Morgunblaðið - 11.04.2015, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2015
Söfn • Setur • Sýningar
Sunnudagur 12. apríl kl. 14: Leiðsögn með Ingu Láru Baldvinsdóttur
Þriðjudagur 14. apríl kl. 12: Hádegisfyrirlestur Sigurðar Gylfa Magnússonar
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Á veglausu hafi í Bogasal
Hvar, hver, hvað? í Myndasal
Húsin í bænum á Veggnum
Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Reykjanesbæjar
• Til sjávar og sveita,
Gunnlaugur Scheving
• Sjálfsagðir hlutir, hönnunarsaga.
• 15/15 – Konur og myndlist,
úr safneigninni.
24. janúar – 26. apríl
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
KONUR STÍGA FRAM - SVIPMYNDIR 30 KVENNA Í ÍSLENSKRI MYNDLIST
13.2.-10.5.2015
Sunnudagsleiðsögn kl. 14 - Hildur Hákonardóttir og Þorbjörg Höskuldsdóttir
myndlistarkonur fjalla um verk sín á sýningunni
A KASSEN CARNEGIE ART AWARD 2014 13.2. - 10.5. 2015
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar.
IN THE CRACK OF THE LAND - Una Lorenzen
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl
Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 30. ágúst
Opið laugardaga og sunnudag kl. 14-17.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
SEQUENCES 13.-19. apríl, verk eftir David Kefford og Dagrúnu Aðalsteinsdóttur
Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015
Opið sunnudaga kl. 14-17.
MENN
Curver Thoroddsen, Finnur Arnar Arnarson,
Hlynur Hallsson, Kristinn G. Harðarson
Vörður
Jónína Guðnadóttir
Listamannsspjall
Sunnudag 12. apríl kl. 14
Jónína Guðnadóttir
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Teikningar og skissur
Helgu Björnsson tískuhönnuðar
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ÁMUNDI:
Grafísk
hönnun
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er alveg hreint magnað hvað
þetta verk, sem fjallar um spillingu,
græðgi, valdníðslu og kynþátta-
fordóma, hefur elst vel. Þetta er allt
að gerast í kringum okkur í dag,“ seg-
ir leikstjórinn Ágústa Skúladóttir um
leikritið Ubba kóng – skrípaleik í
mörgum atriðum eftir Alfred Jarry
sem Leikfélag Hafnarfjarðar frum-
sýnir í Gaflaraleikhúsinu í kvöld.
Ágústa rifjar upp að leikritið hafi
vakið svo heit viðbrögð í París árið
1896 að frumsýning þess hafi jafn-
framt verið lokasýningin á sínum
tíma. „Þetta verk er hins vegar löngu
orðin klassík á pari við verk Shake-
speare og mikið leikið í Evrópu þótt
það hafi ekki verið leikið mikið hér-
lendis,“ segir Ágústa og tekur fram
að hún hafi árum saman gengið með
þann draum í maganum að fá að leik-
stýra verkinu.
Gróteskan ríkjandi
„Ég kynntist því fyrst þegar ég var
í almennri bókmenntafræði við Há-
skóla Íslands þar sem Sigurður Páls-
son kenndi mér í kúrsi um absúrd-
leikritun. Árið 1994 sá ég síðan
dásamlega útfærslu á því á Edin-
borgarhátíðinni þar sem aðeins tveir
leikarar fóru með öll hlutverkin og
notuðu grænmeti og ávexti sem brúð-
ur, sem bauð upp á áhugaverða út-
færslu á öllum þeim fjöldamorðum
sem í leikritinu eru,“ segir Ágústa og
tekur fram að í sinni útfærslu ráði
gróteskan ríkjum í trúðaleikstílnum.
Bendir hún á að Alfred Jarry hafi
verið nokkuð á undan sinni samtíð og
líta megi á hann sem brautryðjanda
fyrir absúrdísk leikskáld á borð við
Eugène Ionesco,
Samuel Beckett
og Jean Genet.
