Morgunblaðið - 20.03.2015, Síða 1
„Við teljum
ábyrgð veghald-
ara meiri en
fram hefur kom-
ið í þessum tjóna-
málum því að
þeir máttu alveg
vita að þetta færi
í þennan farveg,“ segir Runólfur
Ólafsson hjá FÍB um rétt ökumanna
til skaðabóta, verði ökutæki þeirra
fyrir tjóni af völdum holna í slitlagi.
Hann vísar m.a. til ummæla for-
svarsmanna Vegagerðar og
borgarinnar um að langvarandi
viðhaldsskortur muni bitna á veg-
unum. Ekki sé aðeins hægt að skýla
sér á bak við tíðarfarið í vetur.
„Stjórnmálamenn létu þessi
varnaðarorð framhjá sér fara,“
segir Runólfur en FÍB bíður niður-
stöðu tjónamáls hjá úrskurðar-
nefnd vátryggingamála. Verði
niðurstaðan veghaldara í hag komi
dómsmál til greina. »12
Meðvitað skapað
ástand sem veldur
borgurum tjóni
F Ö S T U D A G U R 2 0. M A R S 2 0 1 5
Stofnað 1913 67. tölublað 103. árgangur
FJÖLDI FÓLKS
GLÍMIR VIÐ
MEÐVIRKNI
ER EKKI
NÓG AÐ
ELSKA?
LANDSLAGIÐ Á
RÆTUR Á
VESTFJÖRÐUM
NÝTT LEIKRIT 38 MÁLVERK GUÐBJARGAR 39MÓTUNARÁR MIKILVÆG 10
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Raunverð íbúða í fjölbýli á höfuð-
borgarsvæðinu er nú svipað og í
mars 2005 og hefur það hækkað um
30% frá því í apríl kreppuárið 2010.
Flest bendir til að áfram verði
spenna á fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu og eiga lítið framboð
og íbúafjölgun þátt í því. Gangi spá
Landsbankans eftir verður raun-
verðið senn orðið jafnhátt og 2006.
Hér til hliðar hefur söluverðið í
febrúar verið áætlað út frá greiningu
Þjóðskrár Íslands, sem gerð var að
beiðni Morgunblaðsins. Vekur at-
hygli að meðalverðið í Grafarvogi
nálgast 300 þúsund krónur og selst
dæmigerð 100 fermetra íbúð í hverf-
inu því nú á tæpar 30 milljónir.
Spár um að fasteignir í úthverfum
Reykjavíkur myndu hækka í verði, í
kjölfar hækkunar í miðborginni, eru
því að rætast.
Á sama tíma og íbúðaverð hækkar
stöðugt lækkuðu íbúðalán íslenskra
heimila hjá bönkum og sparisjóðum í
janúar. Uppgreiðslur vegna séreign-
arsparnaðar koma þar við sögu.
Ný rannsókn Samtaka iðnaðarins
bendir til að næstu ár verði uppsafn-
aðri þörf fyrir húsnæði ekki mætt.
Fyrirhugaðar 35-40 fermetra smá-
íbúðir við Barónsstíg í Reykjavík eru
dæmi um nýjar lausnir þegar verð er
hátt og greiðslumat strangt.
30% hækkun íbúðaverðs
Verð íbúða á höfuðborgarsvæðinu nú 30% hærra en 2010
Söluverð á fermetra í Grafarvogi er að nálgast 300 þúsund
M Íbúðaverð »9
Áætlað söluverð íbúða
í febrúar
Eignir í fjölbýli í Reykjavík
Póstnúmer
101
105
107
109
111
112
376.222
353.087
345.129
249.184
244.077
288.974
Söluverð á fermetra
Heimild: Þjóðskrá Íslands. Útreikningar eru blaðsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Ræktun Rýmra þarf að vera um kjúk-
lingana en áður, samkvæmt reglugerð.
