Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 34

Morgunblaðið - 11.04.2015, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 ✝ Róslaug JónínaAgnarsdóttir fæddist á Sauð- árkróki 19. maí 1940. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, umvaf- in ástkærum eig- inmanni og börn- um, 1. apríl 2015. Foreldrar henn- ar voru Agnar Ás- björn Jónsson, f. 12. febrúar 1907, d. 6. október 1974, og Þuríður Vilborg Rós- antsdóttir, f. 5. júní 1904, d. 1. október 1989. Eftirlifandi systk- ini Róslaugar eru Elísabet, f. 6. maí 1932, og Guðmundur, f. 20. maí 1942. Agnar og Þuríður eignuðust dótturina Róslaugu, f. 19. ágúst 1936, d. 15. október 1937. Fjölskyldan flutti til Ísafjarð- ar í apríl 1946 þegar Agnar tók við bústjórastarfi á Seljalands- búinu á Ísafirði. Róslaug kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Sigurði Ólafssyni, f. 7. mars 1936 á Ísa- sambúð með Lísu Marý. Þeirra barn er Emma Rakel. Patrekur Þór og Agnes Lára. 3. Alma Björk Sigurðardóttir, f. 1965, gift Hlyni Hafberg Snorrasyni. Börn þeirra eru Tinna Hrund í sambúð með Hlyni Steini, þeirra börn eru Baltasar Goði og Hek- tor Jaki. Einar Ægir í sambúð með Elísabetu og Helga Þuríður í sambúð með Birgi Lofti. 4. Sól- veig S. Sigurðardóttir, f. 1968, gift Sigurði Jónssyni. Þeirra börn eru Haukur, giftur Vaidu. Daníel Þór, Björk og Ragnar Óli. 5. Auðunn Atli, f. 1971, gift- ur Ágústu Björgu Þorsteins- dóttur Þeirra börn eru Hrannar Helgi og Dagur Ólafur, fyrir átti Auðunn dótturina Elsu Hrönn. Róslaug og Sigurður hafa alla tíð búið á Ísafirði og þar búa öll börnin þeirra nema Auðunn Atli, hann býr á Englandi. Róslaug vann af ýmis skrif- stofustörf síðast hjá Eimskip á Ísafirði. Hún hafði alltaf tíma fyrir börnin sín og barnabörn þó að hún ynni 100% vinnu og aldr- ei sat heimilið á hakanum. Þeg- ar hún hætti að vinna gat hún eytt meiri tíma með fjölskyld- unni og í sælureit þeirra hjóna í Arnardal í Skutulsfirði. Útför Róslaugar fer fram í Ísafjarðarkirkju í dag, 11. apríl 2015, kl. 14. firði árið 1955, þau gengu í hjónaband 8. desember 1962. Sigurður er sonur Ólafs Sigurðssonar, f. 14. nóvember 1904, d. 6. júní 1974, og Guðrúnar Ólínu Sum- arliðadóttur, f. 29. nóvember 1911, d. 27. febrúar 1986. Börn Róslaugar og Sigurðar eru 1. Ólafur Rúnar Sigurðsson, f. 1959, giftur El- ísabetu Unu Jónsdóttur. Börn þeirra eru Sigurður Pétur, í sambúð með Sigríði Rögnu. Þeirra barn er Ólafur Breki. Jón Haukur, í sambúð með Gunnhildi Birnu. Barn Jóns Hauks er Jóhann Rúnar. Ásdís Rún, í sambúð með Daníel Erni. Þeirra barn er Katrín Dalía. 2. Agnar Þór Sigurðsson, f. 1962 giftur Jóndísi Sigurrósu Ein- arsdóttur. Börn þeirra eru Rós- laug Guðrún, gift Grétari Erni. Þeirra börn eru Daði Snær og Katla Bryndís. Hafþór Atli í Sem ungu barni þú ruggaðir mér í svefninn, með söng á vörum þér svaf ég þá vel og svaf ég fast því ég vissi, alla þína ást mér gafst Er erfitt ég átti þú studdir mig kenndir mér hvernig á að virða sjálfan sig vera góð og heiðarleg muna það, virða hvar sem ég dvel Ólst mig upp með von í hjarta mér til handa um framtíð bjarta Hamingjusöm ég á að vera elskuleg móðir sem allt vill gera Með þessum orðum vil ég þakka þér alla þá ást og umhyggju sem gafst þú mér Ég elska þig mamma og mun ávallt gera vil ég þú vitir það hvar sem ég mun vera (höf. ókunnur.) Þín, Sólveig. Nú lýkur samfylgd minni og elskulegrar tengdamóður minnar. Allt hefur sinn tíma og svo er um lífið í þessari jarðvist. Engin okk- ar, sem tilheyrðum henni Rós- laugu, vorum tilbúin til þessarar stundar. En það var hún blessun- in. Langvarandi og þreytandi bar- átta hennar