Morgunblaðið - 11.04.2015, Page 43
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015
undi hag mínum vel í þessu mikla
veldi kóladrykkja með frábærlega
skemmtilegum samstarfsfélögum og
vinum sem ég held enn tengslum við.
Næstu skref færðu mig svo æ austar
því 1995 hóf ég störf hjá Coca-Cola
Nordic Division í Osló í Noregi og
hafði ég m.a. yfirumsjón með inn-
kaupa- og flutningsmálum þar. Þetta
var skemmtilegur og lærdómsríkur
tími enda var Coca-Cola að byggja
upp nýja verksmiðju og dreifikerfi
fyrir allt landið. Árið 1998 flutti ég
mig til Vínar og var þá kominn í
vinnu hjá Coca-Cola HBC. Þar var
ég ábyrgur fyrir innkaupum fyrir
Mið- og Austur-Evrópu. Ætli ég
hefði ekki bara endað í Rússlandi eða
Kína ef ég hefði haldið áfram hjá
Coca-Cola. En Ísland togaði í mig,
ræturnar eru sterkar og ég kom
heim árið 2002 og varð fram-
kvæmdastjóri sérvörusviðsins hjá
Kaupási.“
Friðbert söðlaði svo um nokkru
síðar og starfaði sjálfstætt við ýmis
þróunarverkefni og fjárfestingar.
„Það var mikil gerjun í íslensku
efnahagslífi á þessum árum eins og
allir þekkja en árið 2011 birtist tæki-
færi sem ég gat ekki látið framhjá
mér fara og í ársbyrjun þess árs hóf
ég störf hjá Heklu og spennandi
tímar fóru í hönd hjá þessu rótgróna
fyrirtæki.“
Friðbert á helming hlutafjár í
Heklu og Volkswagen í Danmörku á
hinn helminginn.
Friðbert er nýkjörinn í stjórn Bíl-
greinasambandsins og situr í stjórn-
um annarra félaga og fyrirtækja.
„Ég hef mjög gaman af útivist, fer
reglulega á skíði og í gönguferðir og
ætli maður geti ekki sagt þetta klass-
íska: Ég nýt mín best á griðastað fjöl-
skyldunnar sem er í sumarbústaðn-
um í Grímsnesi.“
Fjölskylda
Eiginkona Friðberts er Soffía
Huld Friðbjarnardóttir, f. 14.5. 1969,
tónlistarkennari og músikþerapisti.
Foreldrar hennar eru Friðbjörn
Gunnlaugur Jónsson, verkstjóri og
söngvari, og Sólveig Hannesdóttir
hjúkrunarfræðingur.
Börn Friðberts og Soffíu Huldar
eru Sólveig Anna, f. 16.8. 2004, og
Salvör Sesselja, f. 17.10. 2006.
Systkini Friðberts eru Kristín
Björk Friðbertsdóttir, f. 22.5. 1963,
búsett í Reykjavík; Njáll Trausti
Friðbertsson, f. 31.12. 1969, flug-
umferðarstjóri á Akureyri, og Jó-
hann Grímur Friðbertsson, f. 12.4.
1971, sjóntækjafræðingur í Svíþjóð.
Foreldrar Friðberts voru Friðbert
Páll Njálsson, f. 1940, d. 2003, öku-
kennari og sölumaður, og Pálína
Guðmundsóttir, f. 1944, d. 2008, vann
við umönnun aldraðra. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Úr frændgarði Friðberts Friðbertsson
Friðbert
Friðbertsson
Stefán
Halldórsson
verslunarm. á
Norðfirði
Sesselja Stefánsdóttir
húsfreyja í Rvík
Guðmundur (Jóhannsson) Grímsson
vörubílstj. og þúsundþjalasmiður í Rvík
Pálína Guðmundsdóttir
vann við umönnun aldraðra í Rvík
Pálína
Vernharðsdóttir
húsfreyja í Rvík
Grímur Guðmunsson
verkstj. hjá Eimskip í Hafnarhúsinu
Guðrún Stefánsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Jóhann Guðjónsson
fyrrv. ökukennari í Rvík
Anna Stefánsdóttir
skrifstofum. í Rvík
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfr. á Svalbarði á Svalbarðsströnd
Kristjana
Friðbertsdóttir
húsfr. á
Suðureyri
Jón Viðar Njálsson vélstj. á Suðureyri
Harpa Njálsdóttir félagsfræðingur í Rvík
Margrét Njálsdóttir skrifstofum. í Rvík
Pálína Sveinbjarnardóttir
húsfr. á Suðureyri
Friðbert Friðbertsson
skólastj. á Suðureyri
Ásdís Friðbertsdóttir
lengst af húsfr. á Súgandafirði, nú í Rvík
Njáll Jónsson
sjóm. og verkam. á Súgandafirði
Friðbert Páll Njálsson
sölumaður í Rvík
Margrét Bjarnadóttir
húsfr. í Súðavík
Jón Jónsson
útgerðarm. og kaupm. í Súðavík
Sigríður
Pétursdóttir
húsfr. á
Suðureyri
Jófríður Pétursdóttir húsfr. á
Stað í Súgandafirði
Ólafur Þ. Þórðarson
alþm.