Kjúklingabændur hafa óskað eftir tíma til
aðlögunar að nýrri aðbúnaðarreglugerð
stjórnvalda. Þar eru gerðar ríkari kröfur en
Evrópusambandið gerir til sinnar fram-
leiðslu. Telja þeir að þetta skekki samkeppn-
isstöðu innlendu framleiðslunnar gagnvart
innflutningi.
„Okkur þykir reglugerðin [um aðbúnað
alifugla] góð. Þar er ýmislegt uppfært miðað
við kröfur um velferð dýra í dag,“ segir
Matthías H. Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Reykjagarðs og fulltrúi í stjórn Félags
kjúklingabænda. Í reglugerðinni sem gefin
var út í lok janúar sl. er þess krafist að þétt-
leiki í kjúklingaeldi megi ekki vera meiri en
39 kíló á fermetra, með vissum skilyrðum.
Kjúklingabændur innan ESB geta verið með
allt að 42 kíló í þéttleika. Það telur Matthías
að skekki samkeppnisstöðuna því kjúklingar
eru aðallega fluttir inn frá löndum ESB.
Enginn aðlögunartími
Starfshópur sem undirbjó reglugerðina
lagði til að lágmarkskröfur ESB yrðu við-
miðunin. Samkvæmt upplýsingum frá at-
vinnuvegaráðuneytinu bárust mótmæli frá
dýraverndarfélögum og var ákveðið að fara
milliveg á milli ESB og Svíþjóðar og Noregs
þar sem gerðar eru strangari kröfur.
Enginn aðlögunartími er gefinn. Matthías
segir að búin þurfi að stækka húsnæði sitt
um allt að 10% til að framleiða sama magn.
Hann telur sanngjarnt og eðlilegt að gerðar
séu kröfur um að innflutt kjöt sé framleitt
við sömu aðstæður. helgi@mbl.is
Kjúklingar
þurfa meira
rými en í ESB
Skekkir samkeppnis-
stöðu kjúklingabænda
Fólk er sólgið í veðurblíðu eftir hryssinginn undan-
farið og mátti sjá þess merki í miðborginni í vik-
unni. Sumir tóku því fagnandi að geta sest niður ut-
an við veitingastað þótt ekki væri lofthitinn hár.
Fólkið lét það ekki trufla sig þótt vinnusamir menn
væru að þrífa húsið á sama tíma.
Vorverkin koma með vaxandi birtu
Morgunblaðið/Eggert
Veturinn þrifinn af húsunum
Í alþjóðlegum
samanburði er
skuggabanka-
kerfið lítið hér-
lendis en þó er
varað við kerf-
islegri áhættu
sem skapast
vegna mikilla
tengsla hefð-
bundins bankakerfis og þess óhefð-
bundna. Gagnkvæm eignatengsl
eru margfalt meiri hér á landi en í
flestum samanburðarríkjum.
Nefnd sem fjallað hefur um
skuggabankakerfið kallar eftir
frekari kortlagningu þess og fagn-
ar lagasetningu sem innleidd verð-
ur á þessu sviði. Hún varar jafn-
framt við séríslenskri löggjöf þar til
reynsla er komin á hina samræmdu
löggjöf í Evrópu. »18
Skuggabankakerfið
er lítið á Íslandi
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
alþingismaður tilkynnti síðdegis í
gær að hún ætlaði að bjóða sig
fram gegn núverandi
formanni flokks-
ins, Árna Páli
Árnasyni. Kosið
verður á lands-
fundi flokksins á
Hótel Sögu í dag.
„Ég tel að við eig-
um ekki að vera hrædd við að
gera breytingar ef við teljum að
það geti aukið fylgi okkar þannig
að jafnaðarstefnan verði sterkari
og við komumst í aðstöðu til að
móta framtíðina,“ segir Sigríður.
Árni Páll segir lykilatriðið fyr-
ir Samfylkinguna að halda sinni
sýn á leiðina áfram og missa ekki
sjónar á því að það er langtíma-
verkefni. „Traust sem glatast
verður ekki endurheimt í einu
vetfangi. Það tekur tíma og við
erum á góðri leið,“ segir Árni
Páll. »2
Óvæntur slagur í
Samfylkingunni