Morgunblaðið - 11.04.2015, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015
Danski stórmeistarinn BentLarsen á eina skákbyrjunsem ber nafn hans: Lar-sens-byrjun hefst með
hinum hógværa peðsleik 1. b2-b3.
Leikurinn einn sér er í sjálfu sér
ekki merkilegur, hvítur vill koma
biskupinum fyrir á hornalínunni og
þeir sem fylgdust með taflmennsku
Larsens á sjöunda áratug síðustu
aldar vissu að hann sérhæfði sig í
vængtöflum og spegilmynd þessa
leiks á kóngsvængnum, 1. g2-g3,
kom einnig fyrir í skákum hans. Árið
1970 tefldi Larsen eina sína fræg-
ustu skák. Á 1. borði heimsliðsins í
keppni við úrvalslið Sovétríkjanna
mætti hann heimsmeistaranum Bor-
is Spasskí. Larsen hóf taflið með 1.
b2-b3. Allt ætlaði um koll að keyra í
Sava-center í Belgrad þar sem
keppnin fór fram þegar Spasskí vann
skákina í 17 leikjum! Eftir það fækk-
aði skákum Larsen með þessari
byrjun, a.m.k. í viðureignum hans við
þá bestu. Bobby Fischer, sem hafði
gefið eftir að tefla á fyrsta borði fyrir
heimsliðið, fylgdist grannt með því
sem Larsen tók sér fyrir hendur og í
fjórum skákum þetta ár valdi hann
upphafsleik Larsens og vann allar
skákirnar með glæsibrag. Nálgun
hans var samt önnur; í skákunum
sem hann tefldi við Svíann Ulf And-
erson og Úkraínumanninn Vladimir
Tukmakov fékk hann upp ákveðna
stöðutýpu sem líktist Sikileyjarvörn
og þar var hann öllum hnútum kunn-
ugur.
Byrjun Larsens kom við sögu í
einni skák áskorendaflokks Íslands-
mótsins sem lauk um síðustu helgi
með öruggum sigri Hjörvars Steins
Grétarssonar sem hlaut 7 ½ vinning
af 9 mögulegum. Keppt var um tvö
sæti í landsliðsflokki árið 2016 og
hitt sætið kom í hlut Guðmundar
Gíslasonar sem hlaut 7 vinninga. Í 3.
sæti varð Davíð Kjartansson með 6
½ vinning. Þar á eftir komu svo
Lenka Ptacnikova og nokkrir ungir
skákmenn sem allir áttu möguleika á
landsliðsæti fram á síðasta dag. Einn
þeirra, Dagur Ragnarsson, sem ný-
lega vann það afrek að hækka meira
á stigum millli mánaða en dæmi eru
um, tefldi við Hjörvar Stein í loka-
umferðinni og tapaði. Hann hafði
byrjað illa en vann svo fimm skákir í
röð. Í næstsíðustu umferð mætti
hann Lenku Ptacnikovu og ákvað að
fylgja í fótspor Larsens:
Skákþing Íslands 2015 – áskor-
endaflokkur; 8. umferð.
Dagur Ragnarsson – Lenka
Ptacnikova
Larsens-byrjun
1. b3 e5 2. Bb2 Rc6 3. e3 d6 4. d4
exd4 5. exd4 d5 6. Rf3 Bb4+ 7. Rbd2
Rf6 8. a3 Be7 9. Bd3 a6 10. Re5 Rb8
11. O-O c5
Byrjunarleikir svarts eru fremur
ómarkvissir og þessi hjálpar til við
virkja biskupinn á b2.
12. He1 O-O 13. dxc5 Bxc5 14. Df3
Be6 15. Rf1 He8 16. Rg3 Bf8 17.
Rh5!
Svartur á þegar í miklum erf-
iðleikum, 17. … Rbd7 strandar á 18.
Rxd7 Rxd7 19. Bxg7! og vinnur, 19.
… Bxg7 er svarað með 20. Dg3.
17. … Rxh5 18. Dxh5 h6
Hvað annað? 18. … g6 er svarað
með 19. Rxg6! fxg6 20. Bxg6! og
vinnur.
19. Rxf7! Bxf7 20. Df5! He4
20. … g6 liggur beinast við en
hvíta drottningin kemst á hornalín-
una a1-h8 með 21. Hxe8! t.d. 21. ….
Bxe8 22. De5 eða 21. … Dxe8 22. Df6
og vinnur.
21. Hxe4 Dg5
Þetta er vonlaust framhald en 21.
… dxe4 22. Bxe4 g6 23. De5 kemur í
sama stað niður.
22. Dxg5 hxg5 23. Hg4 Be7 24.
He1 Bf6
Eða 24. … Rc6 25. h4 Bh5 26.
Hxe7! Rxe7 27. Hxg5 o.s.frv.
25. Bxf6 gxf6 26. h4 Bh5 27. Hg3
g4 28. f3 Rc6 29. fxg4 Bf7 30. g5
- og svartur gafst upp.
Hjörvar Steinn vann
áskorendaflokk Íslandsmótsins
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Eir öryggisíbúðir ehf. Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.
( 522 5700 milli 8:00 og 16:00 virka daga.
Öryggisíbúðir Eirar til leigu í
Grafarvogi Reykjavík
Vandaðar öryggisíbúðir Eirar til leigu
í Grafarvogi, Reykjavík.
Eirborgir, Fróðengi 1-11, Grafarvogi, Reykjavík.
Eirarhús, Hlíðarhúsum 3-5, Grafarvogi, Reykjavík.
Nánari upplýsingar í síma 522 5700 virka daga milli kl. 8 og 16
og í gegnum netföngin: edda@eir.is, sveinn@eir.is
• Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðar-
fullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að
einstaklingurinn geti búið lengur heima.