Sigríður Jónasdóttir húsfr. í Rvík
Kristmundur Jónasson matreiðslumaður
í Rvík
Kjartan Ólafsson fyrrv. ritstj. og alþm.
Friðbert Jónasson augnlæknir
Pétur Jónasson ljósmyndari á Húsavík
Guðmundur
Bjarnason b. á
Svalbarði
Kristín
Bjarnadóttir
hjúkrunarfr. á
Svalbarðsströnd
Margrét
Bjarnadóttir
hjúkrunarfr. í
Fnjóskadal
Sesselja
Bjarnadóttir
hjúkrunarfr. á
Grenivík
Sigríður
Guðmundsdóttir
húsfr. á Norðfirði
og í Rvík
Jórlaug
Guðnadóttir
húsfr. á Lómatjörn
Sigríður Sverrisdóttir
kennari á Grenivík
Guðný Sverrisdóttir fyrrv.
sveitarstjóri á Grenivík
Valgerður Sverrisdóttir fyrrv. alþm.
og ráðherra á Lómatjörn
Vilhjálmur fæddist í Merkinesií Höfnum 11.4. 1945, sonurVilhjálms Hinriks Ívars-
sonar, harmonikkuleikara, söng-
manns, bónda, og smiðs í Merkinesi,
og Hólmfríðar Oddsdóttur hús-
freyju. Meðal fjögurra systkina hans
var Ellý Vilhjálms, ein dáðasta dæg-
urlagasöngkona þjóðarinnar fyrr og
síðar.
Vilhjálmur var þríkvæntur, eign-
aðist soninn Jóhann, sem er söngv-
ari, og dótturina Vilhelmínu, sem er
flugstjóri, en auk þess tvo stjúpsyni.
Vilhjálmur var einn vetur í Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur þar sem hann
kynntist tónlistarmönnunum Einari
Júlíussyni og Baldri Þórissyni.
Hann var í Héraðsskólanum á Laug-
arvatni, lauk landsprófi á Ísafirði,
stúdentsprófi frá MA 1964, bankaði
uppá hjá Ingimar Eydal sama dag-
inn með stúdentshúfuna og var
munstraður sem bassaleikari í
hljómsveit hans, en áður hafði hann
leikið með Bassabandinu í þrjú ár.
Haustið 1965 kom Vilhjálmur aft-
ur suður, söng inn á tvær tveggja
laga plötur, lék með Hljómsveit
Magnúsar Ingimarssonar á Röðli
1966-68 og síðan með Haukum og
Hljómsveit Ólafs Gauks um skeið.
Vilhjálmur las lögfræði og síðan
læknisfræði við HÍ skamma hríð, en
hóf síðan flugnám og lauk því í Lúx-
enborg 1970. Hann var síðan flug-
maður hjá Arnarflugi og flugkennari
hjá Flugskóla Helga Jónssonar.
Vilhjálmur söng inn á fjórar plöt-
ur með Ellý, systur sinni, m.a. lög
eftir Sigfús Halldórsson og Tólfta
september, sendi frá sér sólóplötur
og söng þrjú lög inn á plötu með
Mannakorni. Síðasta plata hans,
Með sínu nefi, kom út 1976.
Vilhjálmur lést í umferðarslysi í
Lúxemborg fyrir aldur fram 28.3.
1978. Hann var þá einn dáðasti
söngvari þjóðarinnar. Minning-
artónleikar voru haldnir um hann
2008 og í kjölfarið stofnaður sjóður
til styrktar efnilegum söngvurum. Í
dag verða svo haldnir tónleikar í
Eldborg í Hörpunni er 70 ár eru frá
fæðingu hans.
Jón Ólafsson ritaði ævisögu Vil-
hjálms, Söknuður, sem kom út 2008.
