Morgunblaðið - 20.03.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015
Fyrirtækið Já hefur að undanförnu
fengið fjölda kvartana og ábendinga
frá sínum viðskiptavinum vegna
reikninga í einkabanka og greiðslu-
seðla fyrir þjónustu sem þeir töldu
sig ekki hafa stofnað til. Í einhverjum
tilvikum hafa reikningarnir farið í
innheimtu og fólk fengið sendar við-
varanir frá Fjárvakri. Neytenda-
samtökin hafa einnig fengið ábend-
ingar útaf þessu.
Við eftirgrennslan Morgunblaðsins
hjá Já kemur í ljós að í langflestum
tilvikum er um að ræða rukkun á ár-
gjaldi fyrir viðbótarskráningu á Já.is,
líkt og fyrir aukalínu í símaskránni.
Fram að síðustu áramótum fengu
símnotendur rukkun fyrir þessu í
símreikningum Símans en frá 1. jan-
úar sl. ákvað Já að beina viðskiptum
sínum til Fjárvakurs, sem sér um inn-
heimtu og móttöku greiðslna fyrir
fyrirtækið. Var árgjaldið sent inn í
einkabanka fólks yngra en 65 ára en
aðrir fengu senda greiðsluseðla.
Fyrirtæki fá póstlagða reikninga
nema þau geti tekið á móti rafrænum
reikningi beint í bókhaldskerfi.
Innheimtan í endurskoðun
Aðspurð segir Lilja Hallbjörns-
dóttir, þjónustustjóri Já, að við-
skiptavinum hafi ekki verið tilkynnt
um breytta innheimtu og betur hefði
mátt standa að málum. „Við hefðum
betur upplýst okkar viðskiptavini um
breytinguna. Við erum að fara yfir
þessi mál og endurskoða, höfum eng-
an áhuga á að valda einhverjum mis-
skilningi og gerum okkar besta til að
upplýsa þá sem hafa samband við
okkur,“ segir Lilja en á vefslóðinni
reikningar.ja.is er að finna upplýs-
ingar um breytt innheimtuferli fyr-
irtækisins.
Lilja segir hvert tilvik vera metið
og dæmi séu um að kröfur hafi verið
felldar niður. bjb@mbl.is
Létu ekki vita af
breyttri innheimtu
Fjöldi kvartana borist til Já vegna
breytinga á innheimtu fyrir árgjald
Morgunblaðið/Júlíus
Innheimta Eitt þeirra bréfa sem
Fjárvakur sendi út fyrir Já.
Morgunblaðið hefur fengið að heyra fjölmörg dæmi um fólk sem undr-
aðist að sjá rukkun í netbanka frá Já og síðan innheimtubréf frá Fjár-
vakri. Í sumum tilvikum vissu viðkomandi ekki til þess að vera með net-
banka. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum þurfa kröfuhafar
að gera sérstakan innheimtusamning við sinn viðskiptabanka til að geta
stofnað kröfu. Eftir það er þeim frjálst að stofna kröfur á hvern sem er,
eina sem kröfuhafar þurfa er kennitala greiðanda og engu skiptir hvort
sá er með netbanka eða ekki. „Samningssambandið er á milli kröfuhafa
og greiðanda, bankinn er ekki beinn aðili að þeirra viðskiptum en útveg-
ar dreifileiðina ef svo má segja,“ segir Kristján Kristjánsson hjá Lands-
bankanum. Hann segir kröfu ekki stofnast í netbanka nema viðkomandi
viðskiptavinur hafi gert skriflegan samning við sinn banka um það.
Kemur mörgum í opna skjöldu
RUKKUN JÁ Í NETBANKA OG INNHEIMTUBRÉF FRÁ FJÁRVAKRI
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Áhugi ljósmyndara á sólmyrkvanum
er mikill, enda mikil áskorun að ná
góðum myndum af þessu einstæða
náttúrufyrirbæri,“ segir Baldvin
Einarsson hjá ljósmyndarvöruversl-
uninni Beco í Reykjavík. Fjölmargir
hafa verið í sam-
bandi við starfs-
menn þar á síð-
ustu dögum og
leitað upplýsinga
um hvernig best
sé að ná myndum
af því þegar sólin
hverfur bak tungl-
inu.
Sólmyrkvinn
stendur yfir um
tvær klukku-
stundir. Í Reykjavík byrjar myrkv-
inn kl. 8:38 og nær hámarki kl. 9:37.
Þá fer að rofa til.
Ekki upp í sól
Baldvin Einarsson segir að ekki sé
mælt með því að taka myndir beint
upp í sól enda geti slíkt valdið
skemmdum. Beri þó að taka fram að
margir hafi í gegnum tíðina tekið
ljósmyndir af sólinni með góðum ár-
angri og vandkvæðalaust.
