið fyrir kvikmyndina The Secret Life of Walter Mitty og í kynning- armyndband fyrir iPhone 5 snjall- símann. Hljómsveitin samdi samdi einnig lag, „Silhouettes“, fyrir kvik- myndina The Hunger Games: Catching Fire. Sigurður fer á kostum Velgengni OMAM hefur verið æv- intýri líkust og hefur sveitin nú sent frá sér fyrsta lagið af væntanlegri plötu, „Crystals“, og myndband með texta við það en í því fer leikarinn Sigurður Sigurjónsson á kostum, syngur með laginu af mikilli innlifun. Myndbandið má finna á YouTube og skal tekið fram að hér er ekki um endanlegt tónlistarmyndband við lagið að ræða heldur svokallað textamyndband. Fyrstu tónleikar OMAM í fyrr- nefndri tónleikaferð verða haldnir 4. maí í Massey Hall í Toronto í Kan- ada. Frekari upplýsingar, fróðleik, fréttir og myndir af OMAM má finna á facebook.com/ofmonsters- andmen, twitter.com/monsters- andmen og instagram.com/ofmonst- ersandmen. helgisnaer@mbl.is Umslag Beneath the Skin.  Of Monsters and Men heldur tónleika í Eldborg 19. ágúst Flottur Sigurður Sigurjónsson í textamyndbandi við „Crystals“. Síðustu hádegistónleikar vetrarins í tónleika- röðinni Líttu inn í hádeginu verða í dag kl. 12.15-12.45. Á tónleikunum flytja Guðrún Birg- isdóttir flautuleikari og Snorri Birgisson píanó- leikari Histoire du tango eftir Astor Piazolla, Milonga de mis amores eftir Pedro Laurenz, Arrabalera eftir Francisco Canaro og La tram- pera eftir Anibal Troilo. Við tónlistina stíga dans þær Svanhildur Valsdóttir og Svanhildur Óskarsdóttir og standa vonir tónleikahaldara til þess að „þessir eldheitu tangótónar og dun- andi dans muni kynda undir vorkomuna í Kópavogi“. Tangótónar og dunandi dans Guðrún Birgisdóttir Frumteikning við eina af teikni- myndasögunum um hina sívinsælu Gaulverja Ástrík og Steinrík, var seld á uppboði hjá Christie’s í vik- unni fyrir rúmlega 106.000 pund, rúmlega 20 milljónir króna. Rann féð óskipt til ættingja fórnarlamba árásarinnar á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í París. Síðan sem var seld birtist í bók- inni Ástríkur og lárviðarkransinn árið 1971 en hún kom út í íslenskri þýðingu árið 1979. Á teikningunni er sérstök áritun frá öðrum höfundi sögunnar, Albert Uderzo, en hinn höfundurinn, René Goscinny, lést árið 1977. Uppboðshúsið gaf einnig þóknun sína fyrir söluna. Tólf voru myrtir í árásinni á skrif- stofur tímaritsins sjöunda janúar síðastliðinn. Í kjölfarið féllu árás- armennirnir tveir í átökum við lög- reglu. Uderzo er á níræðisaldri og sestur í helgan stein en tveimur dög- um eftir árásina birtust tvær nýjar teikningar hans af Ástríki og Stein- kíki, þar sem hann brást við viðburð- unum. „Ég er líka Charlie,“ segir Ástríkur í annarri teikningunni og kýlir illvirkja upp úr skónum. Sögurnar um Ástrík og félaga hans, sem berjast gegn yfirgangi Rómverja í Gallíu, eru þær vinsæl- ustu í heimi teiknimyndasyrpna og hafa komið út í 111 löndum, þar á meðal fjölmargar hér á landi. Ástríkur og Steinríkur aðstoða ættingjana Frumteikning Hluti síðunnar úr Ástríki og lárviðarkransinum sem seld var. duxiana.com D U X ®, D U X IA N A ® a n d P a sc a l® a re re g is te re d tr a d e m a rk s o w n e d b y D U X D e si g n A B 2 0 12 . Okkar best varðveitta leyndarmál! Allar götur síðan DUX var stofnað 1926 þá hefur það verið metnaður okkar að framleiða heimsins þægilegust rúm, því það er frábær tilfinning að vakna úthvíldur eftir góðan nætursvefn. Til að ná því marki höfum við hjá DUX þróað DUX Pascal system er samanstendur af útskiftanlegu fjaðramottum sem gera þér kleift að sníða rúmið (stífleikann) að þínum þörfum hvenær sem þú vilt, eins oft og þú villt. Það er leyndarmálið að góðum svefni. DUXIANA Reykjavik, Ármuli 10, 568 9950 Billy Elliot (Stóra sviðið) Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Mið 6/5 kl. 19:00 Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Fim 7/5 kl. 19:00 Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fös 8/5 kl. 19:00 Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Mið 22/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Fim 23/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Fös 24/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Sun 26/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Mið 29/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Fim 30/4 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Sun 3/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Þri 5/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið) Fös 20/3 kl. 20:00 Frums. Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Sun 22/3 kl. 20:00 2.k Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Þri 24/3 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 26/3 kl. 20:00 3.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fös 27/3 kl. 20:00 4.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Sun 29/3 kl. 20:00 aukas. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 17/5 kl. 20:00 Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar Kenneth Máni (Litla sviðið) Mið 18/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Þri 24/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 21/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Sprenghlægilegur farsi Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.