Merkir Íslendingar
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
Laugardagur
106 ára
Hlíf Böðvarsdóttir
90 ára
Jón Þórarinn Sveinsson
85 ára
Sigurdís Alda Jónsdóttir
80 ára
Arngrímur Ægir
Kristinsson
Bergljót Jónatansdóttir
Erna Bergþóra Einarsdóttir
Guðlaugur Þórir Nielsen
Ingibjörg Kristín
Gísladóttir
Ingveldur K. Karlsdóttir
Margrét Sigfúsdóttir
Unnur Jóhannesdóttir
75 ára
Hannes Lárusson
Haukur Aðalsteinsson
Jón Reynir Einarsson
Sveinbjörn Hallsson
70 ára
Auður Óskarsdóttir
Guðlaugur
Höskuldsson
Hans Roland Löf
Hrefna
Gunnsteinsdóttir
Jóhanna Árnadóttir
Jóhannes Torfason
Jónas Hannesson
Kristín Vilborg
Haraldsdóttir
Magnús Davíðsson
Ólafur Pétursson
Soffí Þóra Magnúsdóttir
Sólveig Jónasdóttir
60 ára
Björg Friðjónsdóttir
Elísa Steingrímsdóttir
Guðný Gunnarsdóttir
Jóhann Vilhjálmsson
Kristján Þór Valdimarsson
Rán Gísladóttir
Sigrún Pálsdóttir
50 ára
Birna Björnsdóttir
Brynja Guðjónsdóttir
Elfar Reynisson
Hafdís Lilja Gunnarsdóttir
Hulda Hrönn Jónsdóttir
Ívar Ásgrímsson
Mikael Róbert Ólafsson
Slawomir Grzegorz
Chojnowski
40 ára
Árni Þór Árnason
Ásdís Margrét Rafnsdóttir
Hrefna Pálsdóttir
Kamran Keivanlou
Karl Einarsson
Kristín Anna Tryggvadóttir
Kristín S. Guðlaugsdóttir
Lahcen Bouhlali
L’Houcine Bouhlali
Nicholas Paul Clifford
Bardsley
Pálmi Ásbjarnarson
Sigurbjörg Kr.
Þorvarðardóttir
Viðar Þór Ólafsson
Þórður Karl Einarsson
30 ára
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Filip Jan Matlosz
Gunnar Daníel
Sæmundsson
Hermann Ingi Steinarsson
Ingvi Hrafn Hálfdánsson
Jón Þorgeir Kristjánsson
Karl Brynjar Björnsson
Olga Maria Jablonska
Sigþór Jónsson
Sunnudagur
90 ára
Soffía Rannveig
Valdimarsdóttir
80 ára
Guðmundur Ingvarsson
Ingveldur Anna Pálsdóttir
Kristófer Sæland Jónasson
75 ára
Arndís Magnúsdóttir
Aud B. Helgason
Hermann Albert Jónsson
Hrönn Árnadóttir
Kristín J Magnúsdóttir
Margrét Bjarnadóttir
Matthildur Jóna
Ágústsdóttir
70 ára
Ásmundur E. Einarsson
Ásta Sigríður Eyjólfsdóttir
Ástþór Óskarsson
Guðrún Helga Gestsdóttir
Hreinn Karlesson
Jóhann Reynisson
Óskar Konráðsson
Sigmar K.S.
Sigurbjörnsson
Sigríður Guðmundsdóttir
Sigrún Dungal
Sigurður Adolfsson
Sólveig Helga Jónasdóttir
Steindór Gunnarsson
60 ára
Aðalsteinn
Hallgrímsson
Andrés Eyberg
Magnússon
Brynja Garðarsdóttir
Gísli Kristófersson
Guðbjörn Vilhjálmsson
Gunnar Ólafur Eiríksson
Inga María Ingvarsdóttir
Stefanía Margrét
Stefánsdóttir
Viktor Arnar
Ingólfsson
50 ára
Björn Jónsson
Brynjólfur Sigurðsson
Guðmundur Kristján
Ragnarsson
Hilmar Jón Kristinsson
Íris Pálsdóttir
Róbert Guðmundur
Schmidt
Sigurður Freyr
Sigurðarson
Sigurður Sigfús Eiríksson
Sólrún Helga Jónsdóttir
Unnur Jónsdóttir
40 ára
Arnar Hauksson
Guðni Kristinsson
Gunnar Kristinn
Ásgeirsson
Hulda Ósk Harðardóttir
Inger Rut Hansen
Kristín Svafarsdóttir
Laufey Margrét
Magnúsdóttir
Lilja Björg Ingibergsdóttir
Margrét Eiríksdóttir
Sigurveig Hallsdóttir
30 ára
Andrés Ágúst Jónsson
Auður Anna Jónsdóttir
Baldur Ingason
Berglind Árnadóttir
Brynjar Ingi Erlingsson
Eva Rakel Eyþórsdóttir
Heiðar Guðnason
Hulda Björk Haraldsdóttir
Ingibjörg Ósk
Þórðardóttir
Katarzyna Aleksandra
Idczak
Margeir Sigurðsson
Marta Renata Rozanska
Valgeir Rúnar Valgeirsson
Zuzana Stankovitsová
Til hamingju með daginn
Austurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi • Suðurveri
Hafðu veisluna eftir
þínu höfði!
Skoðaðu úrvalið á
vefverslun okkar
bakarameistarinn.is.
Veisluþjónusta undir stjórn matreiðslumeistarans Skúla Hansen
Er veisla framundan?
Sími 533 3000 bakarameistarinn.is