við sjúkdóminn var orðin þannig að ekki sást að landi og útséð um bata. Róslaug var, í þessum aðstæðum, sátt að kveðja og það er okkur sem eftir sitjum huggun. Það var eftirminnilegt hvernig leiðir okkar Róslaugar lágu sam- an. Þetta var fyrir hartnær 32 ár- um. Ég var þá nýfluttur hingað til Ísafjarðar. Hafði aldrei komið á þennan stað og þekkti engan. Ætlaði svo sem ekki að staldra við hér nema einn vetur. Kvöldstund eina var mér og æskuvini mínum, sem var í stuttri heimsókn, boðið í hús eitt hér í bæ. Í heimboðinu var nú bara horft á kvikmynd á víd- eóspólu. Við, gestirnir tveir, sát- um þöglir og feimnir í stofunni með gestgjöfunum, henni Ölmu Björk Sigurðardóttur og vinkonu hennar, þegar hurðinni var hrundið upp og inn gengu húsráð- endur, Róslaug og Bíi. Þau voru þá að koma úr afmæli og gleðin enn við völd. Þegar Róslaugu var ljóst að gestir sætu í stofu þótti henni við hæfi að setjast við píanó- ið og hleypa lífi í aðstæðurnar. Vissulega var mér brugðið við þetta og ekki síður þegar Róslaug hóf upp raust sína og söng við eig- in undirleik á píanó, sérstaklega fyrir mig, lagið „Á sprengisandi“. Feiminn var ég fyrir. Hún lék á als oddi, sem henni var svo eðl- islægt, og eru þessi fyrstu kynni okkar mér ákaflega minnisstæð en ekki síður dýrmæt. Kannski má segja að þessi innkoma hennar hafi orðið til þeirrar gæfu minnar að við Alma hófum nánari kynni, önnur en að horfa saman á víd- eóspólu. Ein af gæfusporunum í lífi mínu eru að hafa átt þess kost að tilheyra Róslaugu og fjölskyld- unni hennar. Eiga hana sem tengdamóður, ömmu barnanna okkar Ölmu og eins langömmu barnabarna okkar. Fyrir það er ég afar þakklátur. Þakklátur er ég Róslaugu fyrir vináttuna, hlýjuna og hvatninguna alla okkar samfylgd. Hún getur stolt kvatt þessa jarðvist, vitandi af góðu hjartalagi, samheldni og vel- gengni barnanna sinna og ann- arra niðja. Henni og Bía hefur tekist lífsstarfið einstaklega vel. Róslaug er fædd á Sauðárkróki en fluttist með fjölskyldu sinni til Ísafjarðar 6 ára gömul. Hér kynntist hún honum Bía og eign- uðust þau alls 5 börn. Hér hafa þau búið og alið börnin sín upp. Róslaug var sannur Ísfirðingur en stolt hennar af skagfirskum upp- runa sínum leyndi sér ekki. Eins og í svo mörgu deildum við því stolti saman. Hugur minn er hjá elskulegum tengdaföður mínum, honum Bía, börnum og öðrum fjölskyldumeð- limum. Við munum halda hópinn sem fyrr. Minning um einstaka konu lifir. Þinn einlægur tengdasonur, Hlynur Hafberg Snorrason. Elsku hjartans amma mín. Ég veit eiginlega ekki alveg hvar ég á að byrja. Ég sit með kertaljós fyrir fram- an mig, hugsa um fallegu og góðu minningarnar sem ég á um þig og reyni að lýsa þeim með orðum. Þú varst alltaf svo hjartahlý, góð, fyndin og frábær. Ég á marg- ar minningar af „ömmu og afa á selló“, þegar þið bjugguð á Selja- landsvegi 75. Þar fékk ég oft að gista. Mér fannst skemmtilegast að fá að fara í bað heima hjá ykkur því þú leyfðir mér alltaf að fá fullt af skálum, glösum og sleifum til að hafa ofan í froðubaðinu. Svo mátti maður auðvitað alltaf vaka lengi, horfa á sjónvarpið með ykkur afa og hafa kósí-kvöld. Þegar ég kom í heimsókn fékk ég mér yfirleitt brauð með osti hitað í örbylgjuofninum. Þú spurðir eiginlega í hvert einasta skiptið hvort ég vildi ekki örugg- lega smjör með. Ég var orðin pínu þreytt á því að þú værir alltaf að spyrja að þessu, þar sem ég var búin að segja nei í hvert einasta skipti. Seinna meir fattaði ég að þú hefur bara verið að stríða mér aðeins með þessu þar sem þráð- urinn í mér getur verið stuttur. Ég man eina páska þegar ég og Elsa Hrönn gistum hjá