Ubbi kóngur
eða Ubu roi á
frummálinu er
kannski betur
þekktur sem
Bubbi kóngur, en
Herranótt frum-
flutti verkið hér á
landi undir því
nafni árið 1969 í leikstjórn Sveins
Einarssonar. Að sögn Ágústu gekk
ekki þrautalaust að hafa uppi á upp-
runalegu handriti verksins á íslensku.
„Við leituðum m.a. til Davíðs Odd-
sonar, sem lék Bubba kóng, og fleiri
leikara sem léku í uppfærslunni á
Herranótt, en án árangurs. Þegar ég
hringdi í Steingrím Gaut Kristjáns-
son, sem þýddi verkið upphaflega,
kom í ljós að hann hafði lengi haft hug
á því að fara yfir þýðinguna sína sem
hann vann þegar hann var lögfræði-
nemi. Við bjuggum því við þann lúxus
að fá nýja og endurbætta þýðingu,
sem er auðvitað líka einstaklega dýr-
mætt fyrir leiklistararfinn hérlendis,“
segir Ágústa og tekur fram að titli
verksins hafi verið breytt samkvæmt
tillögu frá Steingrími.
Með hlutverk Ubba kóngs og Ubbu
drottningar fara Halldór Magnússon
og Huld Óskarsdóttir. „Þau fara
hreinlega á kostum í hlutverkum sín-
um. Ég hefði ekki getað verið heppn-
ari með aðalleikara, því þau eru bæði
þrautþjálfuð með mikla leikreynslu,“
segir Ágústa sem unnið hefur með
Huld áður m.a. í uppfærslu Gaflara-
leikhússins á Ævintýri Múnkhásens
árið 2012 og í uppfærslu Leikfélags
Kópavogs á Ævintýri Grimms sem
valin var athyglisverðasta áhuga-
leiksýningin að mati valnefndar Þjóð-
leikhússsins árið 2002 og fór í fram-
haldinu sem fulltrúi Íslands á
alþjóðlega leiklistarhátíð Norðurevr-
ópska áhugaleikhússambandsins
(NEATA) sem haldin var í Svíþjóð þá
um sumarið.
Morðótt skrímsli
„Ubbi kóngur er eitt þekktasta
karlhlutverk leikbókmenntanna. En
það sem færri vita er að Alfred Jarry
skapaði líka eitt safaríkasta kven-
hlutverk leikbókmenntanna. Ubba
drottning er aðaldriffjöður verksins,
enda er það hún sem plottar valda-
ránið sem felur í sér að myrða kon-
ungsfjölskylduna til að komast til
valda,“ segir Ágústa og bendir á að
hvað það varði minni Ubba óumræði-
lega á lafði Macbeth. „Ubbi kóngur
sturlast hins vegar við það að komast
til valda með morðum og hann getur
ekki hætt að drepa. Þannig er Ubba
búin að skapa morðótt skrímsli sem
hún ræður svo ekki við. Það fer því
ekki vel fyrir þeim hjónum.“ Á annan
tug leikara og hljóðfæraleikara taka
þátt í sýningunni. „Þau eru á sviðinu
allan tímann, bregða sér í fjöldamörg
hlutverk og standa sig frábærlega,“
segir Ágústa. Tónlistin er frumsamin
af Eyvindi Karlssyni og söngtextar
eru eftir Karl Ágúst Úlfsson og Þór-
arin Eldjárn. Leikmynd hannaði
Klæmint Henningsson Isaksen, lýs-
ingu Hermann K. Björnsson og Sig-
ríður Rósa Bjarnadóttir útfærði gervi
og búninga í samvinnu við leikhópinn.
Þess má að lokum geta að sýningin er
75 mínútur og leikin án hlés. Næstu
sýningar verða 14., 18. og 21. apríl kl.
20 öll kvöld. Miðasala er á midi.is. All-
ar nánari upplýsingar má finna á vef
Leikfélags Hafnarfjarðar, leikhaf.is.
