Morgunblaðið - 20.03.2015, Side 8

Morgunblaðið - 20.03.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015 „Við erum alltaf að reyna að koma í veg fyrir smygl og erum stöðugt á tánum,“ segir Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður en í gær sendu toll- verðir frá sér fréttatilkynn- ingu um árangur síðasta árs sem sést m.a. hér að ofan. Kári segir að það verði æ erf- iðara að stöðva smygl eftir að ferðamönnum fór að fjölga mjög hér á landi. „Við komumst yfir einhvern fjölda og það lenda um 3.000 manns í Kefla- vík á hverjum degi yfir vetrartím- ann og um 10 þúsund manns á dag á sumrin,“ segir Kári. Þrátt fyrir þessa fjölgun hefur tollvörðum ekki verið fjölgað. „Rík- ið hefur ekki aukið fjárframlög hjá okkur. Við erum alltaf með sama mannskap þótt ferðamönnum hafi fjölgað um helming. Það er auðvit- að búinn að vera samdráttur en fjárframlög til okkar hafa staðið í stað í mörg ár.“ „Erfiðara að stöðva smygl“  Tollvörðum hefur ekki verið fjölgað Kári Gunnlaugsson Veður víða um heim 19.3., kl. 18.00 Reykjavík 6 súld Bolungarvík 1 rigning Akureyri 3 rigning Nuuk -5 léttskýjað Þórshöfn 6 súld Ósló 3 skúrir Kaupmannahöfn 7 heiðskírt Stokkhólmur 11 heiðskírt Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 8 skýjað Brussel 7 skýjað Dublin 11 léttskýjað Glasgow 11 léttskýjað London 7 skýjað París 7 alskýjað Amsterdam 11 heiðskírt Hamborg 13 heiðskírt Berlín 12 heiðskírt Vín 11 heiðskírt Moskva 10 skýjað Algarve 13 léttskýjað Madríd 12 skýjað Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 16 heiðskírt Aþena 10 léttskýjað Winnipeg 2 skýjað Montreal -6 heiðskírt New York 2 heiðskírt Chicago 7 alskýjað Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:29 19:42 ÍSAFJÖRÐUR 7:34 19:48 SIGLUFJÖRÐUR 7:17 19:31 DJÚPIVOGUR 6:59 19:12 www.reykjafell.is Nánari upplýsingar veita löggiltir rafverktakar. Rétt uppsetning og meðhöndlun tryggir endingu og ábyrgð, öryggi í þína þágu. herbergjalausnir Kíkja-í-pakkann-flokkarnir á Al-þingi hafa nú lagt fram þings- ályktunartillögu um að borið verði undir þjóðina hvort kíkt skuli í pakkann. Flokk- arnir eru nú, þeg- ar þeir óttast að hilli undir að að- ildarumsóknin sé endanlega úr sög- unni, orðnir sér- staklega áhuga- samir um þjóðaratkvæða- greiðslu.    Nú er aðþeirra áliti mikilvægt að þjóðin kjósi og er það athyglisverð viðhorfsbreyting.    Það vill nefni-lega svo til að þingmenn kíkja-í-pakkann- flokka hafa hing- að til hafnað því að leyfa lands- mönnum að taka afstöðu til aðildar- umsóknar.    Þeir höfðu tækifæri til þess sum-arið 2009 en ákváðu þess í stað að neyða upp á þjóðina aðildar- umsókn og öll þau ósköp sem þeirri umsókn hafa fylgt, vitandi að þjóð- in vill alls ekki ganga í ESB.    Og þessir áhugamenn um þjóðar-atkvæði fengu líka ítrekað tækifæri til að leyfa þjóðinni að segja skoðun sína á afleitum Ice- save-samningum, en höfnuðu því jafnan og þurfti atbeina forseta til að þjóðin fengi að hafna samn- ingum þessa fólks.    En nú er lýðræðisástin sönn. Umþað efast enginn. STAKSTEINAR Lýðræðisást eða lýðskrum? Katrín Jakobsdóttir Guðmundur Steingrímsson Árni Páll Árnason Íslenskir tollverðir stöðvuðu á landamærunum á síðasta ári nokkrar sérstakar sendingar. Þurrkaður krókódílshaus, einn og hálfur lítri af andablóði og tugir hrárra eggja voru meðal þess sem tollverðir stoppuðu. Andablóðið var sagt ætlað til súpugerðar en inn- flutningur hrárra dýraafurða er bannaður. Krókódílshausinn fellur undir svokallaðan CITES samning um alþjóðaverslun með plöntur og dýr í útrýmingarhættu. Sá sem kom með hann til landsins framvís- aði fölsuðu CITES vottorði þ.e. fölsuðu leyfi til útflutnings frá Taí- landi. Afurðir dýra stoppaðar Markmið CITES samningsins er að vernda tegundir dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu með því að stjórna alþjóðlegum við- skiptum með þær. „Tollstjóri bend- ir á að flutningur dýra og plantna, sem flokkuð eru í útrýmingar- hættu, eða afurða þeirra milli landa er ekki leyfilegur nema að fengnu leyfi hjá Umhverfisstofnun,“ segir í tilkynningu frá embættinu. „Brögð eru að því að stöðva þurfi sendingar í tollafgreiðslu, sem inni- halda afurðir dýra sem eru á vál- ista eins og ofangreint dæmi ber með sér,“ segir ennfremur. benedikt@mbl.is Þurrkaður krókódílshaus og andablóð  Tollverðir stöðva stundum sérkennilegar sendingar á landamærum Morgunblaðið/Tollstjóri Þurr Krókódílshausinn sem toll- verðir stöðvuðu á síðasta ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.