ykkur afa, við vorum afskaplega spenntar að vakna morguninn eftir og leita að páskaeggjunum heima hjá ykkur svona í fyrsta skiptið. Ég man hvað ég/við vorum rosalega sárar þegar þú „faldir“ páskaeggið uppi á vegg. Þú hengdir páskaeggin okkar upp á vegg fyrir framan herbergið sem við gistum í. Ég er nú samt löngu búin að fyrirgefa þér það, amma mín. Svo eru það minningarnar inni í Arnardal, þær eru nú góðar. Þar kepptumst við frændsystkinin stundum um að fá að gista hjá ykkur afa, því þar mátti sko vaka eins lengi og maður vildi! Svo var líka hægt að gera svo mikið þar, nóttin kom svo seint því sólin skein svo lengi. Ég var byrjuð að fikta í hárinu á þér áður en ég byrjaði að læra, en síðasta ár hef ég reynt að vera dugleg að koma til þín og blása á þér hárið. Svo fyrir stuttu baðstu mig um að klippa á þér hárið, mik- ið er ég þakklát fyrir það að þú hafir treyst mér í það verkefni. Þú sagðist vera sátt með útkomuna, þá er ég sátt. Þú varst oft að segja við mig að hárið á þér væri svona og svona, svo fíngert og leiðinlegt. Mér fannst það fullkomið og ég mun sakna þess að blása það og klippa. Elsku amma mín, þú varst full- komin amma í mínum augum. Ég trúi því ekki að þú sért farin. Það er oft búið að segja við mig „svona er lífið bara“ og ég viðurkenni það að ég verð pínulítið pirruð þegar þetta er sagt við mig, því mér finnst ekki lífið eiga að vera svona. En það er satt, svona er það víst. Ég sakna þín, amma, og mun alltaf gera. En ég trúi því að einn daginn munum við hittast aftur. Ég vona að þú hafir það gott þar sem þú ert í dag, ég mun hugsa til þín á hverjum degi. Við lofum að passa vel upp á afa, hafðu ekki áhyggjur af því, amma mín. Ég elska þig endalaust. Þín, Helga Þuríður Hlynsdóttir Hafberg. Elsku amma. Það er svo sárt að kveðja og eiginlega hálfóraunverulegt ennþá. Þú varst amman sem hafði gaman, alltaf svo fjörug, ungleg og algjör pæja. Falleg að utan sem innan. „Amma, megum við máta skóna þína?“ spurðum við frænk- urnar iðulega þegar við vorum litlar. Amma átti svo marga flotta hælaskó. Gömlu fatakassarnir í geymslunni voru líka fjársjóður og þar gátum við hangið tímunum saman. Það var alltaf jafn gott og gaman að koma í heimsókn. Takk fyrir allar góðu minning- arnar sem eftir sitja. Það er sagt að maður velji sér ekki ættingja en ef ég hefði fengið að velja hefði ég alltaf valið þig. Takk fyrir allt. Þín Róslaug. Elsku amma okkar. Það er svo margt sem okkur langar að segja en það er svo erfitt að koma því á blað. Okkur finnst þetta ljóð segja allt sem segja þarf. Hvernig er hægt að þakka, það sem verður aldrei nægjanlega þakkað. Hvers vegna að kveðja, þann sem aldrei fer. Við grátum af sorg og söknuði en í rauninni ertu alltaf hér. Höndin sem leiddi mig í æsku mun gæta mín áfram minn veg. Ég veit þó að víddin sé önnur er nærveran nálægt mér. Og sólin hún lýsir lífið eins og sólin sem lýsti frá þér. Þegar að stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar, sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn, finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða, man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig amma mín geymir á alheimsins besta stað. Ótti minn er því enginn er ég geng áfram lífsins leið. Því með nestið sem amma mín gaf mér, veit ég að gatan hún verður greið. Og þegar sú stundin hún líður að verki mínu er lokið hér. Þá veit ég að amma mín bíður og með Guði tekur við mér. (Sigga Dúa) Við vitum að þú vakir yfir okk- ur og að einn daginn munum við hittast aftur. Með söknuð í hjarta kveðjum við þig og þökkum þér allar góðu stundirnar. Minning þín er ljós