Morgunblaðið - 20.03.2015, Page 17

Morgunblaðið - 20.03.2015, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MARS 2015 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Opinber stefna í málefnum frístunda- heimila, þ.e.a.s. lengdrar viðveru barna á grunnskólaaldri eftir að hefð- bundnum skóladegi lýkur, er ekki til- þrátt fyrir hávær- ar kröfur um hana síðustu ár. Krafan hefur m.a. komið frá þeim sem starfa í faginu, sveitarfélögum og umboðsmanni barna. Árið 2012 óskaði umboðs- maður barna eftir, við mennta- og menningar- málaráðuneyti, að settar yrðu op- inberar reglur um fagmennsku í starfinu. Ný lög eða grunnskólalög? Ýmsar hugmyndir eru um hvaða leið sé best að fara í þessum efnum, m.a. hvort frístundaheimili ættu að tilheyra lögum sem þegar eru fyrir hendi, t.d. grunnskólalögum, æsku- lýðslögum eða hvort setja ætti upp sérstakan lagabálk um frístunda- heimili. Þetta kom m.a. fram í niðurstöðum starfshóps sem skilaði tillögum til mennta- og menningarmálaráðu- neytis síðastliðið haust. Starfs- hópnum var falið að skoða hvort þörf væri á að kveða með skýrari hætti á um starfsemi frístundaheimila fyrir nemendur á grunnskólastigi. Í könnun sem hópurinn lét gera kom fram að langflest sveitarfélög telja æskilegt að sett verði opinber viðmið um starfsemi frístundaheim- ila. Niðurstaða hópsins var því af- dráttarlaus um að opinbera stefnu skorti og þyrfti að gera bragarbót á því. Tómstundadagurinn 2015 Í dag er haldinn tómstundadag- urinn 2015 í Háskóla Íslands, þar er áhersla á starfsemi frístundaheimila fyrir 6-9 ára börn. „Málþingið er kjör- inn umræðugrundvöllur því það er mikilvægt fyrir okkur að ræða þessi mál betur. Vonandi komumst við nær því að finna heppilega lausn og ræða hvaða möguleikar eru til staðar,“ seg- ir Guðni Olgeirsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyt- inu en hann sat í starfshópnum um frístundaheimilin. Eins og var áður í leikskólunum Á málþinginu mun Guðni ræða þá vinnu sem fram fór í starfshópnum og stöðu frístundaheimila. „Það má segja að staðan á frístundaheimilunum er svipuð og var á leikskólastigi áður en leikskólinn var lögfestur. Þróunin er svipuð þar sem beðið er um sam- ræmdar leikreglur,“ segir Guðni. Hann bendir á að sveitarfélögin séu komin mislangt í að skapa ramma ut- an um starfið. Reykjavíkurborg sé komin lengst í að þróa starfið, að öll- um öðrum sveitarfélögum ólöstuðum, m.a. með mótun viðmiða um gæði. Guðni bendir á að fólk vilji ganga mis- langt í þessum efnum. Sterkari krafa er í þéttbýlinu að fá sérstakan laga- ramma utan um frístundastarfið, sem falli ekki innan grunnskólalaganna. „Mikilvægast er þó að koma sér saman um viðmið um gæði starfsins, ramma um starfsemina og fag- mennsku starfsmanna,“ segir Guðni og hann væntir þess að hægt verði að nýta afrakstur þingsins til frekari stefnumótunar. Morgunblaðið/Kristinn Börn Sterk krafa er í borginni um sérstök lög um frístundastarfið. Sérstök lög um frístundaheimili? Frístundaheimili » Ekki er til opinber stefna í málefnum frístundaheimila, þrátt fyrir háværar kröfur um hana síðustu ár. » Ýmsar leiðir eru í boði, m.a. hvort frístundaheimili ættu að tilheyra grunnskólalögum, æskulýðslögum eða hvort setja ætti sérstök lög. Guðni Olgeirsson „Ég kalla eftir opinberum ramma um starfsemi frístundaheimila,“ segir Kolbrún Þ. Pálsdóttir, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún heldur erindi á tómstundadeginum 2015 í dag undir yfirskriftinni: „Hvað er frístundaheimili?“ Kolbrún segir þennan mála- flokk falla á milli vita í um- ræðunni og bendir á að það sé deilt um hvar eigi að staðsetja frístundaheimilin, hvort þau eigi að heyra undir grunnskólana eða undir æskulýðs- og tómstunda- mál. Hún segir að hvaða leiðir sem sveitarfélög fari í þeim efnum verði að styðja við faglegt starf og tryggja viðunandi aðbúnað. „Það er ánægjulegt að það er vaxandi meðvitund um mikilvægi frístundaheimila. Meirihluti sex til átta ára barna dvelur mikinn tíma á frístunda- heimilum og hér gefst tækifæri til að vinna mark- visst með félags- færni, þátttöku og skapandi starf barna,“ segir Kolbrún. Í því samhengi vísar hún til náms í tómstunda- og félags- málafræðum við Háskóla Íslands sem vaxandi sókn er í. Kolbrún bendir á að gagnlegt sé að líta til Svíþjóðar og Danmerkur þar sem ríkari hefð er fyrir tómstunda- fræðingum sem fagstétt í sam- félaginu og sú fagstétt er orðin ómissandi hluti af menntakerfinu. Kalla eftir opinberum ramma MÁLAFLOKKUR SEM FELLUR MILLI VITA Kolbrún Þ. Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.