Ljósmynd/Eddi
Ærslaleikur Halldór Magnússon og Huld Óskarsdóttir í hlutverkum sínum sem Ubbi kóngur og Ubba drottning.
Skrípaleikur um valdníð
Ágústa
Skúladóttir
Ubbi kóngur frumsýndur í Gaflaraleikhúsinu í kvöld kl. 20
Út er komið
nýtt tölublað
Stínu – Tímarits
um bókmenntir
og listir, 1. hefti
10. árgangs. Í
þessu tíu ára af-
mælishefti er
fjölbreytilegt
efni að vanda.
Guðbergur Bergsson, einn rit-
stjóra, talar til Stínu, meðal ann-
ars um smæð í listum og menn-
ingu hér á landi og staglkennda
umræðu um vanda Ríkisútvarps-
ins. Sögur eru birtar, meðal ann-
ars eftir Margréti Örnólfsdóttur,
Kára Tulinius, Vigdísi Gríms-
dóttur, Svein Einarsson, Kristínu
Ómarsdóttur og Elísabetu Jök-
ulsdóttur. Guðrún Hannesdóttir
hefur þýtt sögu eftir Bojan Babic
sem birt er, og Rúnar Helgi Vign-
isson þýddi sögu eftir Heinrich
Böll. Þá eru birt myndverk eftir
Rakel Steinarsdóttur, sem Hlynur
Helgason skrifar um og Þórdís
Aðalsteinsdóttir myndlistarkona
skrifar samtal við listakonuna
Araya Rasdjarmrearnsook. Meðal
annars efnis eru tíu tilgátur Þór-
arins Eldjárns að lokum þriðju
sonnettu Jónasar Hallgrímssonar,
og er ekki allt efni upptalið.
Tímaritið Stína
fagnar tíu ára útgáfu
Tíu umsækjendur eru um stöðu
safnstjóra Listasafns Reykjavíkur
sem auglýst var laus til umsóknar í
síðasta mánuði. Hafþór Yngvason,
sem hefur stýrt Listasafni Reykja-
víkur síðastliðinn áratug, lætur af
störfum í haust.
Umsækjendur um stöðuna eru:
Auður Harpa Þórsdóttir, forstöðu-
maður, Halldóra Arnardóttir, list-
fræðingur, Jón Andri Óskarsson,
nemi, Kristbjörg Ýrr Jónasdóttir,
forstöðumaður, Margrét Elísabet
Ólafsdóttir, kennari, Ólöf Kristín
Sigurðardóttir, forstöðumaður,
Tryggvi Jónsson, aðstoðarveit-
ingastjóri, Yean Fee Quay, deild-
arstjóri og Æsa Sigurjónsdóttir,
dósent. Gert er ráð fyrir að tillaga
um ráðninguna liggi fyrir eigi síðar
en í byrjun maí og að nýr safnstjóri
taki til starfa í ágúst.
Listasafn Reykjavíkur hýsir þrjú
meginsöfn í þremur sýningarhúsum;
safn Ásmundar Sveinssonar í Ás-
mundarsafni, safn Jóhannesar Kjar-
vals á Kjarvalsstöðum og safn verka
Erró í Hafnarhúsi. Listasafn
Reykjavíkur hefur jafnframt umsjón
með myndverkum á almannafæri í
eigu borgarinnar.
Safnstjóri er listrænn stjórnandi
með ábyrgð á sýningadagskrá og
annarri faglegri starfsemi safnsins í
samræmi við alþjóðlegar siðareglur,
lög og samþykktir.
Tíu sóttu um stöðu safnstjóra
Morgunblaðið/Einar Falur
Á Kjarvalsstöðum Fjölþætt starf-
semi er í Listasafni Reykjavíkur.
Nýr safnstjóri Listasafns Reykjavík-
ur ráðinn fljótlega og hefur störf í ágúst