• Öryggisvöktun allan sólarhringinn.
• Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð.
• Góðar gönguleiðir í næsta nágrenni.
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun
Sími: 533 4200 og 892 0667
Engjateigi 5, 105 Rvk, arsalir@arsalir.is
Til sölu vönduð 3ja her-
bergja íbúð á jarðhæð,
með sér suður verönd
og yfirbyggðar svalir að
hluta.
Íbúðin skiptist í forstofu
með góðum skápum. Tvö
svefnherbergi með skápum. Eld-
hús með ljósri/Beyki innréttingu. Stofu og
borðstofu með vönduðu nýlegu parketi á gólfum.
Flísalagt baðherbergi með innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér
geymsla fylgir í kjallara. Íbúð fyrir 60 ára og eldri. Velkomið að skoða íbúðina á sunnudaginn
milli kl. 17:00–17:30, íbúð 0106.
Til afhendingar við kaupsamning.
Eiðismýri 30
opið hús
Fyrir 60+ ára
Sunnudag 12.4.2015
Mér finnst ástæða til að benda á
grein Guðjóns Smára Agnarssonar í
Morgunblaðinu 8. apríl, „Útvarp
vinstrimanna“. Guðjón bendir á ým-
is dæmi um þær breytingar sem
hafa átt sér stað í „útvarpi starfs-
manna“ á undanförnum mánuðum.
Ég tek undir orð Guðjóns og
bendi þeim sem tök hafa á að lesa
greinina.
Ég vona að yfirstjórn RÚV veiti
þessum athugasemdum Guðjóns at-
hygli og geri viðeigandi ráðstafanir
til að stöðva pólítískar skoðanir ein-
stakra starfsmanna í frétta-
umfjöllun Ríkisútvarpsins. Lands-
menn eiga kröfu á að Ríkisútvarpið
flytji hlutlausar og réttar fréttir
eins nærri sannleikanum og unnt
er. Pólitískar skoðanir fréttamanna
eiga ekki heima í fréttaflutningi nú-
tímans.
Tek einnig undir orð Guðjóns um
að morgunútvarpið sé ekki svipur
hjá sjón eftir að hætt hefur verið
við margrómaða tónlistar- og
fræðsluþætti fyrir hádegið þar sem
t.d. Una Margrét Jónsdóttir, Ingv-
eldur G. Ólafsdóttir og Lana Kol-
brún Eddudóttir sáu um að gleðja
hlustendur með frábæru ívafi tón-
listar og fróðleiks. Er engin von til
að þessir þættir verði settir aftur á
dagskrá „á sinn stað“?
Því miður er ég næstum hætt að
hlusta á Rás 1 – því þar er lítið sem
heillar. Kannski skiptir það yfir-
stjórn RÚV engu máli – þótt ein-
staklingar hætti að hlusta á útvarp-
ið „sitt“ eftir áralanga hlustun. –
Góðir stjórnendur hlusta á það sem
sagt er í umhverfinu. Vonandi sann-
ar yfirstjórn RÚV að þar sitji góðir
stjórnendur og breyti skipulaginu í
fyrra horf?
Það væri vel.
Fv. aðdáandi Rásar 1.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
RÚV flytji hlutlausar fréttir
Fréttaflutningur „Landsmenn eiga kröfu
á að Ríkisútvarpið flytji hlutlausar og rétt-
ar fréttir...“
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Gullsmárinn
Spilamennska eftir páska hófst að
nýju fimmtudaginn 9. apríl. Spilað
var á 13 borðum.
Úrslit í N/S:
Gunnar Sigurbjss. -
Sigurður Gunnlss. 320
Vigdís Sigurjónsd. - Þorl. Þórarinss. 312
Unnar Guðmss. - Guðm.Sigursteinss. 300
Sigurður Gíslas. - Reynir Bjarnason 290
A/V:
Ragnar Ásmundss. - Pétur Jósefss. 330
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 299
Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 295
Haukur Guðmss. - Stefán Ólafsson 285
Skömmu fyrir páska sótti Kópa-
vogur Reykjavík heim. Spilað var á
20 borðum (10 sveitir frá hvorum að-
ila). Kópavogur sigraði örugglega
með 168 stigum gegn 127 stigum
Reykjavíkur.
Lögfræðistofan vann
Lögfræðistofa Íslands vann Aðal-
sveitakeppni BR sem lauk sl. þriðju-
dag.
Lokastaðan:
Lögfræðistofa Íslands 187,58 stig
Vestri 163,66 stig
Grant Thornton = 154,92 stig
Næsta þriðjudag byrjar 4 kvölda
tvímenningur.
Mikill fjöldi lausna barst við vor-
jafndægragátunni og voru flestir
með rétta lausn á henni. Lausnin er:
Vorjafndægragátan getur hafa
gengið brösótt þeim, sem loksins finnur
lausnina í líki höfuðstafa,
og lætur stuðla fylgja með og vinnur.
Vinningarnir eru bækur frá For-
laginu.
Herdís Berndsen, Ljósheimum
22, 104 Reykjavík, fær bókina Etta
og Otto og Russel og James eftir
Emmu Hopper,
Ingibjörg V. Friðbjörnsdóttir,
Hlíðarhvammi 3, 200 Kópavogi, fær
bókina Afturgönguna eftir Jo
Nesbø.
Valgeir Vilhjálmsson, Hólmatúni
13, 225 Álftanesi, fær bókina Alex
eftir Pierre Lemaitre.
Vinningshafar geta vitjað vinning-
anna í móttöku ritstjórnar Morg-
unblaðsins eða hringt í 569-1100 og
fengið bækurnar sendar heim.
Morgunblaðið þakkar þeim sem
sendu lausnir.
Lausn vorjafndægragátu