Morgunblaðið - 11.04.2015, Side 44

Morgunblaðið - 11.04.2015, Side 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015 Fermingargjafir fyrir stráka og stelpur Mikið úrval af gjafavöru fyrir dömur og herra · Töskur · Hanskar · Seðlaveski · Ferðatöskur · Tölvutöskur · Belti · Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Léttar ferðatöskur Kortaveski úr leðri frá kr. 4.800. Nafngylling kr. 1100. Tru virtu ál kortahulstur. Kr. 7200 Kemur í veg fyrir skönnun á kortaupplýsingum. Skartgripaskrín- Lífstíðareign Sjá ítarlegar upplýsingar á www.drangey.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Oft er það svo að þegar maður gerir einhverjum greiða þá skilar hann sér aftur þegar maður þarf sjálfur á aðstoð að halda. Sérstaklega tekur þú eftir þörfum barna, þjáningum þeirra og gleði. 20. apríl - 20. maí  Naut Glæstar áætlanir um fjölskylduna og heimilið valda glundroða og ókyrrð í einka- lífinu. Varfærnin borgar sig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Farðu ekki í uppnám þótt ekki sé alltaf farið eftir þeim reglum sem þú setur. Gefðu honum tíma til þess að átta sig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Samband þitt við vin er afar náið í dag. Er það nokkur furða að ástvinur sé heillaður af þessum litríka margbreyti- leika? Gefðu þér tíma til að vinsa það besta úr. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Í dag ættir þú að líta yfir allt sem þú hefur afrekað. Reyndu að láta það gerast. Flas er aldrei til fagnaðar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. En eru verðlaunin bar- dagans virði? 23. sept. - 22. okt.  Vog Það mun reyna á þolinmæði þína í dag og einhverjir samstarfsmenn þínir munu ganga helst til langt. Gefðu því þann tíma sem þarf til að það leysist farsæl- lega. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Nú er lag að skipuleggja af- þreyingu af einhverju tagi. Gættu því allrar varúðar svo þú verðir ekki fyrir tjóni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur mikið að gera og skalt ekki fara út í stórar framkvæmdir á heimilinu. Allir hlutir kosta sitt en það er forgangsröðin sem skiptir máli. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gerðu ráð fyrir einherju óvæntu frá yfirmanni þínum. Fyrr en varir á hún eftir að kunna lagið og þarf þá ekki á hjálp að halda lengur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sumir hlutir eru sannir af því að maður gerir þá sanna og maður getur gert þá ósanna með sama hætti. Láttu slag standa og farðu eftir eigin hyggjuviti. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur um skeið unnið að ákveðnu máli bak við tjöldin. Sá rétti er hvorki augljós né auðveldur. Athugaðu þinn gang og hvort þú getur ekki útskýrt betur hvað fyrir þér vakir. Síðasta vísnagáta var eftir Guð-mund Arnfinnsson sem oftar: Á fingrinum þú finnur hann. Fastan oft hann leysir. Fyrir þér málin flækja kann. Frelsi hann skorður reisir. Og gefur hann þessa lausn á gátu sinni: Köggull á fingri kleppur er. Kleppur er hnútur að glíma við. Kleppur er vandi, sem varast ber. Veitir Kleppur aðhaldið. Síðan lætur Guðmundur tilheyr- andi limru fylgja: Hann Þengill úr Þingvallahreppi, sem þrásinnis kvaðst vera jeppi, var álitinn valla með öllum mjalla, hann var yfirlæknir á Kleppi. Guðrún Bjarnadóttir segir, að svarið sé hringur, af því að: Fegurð eflir fagran fingur skreyttan hringum. Svelti fastan festir, af fingri losnar hringur. Hringrök hugsun taka frá hringavitleysingi. Hring í nautsgrön hengjum, hrifsum frelsi gripsins. Árni Blöndal er á svipuðum slóð- um: Hringur á fingri festast kann, þú fitnar og fasta hann leysir. Við sjafnaryndi setur bann, sífellt skorður reisir. Og enn varð Guðmundi hugsað til mín og sendi gátu: Jarðskjálfti fær raskað ró. Reisu manns á langinn dró. Vegferð stutt í senn á sjó. Sýnir ölvun, væga þó. Helga R. Einarssyni datt í hug ein létt gáta með morgunkaffinu: Við at- og lima- límist hann líka út- og jaka-. Hrelldi forðum hest og mann, en heillar sérhvern maka. Lausnir verða að berast ekki síð- ar en á miðvikudagskvöld. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Oft er ekki einhlít lausn á gátunni Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVER ER AÐ FARA AÐ FÁ SPRAUTUNA SÍNA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... gleðin sem þú færð af hlátri hans. GÓÐA KVÖLDIÐ, OG VERIÐ VELKOMIN AÐ... DRAMATÍSKA ÞAGNAR- LEIKHÚSINU VIÐBÚINN... TILBÚINN... HRÓLFUR HRÆÐILEGI ER FYRIR UTAN VIRKISVEGGINN, HERRA HVAÐ VILL HANN? ÉG SKAL SPYRJA, HERRA HANN VILL VERA FYRIR INNAN VIRKISVEGGINN, HERRA Móðir Víkverja, eins og allar aðr-ar mæður, hefur lagt sig fram í uppeldinu í gegnum árin en afrakst- urinn er ekki endilega alveg í takt við blóð, svita og tár ættmóð- urinnar. Líklega er heppilegri orða- notkun að tala um ráðleggingar frekar en fortölur og uppeldi í ljósi þess að Víkverji hefur náð fullorð- insaldri. Hér verður þó hvorki rætt um þroska Víkverja né hversu full- orðinn hann er orðinn, þess þá held- ur hvað felist í því að vera fullorðinn yfirleitt. x x x En þá víkur sögunni aftur að hæn-unni og egginu. Egginu sem skellir (ítrekað) skollaeyrum við orðum hænunnar. Víkverji er oft hreinlega alveg eins og egg, skortir eyru til að hlýða á orð hinna eldri og hvað þá að draga ályktun af því sem sagt er. Það virðist honum vera fyr- irmunað að gera. x x x Þegar Víkveri bítur einhverja vit-leysu í sig þá flokkar hann það sem svo að hann sé að fara sínar eigin leiðir. Þessar eigin leiðir hafa ekki gefið góða raun hingað til. x x x Það hnussaði í Víkverja þegarhann stakk uppáhaldspeysunni sinni inn í þvottavélina og nánast hreytti út úr sér: „Hvað ætli það þurfi alltaf að þvo þessa peysu í höndunum. Af hverju er ég að inna meiri vinnu af hendi en ég þarf?“ Hann hristi hausinn og klykkti út með orðinu „handþvottur“ um leið og hann skellti hurðinni á þvottavél- aropinu aftur. x x x Það þarf vart að spyrja að leiks-lokum. Víkverji skellti sér í snollaða peysu og hélt út í vinnu- daginn. Hann hlustaði ekki á þær raddir í höfðinu á honum sem æptu: „Peysan hefur hlaupið!“ Stoltur í fasi hélt hann í Hádegismóa. Smám saman kvarnaðist þó úr afneitun Víkverja þegar leið á daginn því þegar hann sá sig í speglinum sá hann þetta svart á hvítu. Takk, móð- ir, fyrir að gefast ekki upp á þvotta- leiðbeiningum. víkverji@mbl.is Víkverji Guði séu þakkir, sem gefur oss sig- urinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist! (Fyrra Korintubréf 15:57) - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.