Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 Grímur Sæmundsen Þóranna Jónsdóttir Oddur Steinarsson Hulda Sigríður Hreggviðsdóttir Liv Bergþórsdóttir Göran Persson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Björgólfur Jóhannsson Skráning á www.sa.is ÁRSFUNDUR ATVINNULÍFSINS Í HÖRPU – SILFURBERGI FIMMTUDAGINN 16. APRÍL KL. 14-16 ÁVÖRP Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar RADDIR ATVINNULÍFSINS Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Hulda Sigríður Hreggviðsdóttir, rannsóknir og þróun hjá Zymetech Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og formaður Samtaka ferðaþjónustunnar Fundarstjóri er Þóranna Jónsdóttir, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík Netagerð að loknum fundi kl. 16-17, tónlist og tilheyrandi. GERUM BETUR ÁRSFUNDUR ATVINNULÍFSINS #SA2015 Á nýjum vef sem settur hefur verið upp um gengislán á slóðinni geng- istrygging.is kemur fram að kröfu- virði útlána sem enn er ágreiningur um sé 547 milljarðar króna, eða sem nemur 27% af vergri landsfram- leiðslu. Á vefsíðunni er farið yfir mismuninn á löglegum og ólöglegum gengislánum og umfang gengislána og dóma sem hafa fallið. Tiltekin eru dæmi um tvö fyrirtæki sem hafa fengið dóma, annars vegar er um að ræða fyrirtækið Motormax og hins vegar fyrirtækið Háttur. Þá er fjallað ítarlega um innlenda gjald- eyrisreikninga og mismuninn á höf- uðbók 38 og höfuðbók 26. Að vefnum stendur hópur einstaklinga og fyr- irtækja sem ekki er nafngreindur. „Við fögnum umræðum og upp- lýsingum um þetta mál og vonandi að það hraði því að greiða endanlega úr þessu máli. Þetta er því mjög já- kvætt fyrir viðskiptalífið,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda, en fyrir skömmu stóð félagið fyrir fundi um gengismál. Hann tekur þó fram að hann sé ekki talsmaður hópsins en telur jákvætt allt sem gert er til að koma stöðunni á geng- istryggðum lánum í umræðuna. „Staðan er óviðunandi. Það eru liðin 7 ár frá hruni, gengnir eru 70 dómar í Hæstarétti og næstum 200 dómar í Héraðsdómi. Þetta tekur súrefni af viðskiptalífinu. Það er verið að deila um peninga sem fyrirtækin ættu annars að geta verið að nota til að fjárfesta og búa til verðmæti en eru fastir í lagalegri togstreitu,“ segir Ólafur. Gengismál Fjöldi mála enn óleystur. Enn ágreiningur um 547 milljarða Greiningardeild Íslandsbanka gerir ráð fyrir því að verðbólga muni mælast 1,4% í þessum mánuði í stað 1,6% eins og hún mældist í mars- mánuði. Spáin gerir ráð fyrir betri horfum hvað verðbólguþróun varðar en þó segir í henni að nú sé gert ráð fyrir meiri hækkun íbúðaverðs á komandi mánuðum en hingað til hafi verið spáð. Á sama tíma gerir spáin ráð fyrir því að húsnæðisverð hækki lítið sem ekkert í komandi mælingu og að 0,06% hækkun húsnæðis muni að- eins hafa 0,02% áhrif á vísitölu neysluverðs. Íslandsbanki gerir ráð fyrir því í spá sinni að verðbólga muni haldast í kringum 1,5% fram á mitt ár en að eftir það muni hún fara heldur hækkandi og að í árslok verði hún við verðbólgumarkmið Seðlabank- ans í 2,5%. Þá gerir langtímaspáin ráð fyrir því að ári síðar, þ.e. við árs- lok 2016, verði verðbólgan komin í 2,8%. Það sem helst mun drífa verð- bólguna að mati bankans er hækkun launa og áframhaldandi verðhækk- un íbúðarhúsnæðis. Stígandi í verðbólgu Ingólfur Bender Kristján Loftsson og sitjandi stjórn HB Granda hlutu afgerandi kosningu á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Mætt var fyrir tæplega 91,56% af hlutafé félagsins og hlaut sitjandi stjórn vel yfir milljarð þeirra at- kvæða. Helga Hlín Há- konardóttir, lög- fræðingur, sem meðal annars naut stuðnings Gildis sem á rúm 6% í félaginu, hlaut ekki stjórn- arsæti. Hlaut hún þó rúmar 379 milljónir atkvæða eða 22,4%, sem hefðu dugað henni ef farið hefði verið fram á marfeldiskosningu í tíma. Birgir S. Bjarnason, stjórnarmaður í Lífeyrissjóði verslunarmanna, bauð sig einnig fram til stjórnarsetu en dró framboð sitt til baka á lokametr- unum. Engu að síður hlaut hann um 53 milljónir atkvæða á aðalfundinum en fundarmönnum var ekki kunnugt um afturköllun framboðsins fyrr en að kosningu lokinni. Helga tók til máls á fundinum þar sem hún sagði að í framboði sínu hefði ekki falist gagnrýni á sitjandi stjórn heldur teldi hún það eðlilegan þátt í því þegar félag færi á hluta- bréfamarkað og verulegar breytingar yrðu á eignarhaldinu að sambæri- legar breytingar yrðu á stjórninni. „Ég taldi mig góða viðbót við fjöl- breytileikann í stjórninni og mín menntun og bakgrunnur myndi nýt- ast félaginu vel,“ segir Helga. Ekki hvarflaði að henni að draga framboð sitt til baka þó blikur væru á lofti um það hvort hún hlyti brautargengi. „Ég hafði í raun enga hugmynd um hvernig kosningin færi og ef þú ferð á annað borð í þennan slag þá verður þú að hafa magann í að klára hann,“ segir Helga að lokum og óskar nýrri stjórn velfarnaðar. laufey@mbl.is Stjórn HB Granda óbreytt  Helga Hlín hlaut 22,4% atkvæða Kristján Loftsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.