í lífi okkar. Við elskum þig alla tíð. Daníel Þór, Björk og Ragnar Óli. Hinn 1. apríl sl. afréð almættið að kalla til sín eitt af meistara- verkum sínum. Því miður var það elskuleg amma mín, Róslaug Jón- ína Agnarsdóttir. Þegar upp í hugann koma minningar um ömmu eru þær nánast endalausar og jafn góðar og þær eru margar. Amma var ein af þeim sem sýna öllu fólki einlægan áhuga, var stálminnug, ættfróð og ræðin eftir því. Var það því engin tilviljun að fólk leitaði mikið til hennar hvort sem var á mannamótum eða á heimili hennar, bæði á Seljalands- veginum og síðar á Hlíðarvegin- um eða í raun hvar sem var enda hafði hún hlýja nærveru og gest- risin með eindæmum. Hún amma mín var þannig, vildi öllum vel og laus við sleggjudóma, tuð og kvart enda held ég að ég hafi aldrei heyrt hana segja styggðaryrði í garð annarra né kvarta, ekki einu sinni þegar veikindin herjuðu vægðarlaust á hana. Og þegar kom að því að aðstoða aðra var hún alltaf boðin og búin, sama hversu mikið hún hafði á sinni könnu. Aldrei nein vandamál, bara að vinda sér í verkið með bros á vör sama þótt hún hefði nóg að gera í vinnu eða öðru og væri að passa tvö til tíu barnabörn þegar best lét. Ég gæti haldið endalaust áfram að telja upp kosti ömmu og reynt að gera því skil hversu í raun náin hún var börn- um sínum og barnabörnum og já barnabarnabörnum, hverju á sinn einstaka hátt, en mér endast ekki línur hér til þess. Við sem eftir erum getum í besta falli reynt að lifa í samræmi við það fordæmi sem hún sýndi okkur, verið góð hvert við annað, verið til staðar hvert fyrir annað Róslaug Jónína Agnarsdóttir Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR RAFNAR HALLDÓRSSON tæknifræðingur Heiðarbæ 16 Reykjavík verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 13. apríl kl. 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. . Kristín Sigurbjarnardóttir, Sigurbjörn Búi Sigurðsson, Helga Ásgeirsdóttir, Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, Auður Ólafsdóttir, Hlíf Sigurðardóttir, Ámundi V. Brynjólfss., barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR ÓLAFSSON frá Grænumýri, Seltjarnarnesi, lést á Hrafnistu að morgni annars páskadags. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 14. apríl kl. 13. . Linda Vilhjálmsdóttir, Hafdís Vilhjálmsdóttir, Ásta Vilhjálmsdóttir, Ólafur Vilhjálmsson og fjölskylda. Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi, HELGI ARENT PÁLSSON, varð bráðkvaddur á heimili sínu Skjólbraut 1a á páskadag 5. apríl. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 16. apríl kl. 15. . Hrönn Pálsdóttir, Egill Helgi Kristinsson, Helga Pálsdóttir, Guðlaugur Valgeirsson og frændsystkini. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON skipasmíðameistari, Sólarvegi 14, Skagaströnd, lést að kvöldi 7. apríl á gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Útförin verður frá Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 18. apríl kl. 14. . Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Kristján Ólafsson, Fjóla Lýðsdóttir, Guðrún Margrét Ólafsdóttir, Hjálmar A. Sigurþórsson, Víðir Ólafsson, Sigurbjörg Bjarnfinnsd., Guðmunda Ólafsdóttir, Sigurður Berntsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SÓLVEIG SIGURÐARDÓTTIR, lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 7. apríl. Útför Sólveigar fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 18. apríl og hefst athöfnin kl. 14. . Fjölskyldan. Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19 • 210 Garðabær sími 842 0204 • www.harpautfor.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.