Í sólmyrkva ætti fólk að byrja með
því að nota þrengsta ljósop mynda-
vélar og mesta mögulega lokunar-
hraða, til dæmis 1:8000 sek. eða
þrengsta ljósop linsunnar, t.d. 32.
Þegar hefðbundin SLR myndavél,
til dæmis Canon EOS, er stillt á lang-
an ljóstíma og sett móti sól þá fara
geislar hennar inn um linsuna og
spegilhúsið og svo má skoða myndina
í glugga afan á vélinni. Þetta mætti
halda að væri alveg öruggt en það eru
margir hlutir inni í linsunni og speg-
ilhúsinu sem eru úr plasti og geta
skemmst í miklum hita. Ásamt því
eru í öllum nútíma SLR vélum tveir
speglar, einn fyrir skoðara og hinn
fyrir fókusskynjara.
Hjá Beco vekja menn athygli á því
að þegar ljós komi inn í myndavél fari
það ekki bara út um skoðara heldur
einnig á fókusskynjarann. Þar geti
verið fyrir plasthlífar eða skyggni
sem illa þoli hita. Þegar að því komi
að taka myndina sjálfa sé lýsingar-
tíminn iðulega stuttur og því séu lík-
urnar á því að skemma t.d. mynd-
skynjarann afar litlar. Ef hins vegar
séu teknar lifandi myndir sé sterkur
sólargeisli sendur á myndskynjar-
ann í talsverðan tíma og slíkt geti
verið varhugavert. Því sé ekki ráð-
legt að beina myndavél beint að sól
nema nota rafsuðugler eða ljóssíur.
Ljósopið sé þröngt og
lokunahraðinn mikill
Myndasmiðir leita ráða Sólmyrkvinn í dag er áskorun
AFP
Noregur Fjöldi ljósmyndara er kominn til Svalbarða, þaðan sem vel mun
sjást til sólmyrkvans. Lögregla hefur þó áhyggjur, fari ísbirnir á stjá.
Samkvæmt upplýsingum frá Veður-
stofunni er skýjahuluspáin þannig
að sólmyrkvinn ætti að sjást vel á
Suðurlandi og búist er við að skýin
verði að mestu farin á Vesturlandi.
Spáin var ekki góð fyrir Norður- og
Austurland. Þetta er þó bara spá og
erfitt er að lesa í skýin. Veðurspáin
spáir ágætisveðri, austlægri eða
breytilegri átt, 3-10 m/s. Snjókoma
eða él í fyrstu á norðaustanverðu
landinu, annars bjart með köflum.
Í tilefni af sólmyrkvanum verður
víða blásið í gleðilúðra til að sjá
þessa einstöku sýningu. Þannig
verður skíðasvæðið í Hlíðarfjalli
opnað klukkan átta og í Bláfjöllum
klukkan níu. Á Ólafsfirði fer Arctic
Freeride upp á Múlakollu á snjó-
troðara, ásatrúarmenn ætla að taka
skóflustungu að nýju hofi um leið
og eflaust mætti nefna fleira.
Gestir hátíðarinnar EVE fanfest
munu hittast fyrir utan Hörpu
klukkan hálfníu og horfa. Einnig
verða HÍ og Stjörnuskoðunarfélag
Seltjarnarness með hátíð fyrir
framan aðalbyggingu HÍ í tilefni
dagsins sem er liður í dagskrá skól-
ans á alþjóðlegu ári ljóssins.
Engin ský fyrir Sunnlendingum
SÝNING NÁTTÚRUNNAR Í MORGUNSÁRIÐ
Björn Björnsson
Sauðárkróki
Eftir langvarandi umhleypinga og
nú síðast versta óveðurskafla vetr-
arins þar sem jafnvel stórtjón
urðu í flestum landshlutum, var
ánægjulegt að sjá, þegar brast á
með logni í Skagafirði að flestar
byggingar höfðu sloppið óskadd-
aðar.
En athygli fréttaritara vakti
„fjölþjóðleg“ bygging yngstu bæj-
arbúanna frá síðastliðnu sumri,
sem hafði haldið velli þrátt fyrir
veðurofsann, sem tætti af þök og
velti jafnvel heyrúllum og öðrum
þungum hlutum um langan veg.
Að vísu var ljóst að ekki voru allir
veggir hornréttir eftir átökin, og
ef til vill var hallinn orðinn eitt-
hvað meiri en var í haust, en víst
er að byggt var af vandvirkni og
alúð og naglarnir ekki sparaðir.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Glæsibygging stóð
af sér storminn
Baldvin
Einarsson
SMÁRALIND • 2 HÆÐ
SÍMI 571 3210
Kíktu á verðið
Mikið úrval af léttum strigaskóm
Verð 1.995
Stærðir 36-41
Verð 3.995
Stærðir 36-41
3.995
Stærðir 36-41
Verð
Verð 1.995
stærðir 36-41